Tíminn - 27.03.1986, Síða 24

Tíminn - 27.03.1986, Síða 24
Rútuferðir um Mið-og Austur-Evrópu og hringferð um Norðurlönd Hringferð um Norouriönd I sumar efnir Úrval til tveggja 12 daga hring- ferða um Norðurlönd. Megináhersla er lögð á að kynnast höfuðborgun- um fjórum; Osló, Stokk- hólmi, Helsinki og Kaup- mannahöfn. Brottfarir Fyrri ferðin stendur yfir frá 24/6 til 5/7 og sú síðari frá 15/7 til 26/7. Gott skipulag - íslenskur farar- stjóri Þessar ferðir hefjast með flugi til Oslóar. Þaðan liggur leiðin með lest til Stokkhólms, síðan með ferju til Helsinki og afturtil Stokkhólms. Þaðan er farið með lest til Kaup- mannahafnar. Alls staðar verður farið í skipulagðar skoðunarferðir, gist á fyrsta flokks gististöðum og góður tími gefinn til að kíkja í verslanir. íslenskur fararstjóri sem öllum hnútum er kunnugur sér um að allt gangi eins og í sögu. Verð pr. mann: (þríbýli: 38.875,- kr. í tvíbyli: 39.675,- kr. í einbýli: 44.000,- kr. Innifalið: Flug, lestar- og ferjuferðir, hótelgisting í 9 nætur, ferjugisting í 2 nætur, morgunverður í 11 daga, skoðunarferðir, íslensk fararstjorn og akstur frá og að flugvelli úti. Rútuferðir Úrvals til Mið- og Austur- Evrópu njóta sífellt vaxandi vinsælda - og skyldi engan undra. [ sumar bjóðum við tvær slíkar ferðir. f báðum ferðunum er boðið uppá einstaklega fyrirhafnar- lausan ferðamáta til margra víðfrægra staða. Farkostir og gististaðir eru fyrsta flokks og skipulagið pottþétt undir öruggri fararstjórn Friðriks G. Friðriks- sonar. Mið-Evrópa Við bjóðum 15 daga ferð um Þýskaland, Svlss, Frakkland, Austurríki og Lúxemborg. Brottför er 6. ágúst og komið heim þann 20. Ferðatilhögun Flogið er til Lúxemborg- ar. Þar bíður þín loftkældur, mjög þægi- legur langferðabíll. Ferðin hefst á skoðunar- ferð um Lúxemborg og um kvöldið er haldið til Trier í Þýskalandi. Þaðan liggur leiðin suður Móseldalinn, vínræktar- héruð skoðuð og vínkjallari heimsóttur. Á þriðja degi er farið í bátsferð á Rín og næstu viðkomustaðir eru Rudesheim, Mainz, Heidelberg og Baden Baden. Á sjötta degi er komið til Freiburg, þeirrar fornfrægu borgar, og Svartiskógur rannsakað- ur. Síðan er haldið til Basel í Sviss. Þar heimsækjum við m.a. heimsfrægan dýragarð. Frá Sviss liggur leiðin til Frakklands og síðan aftur til Freiburg. Þar verðurslappað af í heilan dag og kíkt í verslanir. Munchen er næsti áningarstaður og þaðan brunum við til Austurríkis og njótum Alpaloftsins. Að lokum er aftur haldið til Trier. Þar hvílumst við í einn dag - í Trier er verðlag sérstaklega hagstætt. Á 15. degi er á ný haldið til Lúxemborgar og þaðan er flogið heim. Verð pr. mann: I þríbýli: 50.442,-kr. (tvíbýli: 51.562,-kr. [ einbýli: 59.262,-kr. Innifalið: Flug, gisting í 14 nætur á fyrsta flokks hótelum - öll herbergi eru með sér baðherbergi, 14 morgunverðir, 11 kvöld- verðir, allur akstur og skoðunarferðir, aðgangur að söfnum, köstulum, skemmtigörðum, vín- kjöllurum o.fl., sigling á Rín og þaulkunnugur ís- lenskur fararstjóri. f r Austur og suður fyrir Alpafjöll Við bjóðum einnig 16 daga heillandi rútuferð um Austurríki, Ungverja- land, Júgóslavíu og ítalfu. [ þessari ferð er sérstök áhersla lögð á menning- ar- og listaborgirnar Vín og Salzburg. Brottför er 21. maí og komið heim 5. júní. Meðal viðkomustaða eru Salzburg, Vínarborg, Budapest, Plitvice, Portoroze, Feneyjar, Innsbruck og Munchen. Siglt er á Dóná, farið upp í sjónvarpsturninn í Vín, legið á fyrirmyndar sólarströnd, ítölsk matargerðarlist könnuð, Ólympíuleikvangurinn í Munchen skoðaður og ferðast með skíðakláfi f Innsbruck - svo nokkuð sé nefnt. Verð pr. mann: í þríbýli: 53.545,-kr. (tvíbýli: 54.745,-kr. íeinbýli: 62.815,-kr. Innifalið: Flug, gisting í 15 nætur á fyrsta flokks hótelum, morgunverður alla daga, kvöldverður 11 daga, allur akstur, skoð- unarferðir og örugg far- arstjórn Friðriks G. Friðrikssonar. Allar nánari upplýsingar veita sölu- og umboðs- menn okkar um land allt. Munið að panta tíman- lega. Það borgar sig að bóka sem fyrst. fBHMSKRIRSroHM úmw Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Sími (91) 26900. I

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.