Vikan


Vikan - 03.08.1961, Page 20

Vikan - 03.08.1961, Page 20
. Matthías Jónasson: Yið g’öngum með grímu til þess að skýla tilfinningum okk- ar fyrir gráðugri forvitni og illkvittinni dómgirni annarra manna. Tilfinningar eru alltaf að vakna og þróast í brjósti okkar og sjaldan þykir okkur æskilegt að aðrir menn verði þeirra varir um leið og við sjálf. Q FÁGAÐ VIÐMÓT. „Ég fyrirlít fólk, sem gengur með grímu.“ Þessi orð eru höfð eftir skáldi, sem ég hefi að vísu nokkrum sinn- um séð grímulaust. Við yfirborðs- lega íhugun gætu þau virzt sann- gjörn. Hvers vegna að dylja sinn innra mann? Ætli mannlífið yrði ekki heilbrigðara, ef við létum um- búðalaust í ljós það, sem okkur býr í brjósti, settum enga grímu upp? . .Þannig fer barnið að. f tali þess og hátterni ríkir kristallstær hrein- skilni, — þangað til foreldrar fara að sveigja það undir siðaboð sam'- félagsins, máta á það grímuna, eins og líka mætti orða það. Fölskvalaus hreinskilni barnsins felur í sér sterka töfra, jafnvel þar, sem hún misbýður siðavöndum tilfinningum. En eðli barns er einnig hemjulaust og dýrslegt, svo að þroski og vel- farnaður einstaklingsins yrði varla tryggður með grímuleysinu einu. Óneitanlega hyrfi líka nokkur fágun úr viðmóti okkar, ef við köst- uðum grímunni algerlega. Dýrið er ávallt grímulaust, en um leið án áunninnar siðfágunar. Meginþættir dýrseðlisins, sem flestir koma fram í manninum, yrðu einráðir um at- ferli hans, ef hann varpaði frá sér þeirri fágun í viðmóti, sem með nokkrum rétti má kalla grímu. Við ætum þá með tilburðum rándýrsins, gæfum hatri okkar, fjandskaparhug og öðrurii ástríðum óhindraða fram- ráS, en sú rómantik, sem ástir sið- menntaðra manna eru umvafðar, félli þá burt með öllu. Og við hættum að vera menn. Hið fágaða viðmót er meginþáttur sam- félagsmenningarinnar og gríman holdgróin á andlit okkar. Við segj- um okkur úr lögum við siðmenn- ingu og samfélagslegt hátterni, um leið og við köstum grímunni alger- lega. MARGÞÆTT HLUTVEK GRÍMUNNAR. Skáldið á auðvitað við það, að það fyrirlíti fólk, sem gengur dag- lega með grímu hræsninnar. Þeirri grímu er ætlað að villa um eiganda sinn, sýna annan mann en raun- verulega býr í honum, og ævinlega er hræsnaranum ætlað að hagnast á þessu dulargervi. f samskiptum manna ríkir hræsnin í óteljandi af- brigðum; menn vilja sýnast gáfaðri, auðugri, voldugri, fegurri og jafn- vel yngri en þeir eru. Þeirri grímu mun maðurinn aldrei varpa á bug. Hins vegar er hræsnin aðeins eitt og að vísu hið ógeðfelldasta form grímunnar. Miklu mikilvægara er annað hlutverk hennar: að skýla viðkvæmum tilfinningum fyrir gráðugri forvitni og illkvittinni dómgirni annarra manna. Alltaf eru tilfinningar að vakna Og þróast í brjósti okkar, og sjaldan þykir okk- ur æskilegt, að aðrir menn verði þeirra varir, um leið og við verð- um það sjálf. Um það er ástin glöggt dæmi. Hún snertir ávallt tvær manneskjur og fyrst í stað þær einar. Ástfanginn unglingur þarf fyrst og fremst ráð- rúm til þess að gera sér grein fyrir tilfinningum sínum og því and- svari, sem þær megi vænta. Þess vegna breiðir hann hjúp leyndar- innar yfir hina ungu tilfinningu. Aðeins maður með vanþroska til- finningalíf og frumstæða siðfágun lætur ásthneigð sína í ljós, jafnskjótt og hún bærir á sér. Dulvituð sjálfs- varnarhvöt hamlar geðheilum manni að leyfa framandi sjónum að skyggnast of snemma og of djúpt inn í tilfinningalíf hans. Hin eftir- væntingarfulla prófun, sem maður og kona gera á gagnkvæmri vakandi ásthneigð, þarf að hafa yfir sér ör- ugga leynd, svo að tilfinningarnar þróist ótruflaðar. Þetta þekkja allir, sem muna og skilja unga ást. Þá er að vísu notuð gríma, en þó ein- göngu í varnarskyni. Undir fæstum kringumstæðum þykir mönnum viðeigandi að láta geðshræringar sínar f ljós, um leið og þær vakna og leita framrásar. Við temjum okkur stillingu, bíðum hentugs tækifæris, leitum hæfilegs forms og leyfum þá fyrst, er þetta allt er fundið, tilfinningum okkar að brjótast fram. Stjórnlaust bráð- lyndi þykir hins vegar alltaf dálítið broslegt. Einnig er ýmis kímni og glettni dulbúin tjáning þess, sem menn vilja ekki segja beinlínis og afdráttarlaust. Við berum grímuna því miklu víðar en á inarkaðstorgi hræsninnar. SÁLSKYGGNI OG DUL. Menn eru misjafnlega næmir á sálarlíf annarra. Sumir eru svo blindir, að ætla mætti, að þeir hefðu enga reynslu af eigin sálarlífi, aðrir eru gæddir ófreskri sálskyggni, svo að grípian verður gagnsæ fyrir þeim og þeir grandskoða það sálar- líf, sem átti að dyljast bak við hana. En mörg okkar voru kannski ekki óðfús að undirgangast slíka gegn- umlýsingu. Það er ekki hræsnisgríman ein, sem við óttumst um, þó að margir þoli sízt, að henni sé lyft. Það eru miklu fremur tilfinningar okkar og aðrar djúpstæðar hræringar sálar- lífsins, sem við höldum leynd yfir f lengstu lög og forðumst að láta svipta hulunni af. Jafnvel þar sem bitur nauðsyn knýr á, þarf venju- Ié(ga einnig sterkari vilja annars manns til þess að losa um dulbún- inginn. Nú fjölgar óðum þeim læknum og sálfræðingum, sem beita eins konar sálrænni gegnumlýsingu í lækn- ingaskyni. Fyrir sjúklinginn gengur þetta þó ekki jafnáreynslulaust og líkamleg gegnumlýsing. Honum er sjálfum ætlað það hlutverk að opna hugskot sitt, að svipta af sér dular- hjúpi og grímu og sjá sjálfan sig í köldu ljósi raunsæisins. Þessi sjálfsafhjúpun verður flestum sjúkl- ingum erfið, en það sýnir ljóst, hve holdgróinn dularhjúpurinn og grím- an eru orðin. Oft hafa þau blekkt eigandann sjálfan miklu hrapalleg- Framhald á bls. 26. ZD VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.