Vikan


Vikan - 28.09.1961, Blaðsíða 35

Vikan - 28.09.1961, Blaðsíða 35
KÖKUUPPSKRIFTIR. Framhald af bls. 25. ásamt eggjunum, einu og einu í senn. Hveitinu er ásamt lyftiduftinu bland- að varlega saman við. Bakað er við jafnan hita neðarlega í ofninum (200°) í um 45—50 min. Á meðan er soðinn appelsinulögur: 100 gr. sykur, safi úr einni appelsinu og einni sítr- ónu og rifið hýði af einni appelsinu. Þessu er hellt volgu yfir nýbakaða kökuna og rifnu hýði stráð yfir. Kókoskökur (75 stk). 100 gr. kókósmjöl, 100 gr. hveiti, 100 gr. smjör, . 100 gr. sykur, rifið hýði af einni appelsínu, 50 gr. kúmen. Hnoðað er saman i lengjur, sem eru látnar bíða á köldum stað nokkrar klst., þar til Þær eru vel harðar. Þá eru þær skornar með beittum hníf í kökur, sem eru bakaðar við 225° í 4—5 mín. Eiga ekki að renna út á plötunni. AMOR FÆR HJÁLP. Framhald af bls. 7. sem fyrir utan stóð. — Hvað viltu mér? spurði hún hranalega til að leyna fátinu. — Ég er hérna með tvo aðgöngu- miða að frumsýningu í leikhúsinu í kvöld, sagði hann og lét sem ekkert væri. — Mamma er fús til að gæta Óla litla. Þú vildir kannski si.æða með mér kvöldverð, áður en sýningin hefst? Ég er á leiðinni til skrifstof- unnar, en ég kem heim aftur um fimmleytið. Hún hikaði andartak. Það væri dá- iialastom Balastone gluggatjöldin hafa rutt sér mjög til rúms um alla Evrópu. Fyrirliggjandi í stærðunum 40—260 cm. Hæð allt að 200 cm. Kristjdn Siprsson iif Laugaveg 13. Sími 13879. samlegt að fara i bezta kjðlinn slnn og koma á mannamót eina kvöld- stund. En ef hún færi út með Jan, mundi það verða upphaf að atburða- rás sem hún réði ekki við. Þótt hún hefði fyrir löngu leitt hann í öndvegi hjarta síns, varð endurminningin um hennar eigin svik við hann til þess, að hún neitaði að viðurkenna það fyrir sjálfri sér. — Nei, þakka þér fyrir, sagði hún og skellti á hann hurðinni. Hún kepptist við vinnuna, til þess að hún fengi ekki ráðrúm til að iðr- ast. Þegar á leið daginn, setti hún pott með þvotti í yfir gaslogann, en ætlaði svo að koma upp vindutjald- inu, sem fallið hafði úr hengslum sín- um, og nota til Þess tímann, meðan vatnið væri að hitna á pottinum. Með naglaþjöl I annarri hendi, þar eð hún átti ekki neitt skrúfjárn, steig hún upp á stól og hugðist síðan klífa upp í gluggakistuna, en missti Þá jafnvægið og féll yfir sig niður á eldhúsgólfið, slóst á leiðinni utan í stálklædda brúnina á eldhússborð- inu og sortnaði íyrir augum. Þegar hún vaknaði aftur til með- vitundar, lá hún ankannalega skökk og snúin á eldhússgólfinu, en mátti sig hvergi hreyfa fyrir óbærilegum sársauka í mjöðmum og öxlum. Óli litli stóð í eldhússdyrunum. Hún reyndi að brosa til hans, en tókst það ekki nema í meðallagi Hann seildist eftir púðurdósinni hennar; hún hlaut að hafa stjakað við litlu handtöskunni sinni í fallinu, þvi að ýmislegt smádót úr henni lá út um allt eldhússgólf. Og Annetta reyndi að rísa á fætur, en það varð einungis til þess, að hún missti meðvitund aftur. Óli sat á gólfinu og lék sér að seðla- veskinu hennar, þegar hún rankaði við. Hún lá kyrr og reyndi að átta sig. Þá veitti hún athygli einhverjum annarlegum nið, vatnið var farið að hversjóða i pottinum. Og allt i einu varð henni ljós sú hætta, sem yfir vofði. Innan skamms mundi sjóða upp úr pottinum og vatnið slökkva gaslog- ann, en þá hlaut gasið að streyma út óhindrað. Fólkið í íbúðinni á hæð- inni fyrir neðan var ekki komið heim enn Þá. Og Óli litli skildi að . sjálfsögðu ekki neitt. Hvað sem það kostaði, varð hún að rísa á fætur og skrúfa fyrir gasið, en um leið og hún reyndi, féll hún enn í öngvit. Andartaki síðar