Vikan


Vikan - 28.09.1961, Blaðsíða 22

Vikan - 28.09.1961, Blaðsíða 22
Fabian er einhver nýjasta stjarnan meðal ungling- anna, og það var Bob Marcucci, 29 ára gamall forstjóri fyrir plötufyrirtæki, sem uppgötvaði hann. — Þetta var hrein tilviljun, segir hann, til allrar hamingju fyrir mig. — Ég var á gangi á götu i Philadelphiu, þegar ég sá sjúkrabíl fyrir utan hjá einum vini minum. Ég flýtti mér þangað og fékk þá að vita, að verið var að flytja nágranna vinar míns á sjúkrahúsið, vegna hjartaslags, en það var faðir Fabi- ans. Svo kom ég auga á Fabi- an, þar sem hann sat á tröppun- um og ég reyndi að tala við hann og hughreysta hann og segja honum að faðir hans kæmi bráðlega lieim aftur. Kannski var það hið sérstaka augnaráð hans, eða hvað hann var bæði likur Elvis Presley og Ricky Nelson, sem hafði áhrif á mig. Ég veit það ekki, en ég hafði á tilfinningunni, að það væri eitthvað sérstakt við hann. Mér leizt eins á hann og annan söngvara, Frankie Avalon, og alveg ósjálfrátt sagði ég við hann: Ég skal gera úr þér söngstjörnu. Viltu ekki byrja strax? Fabian hélt að Marcucci gengi með lausa skrúfu og sagði honum að hann hefði verið rekinn úr skólakórn- um. Tveir fyrstu söngkennarar hans hristu einnig höf- uðið, þegar þeir heyrðu Fabian syngja. Sá þriðji var þó bjartsýnni og Fabian var í söngtímum tvisvar í viku eftir skólatíma. Brátt komust táningarnir í nágrenninu að þessu og báðu Fabian að koma og syngja á skemmtun. Hann söng — og var kastað beina leið út ... Fabian var fullur örvæntingar, en Marcucci hughreysti hann. — Einhvern tima munu þeir betla um eiginhandar- áritun þína. Og hann hafði rétt fyrir sér. Nokkrum vikum seinna kom Marcucci af stað auglýs- ingaherferð í bandarísku blöðunum, sem var mjög nýstár- leg jafnvel á ameriskum mælikvarða. Hver er Fabian? Og Ameríka fékk svar. Fabian var ungur drengur með sérkennilegt augnaráð, dálítið grettinn á svipinn og með stórkostlega rödd. Og áður en plötufélagið hafði áttað sig runnu plötur hans út eins og heitt brauð og hann var kallaður hinn stórkostlegi Fabian. Fjórða plata Fabians, „I‘m a Man“, komst ofarlega á vinsældalista, og fimmta platan, „Turn Me Loose,“ gerði hann heimsfrægan. Þremur dögum eftir að platan kom á markaðinn fékk hann tilboð frá sjónvarpinu og var boðin 2% milljón í borgun og platan seldist í milijónum eintaka. „Tiger“, sem hann söng nokkru seinna náði einnig mjög miklum vinsældum. Fox nær í Fabian. Þetta kvikmjndafélag hefur allar klær úti, þegar um er að ræða ujgar stjörnur og það leið ekki á löngu, áður en Fabiín fluttist til Hollywood með tiu vikna samning upp | vasann og 245 þúsund kr. fyrir fyrstu kvikmynd sina, „Hound Dog Man“. Hópur af æpandi unglingum flykktist að flugvellin- um, þegar hann kom. Þeir brutu rúður í bílnum og voru næstum því búnir að stinga úr Fabian annað augað. Eftir að hafa haldið hljómleika í Hollywood Palladium var Fabian nýjasti guð bæjarins. Hið eina, sem Marcucci var hræddur um, var, að hinn 16 ára gamli Fabian (nú átján ára) mundi eyðileggja framtíðarhorfur sinar og gera alvöru úr þeim hótunum sínum að læra raunverulega að syngja. Eftirnafn Fabians er Forte og hann er fæddur i Philadelphiu árið 1943. Hann er góður vinur Frankie Avalons og er mikið með Annettu Funnicelli. Adressa hans er Fox Film A/S, Stortingsgt. 28, Oslo. Fabian í kvikmyndinni Hound Dog Man. Það þarf ekki að horfa lengi á myndirnar til að skilja, hvers vegna hann töfrar ungt fólk um allan heim. Herhergið Það getur verið mjög skemmtilegt og þar að auki gagnlegt að liafa minnis- töflu á herbergisveggnum. Búa má töfluna til sjálfur og efnið í hana er ódýrt. Það er hægt að lcaupa rammann í málningarverzl- unum eða i rammagerðum, ef maður getur ekki smíðað sjálfur. Biðjið um blind- ramma (sams konar og málverk eru strengd á), þá fáið þið rétta tegund. Strigi er strengdur yfir rammann og festur með teiknibólum og þá er minnistaflan til- búin. Eins og þið sjáið, er hægt að skreyta hana með myndum af eftrlætisleik- urum, úrklippum. skrautgripum og skemmti- legum minjagripum og ekki má gleymast að hafa nagla fyrir minnisseðla og lykla, eða hvað sem það nú er, sem ekki má gleymast. Það liggja margar leiðir til