Tíminn - 27.03.1986, Síða 22

Tíminn - 27.03.1986, Síða 22
22Tíminn Reagan hefur ýmsa mæðu af •Verddæmiö er jafnaðarverö fyrir fjögurra manna fjölskyldu. FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1, símar: 28388 og 28580. börnum sínum Sonurinn gerir grín að honum í sjónvarps- þáttum og dóttirin ætlar að gera kvikmynd um skavankana í fjölskyldulífinu Alls staðar þar sem Ronald Reag- an og kona hans Nancy koma gefa þau umheiminum heillandi mynd af sér: Það eru heillandi bros og handa- bönd og allt ber vitni um þá heimilis- hamingju og festu sem helst er hægt að óska sér. En samt eru aðstæðurnar í fjöl- skyldunni engin sérstök fyrirmynd. Sú pólitík sent forsetinn hefur rekið í eigin fjölskyldumálum er ekki sér- lega traust. Nú eru það börn hans sem fengið hafa sjálfar undirstöður Hvíta hússins til að skjálfa. Engin dæmi eru um það í sögunni að börn Bandaríkjaforseta hafi unnið sér það til fjár og frama að bera út slúðursögur um foreldra sína. Sonurinn Ron, sem er 27 árá, lét sig hafa þaö á dögunum að dansa rokk á nærbuxunum einum fata með sviðsmynd að baki sem var eftirlík- Reagan hjónin óskuðu Ron til hamingju árið 1981, þegar hann var ráðinn dansari við Metropolit- an. En sá ferill varð skammur. ing af embættisskrifstofu föður hans. Um svipað leyti gaf dóttirin Patti út bók með sjálfsævisögulcgu ívafi, „Heimavígstöðvarnar", í bókinni, sem hún segist hafa samið til þess að bjarga sjálfsímynd sinni, ræðst hún gegn þeim gildum sem hinir frægu foreldrar hennar hafa staðið fyrir. Bókin, sem hefur selst gífurlega, þótt eintakið kosti 16 dollara, segir frá stúlku sem vex upp á dögum Vegna frábærra samninga við samstarfsaðila okkar á Mallorka bjóðum við fjög- urra vikna ferð á þriggja vikna verði 9. apríl til 6. maí. Og við bjóðum enn betur. Börn innan 12 ára aldurs fá frítt með foreldrum sínum. Þetta er einstakt tækifæri, frábær sumarauki. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. Verð frá 17.800,- pr. fjölskyldumeðlim.* Víetnam stríðsins og er kúguð vegna óbilgirni erkiíhaldssamra foreldra sinna. Faðir hennar er kaliforníski fylk- isstjórinn Robert Canfield og er honum lýst sem valdagírugum harð- stjóra. Móðirin, Harriet Canfield, á hins vegar að vera köld kona og 'viljasterk, „tilfinningalítil og upp- stríluð". Tvímælalaust er nokkur svipur með þessu og foreldrum höfundar- ins. Þarna kom Patti algerlega aftan að föður sínum og móður. í bókinni veitir hún útrás ýmissi gamalli gremju: „Ef það skyldi koma til þess að loftvarnaflauturnar fara að ýlfra aftur,“ lætur hún föðurinn segja, „þá flýtið ykkur inn í búningsher- bergið, því þar eru engir gluggar." Eftir sigursæla kosningabaráttu læt- ur hún móður sína segja: „Ég get varla beðið með að breyta innan- hússskreytingunum í Hvíta húsinu.“ Patti sendi foreldrum sínum ekki bókina, fyrr en hún var komin í verslanir. Hún óttaðist að hinn langi armur föður hennar yrði réttur fram og útgáfan stöðvuð. Hún mótmælir því harðlega að hafa skrifað bókina í ágóðaskyni: „Ég varð að losna við þetta allt,“ segir hún. „Ég gat ekki Iengur flúið sjálfa mig. Mér er það aukaatriði að faðir minn er svona þekktur maður. Fyrir mér er hann aðeins faðir minn. Eftir að hafa komið bókinni frá mér er ég frjálsari og ánægðari." Ronald Reagan reynir að halda stillingu sinni á yfirborðinu, þrátt fyrir útgáfu bókarinnar, en undir niðri má ætla að forsetanum sé heitt í hamsi. Líklega hugsar hann svipað og hann eitt sinn sagði um Patti: „Það er leitt að flengingar skuli ekki tíðkast lengur.