Fréttablaðið - 17.12.2009, Page 102
82 17. desember 2009 FIMMTUDAGUR
„Nei, ég held að þetta sé ekkert sams-
æri gegn mér, þessir menn hafa eitthvað
annað við tímann að gera. En þetta eru
stór nöfn til að fara í samkeppni við,” segir
Baltasar Kormákur, kvikmyndaleikstjóri.
Nýverið var tilkynnt að sjálfur Mel Gibson
hyggðist gera víkingamynd og hefði feng-
ið Leonardo DiCaprio í aðahlutverkið. Stór
nöfn, svo ekki sé meira sagt. Baltasar hefur,
eins og Fréttablaðið hefur greint frá, einn-
ig verið að undirbúa risastóra víkingamynd
sem taka á upp hér á Íslandi. Um yrði að
ræða dýrustu kvikmynd Íslandssögunnar
og hafa samningaviðræður um framleiðslu
og dreifingu staðið yfir við eitt af stærri
framleiðslu fyrirtækjum Hollywood að und-
anförnu.
En samkeppnin er hörð og Gibson er mik-
ill söguáhugamaður þegar kemur að kvik-
myndagerð, gerði síðast Apocalypto þar
sem hið forna tungumál maya var notað og
þar áður Píslarsögu Krists. Lítið fæst upp-
gefið um söguþráð kvikmyndarinnar heldur
eingöngu að tökur eigi að hefjast eftir hálft
ár, öllu eigi að tjalda til og að myndin fjalli
frekar um líf og menningu á víkingatíma-
bilinu heldur einhvern einn stakan atburð í
sögunni. Hið merkilega er að víkingamynd-
ir hafi ekki beint átt uppá pallborðið hjá
amerískum áhorfendum og flestar verið
hálfslappar. „Þetta er svona svipuð nálgun
og við höfum haft í huga og þetta eru auðvit-
að merkileg tilviljun. En maður gefst ekk-
ert upp þótt maður fái samkeppni frá svona
risum. Kvikmyndir um þetta efni hafa lengi
verið í bígerð útí Hollywood og núna virðast
menn ætla að láta slag standa,” segir Balt-
asar en víkingamyndin hans er í eðlilegum
farvegi, búið er að byggja leikmynd og er
hún nú að veðrast austur á fjörðum. - fgg
MORGUNMATURINN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. sæti, 6. ryk, 8. liðamót, 9. kóf, 11.
tímabil, 12. langt op, 14. örðu, 16.
kind, 17. skel, 18. tæfa, 20. tveir eins,
21. strengur.
LÓÐRÉTT
1. tif, 3. eftir hádegi, 4. snautaðu,
5. sérstaklega, 7. köldusótt, 10.
námsgrein, 13. líða vel, 15. grobb, 16.
frændbálkur, 19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sess, 6. im, 8. hné, 9. kaf,
11. ár, 12. klauf, 14. agnar, 16. ær, 17.
aða, 18. tík, 20. uu, 21. taug.
LÓÐRÉTT: 1. tikk, 3. eh, 4. snáfaðu,
5. sér, 7. malaría, 10. fag, 13. una, 15.
raup, 16. ætt, 19. ku.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Kolkrabba nota verkfæri þegar
hann skýldi sér með kókos-
hnetu.
2 Nærri sex þúsund, 5.687.
3 David Lynch.
„Ég borða yfirleitt bara súr-
mjólk með múslí.“
Sigríður Friðriksdóttir, sem rekur kaffihús
í Hellisgerði í Hafnarfirði.
„Ég er búin að vera að lesa í yngri
bekkjum grunnskóla í fæðingar-
orlofinu mínu og það er alveg
magnað hvað þau taka vel í þetta,“
segir Ingibjörg Vilbergsdóttir,
annar höfundur bókarinnar Flug-
vélakossar. Bókina skrifaði hún
með tengdamóður sinni Nancy
Myer sem er búsett í Bandaríkj-
unum, en bókin fjallar um Daní-
el og ömmu hans sem hann sakn-
ar mikið þegar hún er fjarri, svo
hann lærir leið til að senda henni
flugvélakossa.