frægðar- innar og ein af þeim er að fá sér grímu. Það gerði ungur maður kvöld nokkurt við frönsku Rivieruna, þegar hann átti að byrja að spila fyrir „klíkuna" á staðn- um. Hann tók trompetinn sinn og spilaði sem grímuklædd ófreskja betur en hann hafði nokkurn tíma gert, þannig að þeir ókunnugir, sem voru til staðar, voru steini lostnir af undrun. Niðurstaðan varð sú, að ungi maðurinn hélt áfram að bera grímuna, hélt sinu rétta nafni, spilaði áfram á trompetinn sinn og varð heimsfrægur sem, já, þið þekkið nafnið, Trumpet-Boy. Þessi mynd er tekin fyrsta kvöldið, sem hann var með grímuna, og það varð ekki það siðasta. Notið vnto og sópu Frægur fegrunarsérfræð- ingur segir hér nokkur orð um hirðingu húðarinnar og svarar hinni sígildu spurn- ingu: Hvers vegna hef ég svona slæma húð ? Það er venjulega vegna þess, að húðin er stífluð af fitu og þvi þakin fílapensum. En það er engin ástæða til að örvænta eða fá minnimátt- arkennd, því það er alltaf hægt að gera eitthvað. Næstum allir unglingar hafa feita húð, og þess vegna verða ungar stúlkur að vera sparar á krem. Hvernig á þá ung stúlka að hirða húð sína? Á morgnana á hún að þvo sér með vatni og sápu, já, vatni og sápu, það er nefnilega ekki skaðlegt fyrir feita húð. Á kvöldin getur hún notað andlitsvatn, sem bæði hreinsar og dreg- ur svitaholurnar saman. Ef húðin er dálítið þurr eftir þvott eða hreinsun, er hægt að nota venjulegt mýkjandi krem, sem nota má á allt (t. d. Niveakrem), það gefur húðinni öll þau efni, sem hún þarf á að halda. En það á helzt ekki að nota það oftar en einu sinni á dag. En hvað um „meikið", sem skýlir svo miskunnsamlega vanköntum húðarinnar? 1 þvi tilfelli er mjög nauðsyn- legt að ungar stúlkur geri sér grein fyrir, hvað þær nota. Það á að nota „meik“, sem ekki fer niður í húðina, heldur harðnar utan á henni, og hlífir henni gagn- vart óhreinindum. Ef púðr- að er yfir svo gott undir- lag, fer púðriö heldur ekki inn í húðina. En góð með- höndlun utan frá er ekki nóg. Innvortis meðhöndlun er einnig mikilvæg. Helzt á að banna svínakjöt, feitt kjöt og feitar sósur, en borða mikið af ávöxtum, A-vita- mini (helzt lifur) og geri. Það er einnig gott (og ekki fitandi), að drekka nokkur glös af köldu, soðnu vatni yfir daginn og allar tegund- ir af jurtate eru til mikill- ar hjálpar fyrir óhreina húð. Það er yfirleitt mjög vitur legt að halda sig að mat- vörunum í sinni eðlilegu mynd og fá t. d. vitamín með því að borða ávexti. Hvenær er bezt að byrja að hugsa reglulega um and- litið? Satt að segja er bezt að byrja strax og fólk upp- götvar, að húðin er farin að fitna og sýna óhreinindi og er ekki lengur eins slétt og fín og hún var í bernsku. En rétt er að taka það fram, að betra er fyrir húð- ina að vera án krems held- ur en vatns og sápu. Mynd Þessi er tekin í Albert Hall í London að loknum hljómleikum og pilturinn, sem stúlkurnar eru að reyna að skipta á milli sin, er sjálfur Adam Faith. Hann er vinsælasti dægurlagasöngvari Englands fyrir utan Cliff Richard og byrjaði feril sinn á því að starfa í kvikmyndaveri við að klippa niður filmur. En hann uppgötvaðist brátt og sló allt í gegn með töfrandi fallegu brosi, skemmtilegri rödd og ljósum lubba. Adam þykir einstaklega skemmtilegur og vel greindur og er frægur fyrir persónulegar skoðanir. Hann er frekar lágvaxinn og ekki smáfriður á móts við súkkulaðidrengi eins og Cliff, Ricky eða Presley, en þegar hann byrjar að syngja, hefur hann áheyrendur alveg á valdi sínu. I stuttu máli sagt, hann hefur persónutöfra. Adam hefur leikið í nokkrum kvikmyndum, sem orðið hafa mjög vinsælar og er ein þeirra „Beat Girl“, sem vonandi mun koma hingað innan skamms. Hið nýjasta, sem við höfum heyrt um Adam, er, að hann sé búinn að skrifa ævisögu sína, þó að árin séu ekki mörg, og nefnist sagan „Poor Me“. KyRTlLL 1. Skóla- og heimiliskyrtill úr ofnu efni. Stór vasi að fram- an, ermalaus, rúnnaður í háls- inn. Hálsmálið er kantað með skáböndum, sem hnýtt eru sam- an að aftan. 2. Kyrtill, sem nota má í allt. Hliðarföll með rúnnuðum könt- um og afrúnnuð samskeyti að aftan. Hneppt að aftan með stórum hnöppum. Jafnsíður og kjóll. ' 22 VIKAN VIKAN. 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.