“ Frá barnæsku var Patti erfið og þrjósk og var hún að því leyti ólík hálfsystkinum sínum af fyrra hjóna- bandi Reagans, Maureen, sem er 44 ára og Michael, sem er 40 ára. Allir afkomendur Reagans búa í hinni sólríku Kaliforníu og þau láta nægja að hringja til Washington við sérstök tækifæri, en senda þó fremur póstkort. Það er dæmigert að þegar Patti fékk taugaáfall 1981 vegna ofreynslu, lét hún foreldrana ekkert til sín heyra. Henni var meinilla við það er Reagan fór í framboð til forseta, því hún óttaðist að missa hann alveg út í stjórnmálin. Hún gerðist líka andvíg stjórnar- stefnu hans. Þegar Reagan fór að sækja um milljarða dollara framlög ' til vígbúnaðar, gerðist hún ákafur andstöðumaður kjarnavopna. Til þess að undirstrika sjálfstæði sitt tók hún líka að reykja hass og marijú- ana. Fleiru tók hún upp á í leitinni að sjálfri sér, sem varð föður hennar til skapraunar. Hún lék í ómerkilegri kvikmynd í nektarhlutverki. Þá spreytti hún sig sem sönglaga- höfundur, þótt platan sem hún hafði á prjónunum kæmi aldrei út. Einn vina Reagan fjölskyldunnar sagði um þessa þverúðugu dóttur forset- ans: „Hún gengur í gegn urn vegginn í stað þess að nota dyrnar." Patti kaus að nota föðurnafn móð- ur sinnar í stað Reagan nafnsins og kallar sig því Davis, sem er jafn algengt í Ameríku og Guðmunds- dóttir á íslandi. Gegn vilja foreldra sinna bjó hún í fjögur ár í London Þegar Reagan kallaði eftirfjárveit- ingum til vígbúnaðar helgaði Patti sig óspart friðarbaráttunni. Patti Davis (Reagan) hefur þreifað fyrir sér sem leikona, sönglaga- smiður og skáldsagnahöfundur. með gítarleikaranum í „Eagles", Bernie og sannaði þar með að hún hyfur að lífsmottói: „Vísasti vegur- inn til þess að fá mig út í eitthvað er að banna mér það.“ Eftir annað samband með leikar- anum Peter Strauss, giftist hún loks jóga-kennaranum Paul Grilley. Það var hann sem lagði til nafnið á nýju bókina, „Heimavígstöðvarnar“. Til þess að auka fagmannsbraginn á rituninni fór rithöfundurinn Maur- een Strange yfir handritið og lagaði þaö til. Ekki þurfti bróðirinn Ron Reagan liins vegar neinn hjálparkokk þegar hann skrifaði frásögn fyrir Playboy um topp-ráðstefnuna í Genf. Frá- sögnin jaðraði aftur á móti við að verða tilefni til milliríkjamáls. Til dæmis lýsti hann tveimur sovésku leynilögreglumönnunum sem „hálf- bjánum sem brytu valhnetur með hausnum, því það væri svo nota- legt“. Bandarískur diplómat lá ekki á þeirri skoðun sinni að slík skrif væru skaðleg fyrir bandarísk-sovésk viðskipti. Annars hefur ferill þessa upp- flosnaða stúdents frá Yale háskóla orðið Reagan til lítillar gleði. Hann stóð í biðröð með atvinnulausum ballettdönsurum í New York 1983 og sást vera að sníkja út atvinnu- leysistyrk, sem nam 125 dollurum. Honum er farið að ganga betur upp á síðkastið, þar sem hann hikar nú ekki við að nota fjölskyldunafnið sér til framdráttar. Nýlega gerði hann samning við sjónvarpsstöðina ABC til eins árs. Áður reyndi hann fyrir sér sem gamanleikari. Þá stóð hann og hélt á kúst, sem hann þóttist leika á sem gítar, og hafði skrifstofu pabba gamla í baksýn. í sama þætti lék hann móður sína sem keðjureyk- ingakonu og ávann sér vanþóknun samstarfsmanna föður síns, sem sök- uðu hann um smekkleysu. Bandaríkjamenn mega búast við enn fleiri „smekkleysum" frá hendi barna forsetans á næstunni. Til dæm- is undirbýr Patti nú gerð kvikmyndar eftir skáldsögu sinni. Hún hyggst sjálf fara með aðalhlutverkið. MALLORKA SUMARAUKI 9. APRÍL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.