„Hugmyndin kviknaði þegar
Daníel sonur minn var þriggja
ára. Þá var hann ekki alveg að
skilja hvað fjarlægðin er mikil á
milli Íslands og Bandaríkjanna
og saknaði ástvina sinna þegar
fríinu lauk og við fórum heim.
Hann var rosalega hrifinn af flug-
vélum og tók upp á því að senda
flugvélakossa til ástvina sinna
í Bandaríkjunum til að takast á
við söknuðinn,“ segir Ingibjörg.
Aðspurð segir hún þær tengda-
mæðgur ekki hafa látið fjarlægð-
ina stöðva sig við gerð bókarinn-
ar. „Við skrifuðum bókina með
hjálp internetsins, sendum tölvu-
pósta fram og til baka og unnum
alla hugmyndavinnuna í tölvusam-
skiptum,“ segir hún, en um mynd-
skreytingar í bókinni sá Jean Ant-
oine Posocco.
Flugvélakossar kemur út bæði
á íslensku og ensku og segir Ingi-
björg bókina innihalda byrjenda-
lestrartexta. „Þar sem við Nancy
erum báðar grunnskólakennarar
notuðum við þá kunnáttu sem við
höfum. Það er stórt letur í bókinni
og mjög skemmtilegt og mynd-
rænt efni,“ segir hún. - ag
Skrifuð í gegnum tölvupóst
FLUGVÉLAKOSSAR Ingibjörg og Nancy
ásamt fjölskyldu þeirra, en flugvélakoss-
ar Daníels Thors, sonar Ingibjargar, urðu
kveikjan að bók þeirra tengdamæðgna.
Fáir hrukku í kút þegar Arnaldur
Indriðason þeyttist á topp metsölu-
lista Eymundssonar hinn 1. nóvem-
ber með bókinni Svörtuloftum. En
sá maður er ríkur í dag sem veðj-
aði á að honum yrði velt úr sessi
af sjálfshjálparbókinni Meiri ham-
ingja eftir Tal Ben-Shahar og að
fast á hæla hans í þriðja sætinu
sæti sjálfur Egill „þykki“ Einars-
son með Mannasiðabókina sína.
Þegar jólaverslunin fikrar sig
nær hámarkinu má flestum vera
ljóst að miðað við bókainnkaup-
in vill íslenska bókaþjóðin annað
hvort verða hamingjusöm á ný eða
læra mannasiði að hætti Gillzen-
eggers.
„Þetta kemur mér algjörlega í
opna skjöldu,“ segir Karl Ágúst
Úlfsson, spaugstofumaðurinn sem
gefur út bókina Meiri hamingja
ásamt konu sinni, Ásdísi Olsen.
„Fólk áttar sig kannski á því að
þarna er hugmyndafræði og boð-
skapur sem á vel við um þessar
mundir. Þetta er bara vísbend-
ing um að fólk vilji í auknum mæli
taka ábyrgð á sjálfu sér og sinni
líðan.“ Karl bendir þannig á að
þjóðin hafi að undanförnu velt sér
upp úr ástandi sem hún hafi ekki
átt neina sök á og að nú sé kannski
bara kominn tími til að Íslend-
ingar horfi inn á við. „Við getum
ekki alltaf bent á annað fólk og
kennt því um hvernig okkur líður,
við verðum bara að bjarga okkur
sjálf,“ segir Karl og upplýsir um
leið að nú sé verið að vinna í því
að fá Tal Ben-Shahar til Íslands.
„Vonandi svarar hann því trausti
sem þjóðin er að sýna honum.“
Egill „þykki“ Einarsson var ekki
síður kátur en Karl, enda hefur
nánast allt sem hann hefur snert
á þessu ári snúist í höndunum á
honum, bæði póker og Wipeout.