heyrði hún það gegnum dvalann, að suðuniðurinn i pottinum jókst. Hún varð að kalla á hjálp, áður en það yrði um seinan — Og þá mundi hún skyndilega eftir Jan. Hann hlaut að vera á leiðinn'- heim, — en hvernig átti hún að ná sambandi við hann? Óli . . . hún fór að gráta af geðshræringu, Þegar henni kom ráðið í hug. Hann var svo ungur, að ekki þýddi að reyna að gera honum það skiljanlegt með bendingum, að hann skyldi stinga dót- inu úr handtöskunni hennar út urn bréfraufina á hurðinni. Hún leit a hann i bæn og örvætingu. — Gefa pabba, . . . sagði hún allc í einu og vissi ekki, hvernig henni datt það í hug. — Gefa pabba, endur- tók hún og benti á smádótið á gólfinu. Og Óli skildi . . . Hann brosti hreykinn, þegar hann hljóp fram að hurðinni með seðlaveskið hennar, og svo heyrðist smellur í speldinu. Og svo bar hann fram varalitinn hennar, púðurdósina, vasaalmanakið og sígar- ettuveskið. Loks stakk hann lykla- kippunni út um bréfraufina, lagðist síðan á hnén og beið þess, að Jan kæmi og byrjaði leikinn. Um leið sauð upp úr pottinum, loginn slokknaði, og Annetta fann gasþefinn leggja að vit- um sér. Hún óskaði þess og bað, að Óli litli kæmi ekki inn í eldhúsið, og þegar það ekki varð, hugsaði hún með sér, að hún mætti vera Jan inni- lega þakklát fyrir, að hann skyldi hafa tekið sliku ástfóstri við dreng- inn þrátt fyrir íramkomu hennar. Óli sat og beið við bréfrauflna. Gas- Olivetti Multisumma 22 Leggur saman, dregur frá og margfaldar. Er mcð 10 lykla leturborð, og kreditsaldó, snýst 220 snúninga á mínútu og er því sérlega fljót að margfalda. Árs ábyrgð. olivetti----------------------------- G. HELGASON & MELSTEÐ H.F. RAUÐRÁRSTÍG 1 — SÍMI 11644 móðan var orðin svo mikil, að Ann- etta fann til höfuðþyngsla. Hún heyrði útidyrahurðinni hrundið upp og síð- an skellt að stöfum. Andartaki síðar skríkti Óli ánægjulega. Hún reyndi að kalla á Jan, en röddin kafnaði í kverkum hennar. Hún heyrði, að hann ræddi eitthvað við drenginn gegnum bréfraufina og að þeim kom vel ásamt. Svo varð skyndilega þögn. —- Annetta! hrópaði Jan. — Opn- aðu, Annetta ... Og loks tókst henni að kalla: — Lyklarnir liggja á dyraþurrkunni ... Henni sortnaði enn fyrir augum. 1 gegnum húmdökka móðu sá hún Jan birtast í dyrunum. Svo heyrði hún hratt fótatak hans og að hann opn- aði í skyndi alla glugga og dyr. Hún fann hressandi gust á andliti sér ... — Hamingjan góða, sagði Jan titrandi röddu. — Hvað hefur komið fyrir ?; — Ég datt niður af stól og hef víst meitt mig talsvert, svaraði hún grát- andi. — Ó, Jan ... ég var orðin svo hrædd um, að þú kæmir ekki fyrr en allt yrði um seinan. — Það býr læknir á næstu hæð hérna fyrir ofan, sagði Jan. — Við urðum samferða inn úr dyrunum. Við skulum skreppa og sækja hann, Óli minn. Hann tók drenginn á arm sér og hljóp við fót fram ganginn. Læknir- inn kom andartaki síðar. Eftir nokkra athugun kvað hann meiðslin ekki hættuleg, — tognun í mjöðm og hand- leggurtnn úr liði um öxl, — en að sjálfsögðu yrði hún að komast sem fyrst i sjúkrahús. Og hann bauðst til að hringja á sjúkrabíl. Jan setti Óla litla gætilega á gólf- ið og kraup við hlið Annettu. — Hvernig fer nú með Óla, á með- an ég ligg i sjúkrahúsinu? spurði hún hikandi. — Hafðu engar áhyggjur af þvi, ástin mín, svaraði hann blíðlega og kyssti hana á kinnina. — Fyrst fylgj- um við þér til sjúkrahússins, og svo fer ég með hann heim til mömmu, — en þó þvi aðeins, að þú lofir því, að ég megi svo gæta þín, þegar þú kemur heim aftur ... — Já, svaraði hún og brosti. — Annars á ég á hættu, að Óli gerl uppreisn ...

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.