Vikan - 03.08.1961, Qupperneq 29
CJef junnr
mikSu
úrvali
Ákltedi
Viðurkennd gæðavara heima
sem heiman.
Gæði, fjölbreytt litaval og
ótrúlega hagstætt verð, hafa
gert Gefjunaráklæði að út-
flutningsvöru.
Gefjunaráklæðin eru vinsæl-
ustu og mest notuðu áklæðin
á fslandi. Framleidd í fjöl-
mörgum gerðum og ávallt í
nýjustu tízkulitum.
Tí xkuitttv
Aðalútsölustaður
Kirkjustræti 8—10.
Sími 1 28 38.
II
* '4
’bUPnap
Hrútsmerkiö (21. marz—20 apr.): Þú skalt ekki
vera hræddur við að breyta út af venjunni í
þessarri viku, því að stjörnurnar benda á, að
allt nýstárlegt, sem þú tekur þér fyrir hendur
muni ganga að óskum. Þú munt þurfa að velja
milli tveggja kosta i vikunni.
NautsmerkiÖ (21. apr.-—21. maí): Það skiptast á
skin og skúrir í vikunni, og átt þú eiginlega sjálf-
ur sök á dökku hliðum vikunnar, því að þú
hagar þér óskynsamlega, líklega á vinnustað.
Fimmtudagurinn verður mikill heilladagur, þvi
að þá tekst þér að gera alvöru úr einhverju, sem þú hefur
lengi haft á prjónunum.
Tvíburavierkið (22. maí—21. júní): Þér væri rétt-
ast að breyta dálítið um vinnuaðferðir og verja
tíma þínum í þarflegri hluti, því> að allt bendir
til þess að þú sért farinn að standa í stað. Æsku-
fólk, sem fætt er undir tvíburamerkinu, á von á
óvenjuskemmtilegri helgi.
KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júlí): Þessi vika ein-
kennist af vináttu og ást. Margt ungmennið mun
kynnast góðum félaga, sem jafnvel gæti orðið
ævifélagi. Laugardagurinn er dálítið varasanaur,
því að þá verður lögð fyrir þig gildra, sem þér
sérstaklega er hætt við að falla í, sakir eins veikleika
þíns. Þú munt komast að því að þessi nýi vinur þinn, er
ekki allur þar sem hann er séður.
Ljónsmerlcið (24. júlí—23. ág.): Þú munt eiga
mjög annríkt í þessarri viku, og hættir þér þvi
miður einmitt til þess að leggja árar i bát þessa
dagana, en svo má aldrei verða. Heima við
gerist óvenjumikið, liklega verður mikið um
gestagang. Þú kynnist manni eða konu fyrir nokkrum
vikum, en hefur ekki séð hann (hana) lengi. Nú kemur
þessi persóna mikið við sögu. Heillatala 8.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þessi vika er
einkum konum heilladrjúg. Karlmenn vara sig
ekki á alls kyns freistingum og gildrum, og það
eru vist ekki margir þeir karlmenn, sem fæddir
eru undir Meyjarmerkinu, sem ekki verður á eitt-
hvert glappaskot. Þó bendir allt til þess, að mánudagurinn
verði öllum til heilla, ekki sízt hvað allan fjárgróða snertir.
Heillalitur bleikt.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Það hefur eitt-
hvað valdið þér áhyggjum undanfarið, en nú
gerist eitthvað, sem verður til þess að þú að
mirinsta kosti sættir þig við þetta. Þú hefur ekki
farið rétt að kunningja þínum í þessu máli, sem
snertir ykkur báða. Vertu ekki svona önugur við einn
vinnufélaga þinn, það skapar leiðinlegt andrúmsloft á vinnu-
stað. Talan 4 virðist skipta mjög miklu.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú leggur út
í eitthvert hættuspil í vikunni, og allt virðist
benda til þess, að þú hafir lánið með þér. Þú
hefur ekki komið rétt fram gagnvart einum fjöl-
skyldumeðlim undanfarið, og ef þú reynir ekki
að breyta betur, gæti farið illa. Líklega gæti gleymska
þín orðið til þess að valda þér talsverðum vonbrigðum.
Hefurðu endurnýjað happdrættismiða?
BogamaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Það rís upp
einhver deila á vinnustað, og skaltu reyna að
skipta þér eins lítið af þessu og mögulegt er,
annars gæti illa farið. Það verður skírskotað tií
drengskapar þíns og fórnfýsi í vikunni, og ef
þú veigrar þér ekki við að fórna dálitlum tíma fyrir aðra,
verður þér launað ríkulega, þótt síðar verði.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þú verður upp-
fullur af hugmyndum i vikunni, en hætt er samt
við, að þig skorti frumkvæði til þess að hrinda
þeim beztu i framkvæmd. Þér verður boðið út
í vikunni, og rekst það heimboð liklega á eitt-
hvað annað, sem þú hafðir á prjónunum.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þú hefur
lengi unnið að verkefni, sem hefur valdið þér
talsverðum áhyggjum, af því að þú hefur ekki
getað ráðið fram úr því einn þins liðs. 1 þessarri
viku berst þér skyndilega hjálp úr óvæntri átt.
Það er mikil rómantik yfir vikunni, og líklega lendir þú
í saklausu en skemmtilegu ástarævintýri.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): 1 fyrstu verður
vikan fremur d'apurleg og jafnvel hundleiðinleg,
en þá gerist eitthvað, sem kemur lífi í tusk-
urnar svo um munar. Þú skalt þaulhugsa fyrir-
fram allt, sem þú skrifar í vikunni. Þú ætlast til
of mikils af einhverjum i fjölskyldunni.
4