„Ef einhver hefði nú verið svo
hjartgóður að benda mér á þetta á
sínum tíma, að ég ætti bara að snúa
mér að skrifum og bókaútgáfu, þá
hefði það verið fínt,“ segir Egill en
þegar hefur norskur útgefandi sett
sig í samband við hann og óskað
eftir því að fá að þýða Mannasiða-
bókina. „Slíkt ætti náttúrlega ekki
að vera mikið mál því ég á auðvit-
að norskt nafn uppi í erminni,“
segir Egill og vísar þar til nafns-
ins „Störe“ sem hann notaði um
skamma hríð. Bæði Karl og Egill
eru síðan sammála um að þjóðin sé
í stuði fyrir svolítið léttmeti eftir
þungavigtarumræður um ESB og
Icesave í þjóðfélaginu. „Það er
bara gaman að sjá hversu vel bók-
menntaþjóðin er að taka þessu,“
segir Egill. freyrgigja@frettabladid.is
EGILL ÞYKKI: HEF FUNDIÐ FJÖLINA Á NÝ
ÓVÆNT NÖFN Á TOPPN-
UM FYRIR BÓKAJÓLIN
SAMAN Á TOPPNUM Egill „þykki“ Einarsson er í þriðja sæti metsölulistans hjá Eymundsson en Karl Ágúst Úlfsson velti sjálfum
Arnaldi úr sessi með bókinni Meiri hamingja. Arnaldur situr því í öðru sæti listans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Baltasar hræðist ekki Mel Gibson
HVERGI BANGINN
Baltasar Kormákur hefur verið í
samningaviðræðum við stórt fram-
leiðslufyrirtæki í Hollywood
um bæði framleiðslu og
dreifingu á víkingamynd-
inni sinni. Mel Gibson
hyggst einnig gera vík-
ingamynd með Leon-
ardo DiCaprio í
aðalhlutverki.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Auglýsingasími
– Mest lesið
Rebekka Bryndís
Björnsdóttir, fagott-
leikari í hljómsveit-
inni Hjaltalín,
verður
ekki með
sveitinni
á síðustu
metrunum
fyrir jólin.
Hún þurfti
að fara
til Bandaríkjanna vegna fráfalls í
fjölskyldu hennar og verður hún því
ekki með Hjaltalín þegar hún spilar
á Nasa á laugardaginn.
Eins og kom fram í Fréttablaðinu á
laugardaginn voru smellahöfundar
síðasta árs, Ingó Veðurguð og
Toggi og félagar sem sömdu Þú
komst við hjartað í mér, ekki sáttir
við höfundaréttargreiðslurnar frá
STEF. Þeir mættu því á skrifstofu
STEF á mánudaginn til að krefjast
svara. Þar var þeim tekið
fagnandi enda STEFi
í hag að rétt sé frá
málum gengið. Fóru
poppararnir nokkuð
sáttir frá þessum fundi,
en enn er þó verið að
kafa í smáatriðin
til að sjá hvort
einhvers staðar
leynist ekki matar-
hola.
Eins og Fréttablaðið greindi frá á
þessum stað í gær var stuttmynd
kvikmyndagerðarmannsins Rúnars
Rúnarssonar, Anna, sýnd á DR
fyrir skemmstu á ágætistíma. En
það sem ekki kom fram í frétt-
inni er að Anna er þegar farin að
sanka að sér verðlaunum og er nú
kominn með sex slík á ferilskrána.
Þetta er samt ekki neitt miðað
við Smáfugla Rúnars en
hún fékk 61 verðlaun
á sínum tíma. Þess
ber þó að geta að
Anna er 31 mínúta
að lengd og það gerir
hana ógilda á ansi
mörgum hátíðum.
- fb, drg, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI