Vikan


Vikan - 28.09.1961, Blaðsíða 2

Vikan - 28.09.1961, Blaðsíða 2
CLOZONE er grófkornað þvottaefni sem náð hefur miklum vinsældum hér sem erlendis. CLOZONE hefur hlotið viðurkenningu sem úrvals framleiðsla. CLOZONE er drjúgt og kraftmikið — sléttfull matskeið nægir í 4,5 lítra vatns. CLOZONE er þvottaefnið sem leysir vandann með ullarföt og viðkvæm efni. CLOZONE fer vel með hendur yðar. CLOZONE gerir þvott yðar hvítan sem mjöll. CLOZONE ER HVÍTAST. Heildsölubirgðir: EGGERT KRISTJÁNSSON & CO. H.F Simi 11400 íslenzkir ríkisborgar... Póstinum hefur borizt fjöldi bréfa um spurninguna, sem rædd var í 38. tbl., — hvort stuðla bæri að því, að er- lendir menn fengju íslenzkan ríkisborgararétt. Rúmsins vegna verðum við að láta okkur nægja nokkrar glefsur úr þessum bréfafjölda: .... hvort það sé eiginlega mein- ingin að má út islenzkan þjóðar- svip og íslenzkan anda? Á að gera ísland að griðastað fyrir alls kyns óþjóðalýð? . . . Hvað ætla stuðnings- menn þessa ósóina að gera, ef 10.009 Hottentottar sælcja um íslenzkan rikisborgararétt. . . . Bragi. . . . Ég er svo sem enginn nazisti, . . . en Guð minn almáttugur! H. B. . . . Og auðvitað tel ég rétt, að erlendum afburðamönnum sé veittur íslenzkur ríkisborgararéttur, ef þeir geta orðið til þess að hrista þetta slen af þjóðinni. Þetta er sem sagt sjálfsagt, — en ekki þyrði ég að setja einhver viss takmörk. Ég er íræddur um, að það verði höfuð- vandamálið........ Grýla. . . . Definitely. A foreigner, who is willing to serve your country, will always be an outcast, so to speak, until he gets his citizenship. Besides — my wife demands it: „Either an Icelandic husband or no husband!“ Now, who wants a de- pressed little lady up here? Takk fyrir. Útlendingur (I suppose you guessed as much!) Framtíðarríkið... ? Viðtalið við Sverri Runólfsson var fyrirtak. Mætti ekki reyna þetta und- ursamlega fyrirkomulag hérna í svo sem ár. . . Ég er hræddur um, að það yrði stórt högg fyrir margan ó- nytjunginn í okkar þjóðfélagi. . . Ivonni. . . . . og þetta getur svo sem verið gott og blessað, en hræddur er ég um, að það þyrfti meira en litinn galdrakarl til þess að koma þessu á hér heima. — Það væru nefnilega pólitísku félögin, sem þyrftu að koma þessu fyrirkomulagi á, — og mér er sem ég sjái . . . Bóbóbó.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.