Vikan


Vikan - 29.03.1962, Síða 12

Vikan - 29.03.1962, Síða 12
Hljómsveit Björns R. Einarssonar. Björn R. Einarsson, trombón, söngv- ari, útsetjari Gnðjón Pálsson, pfanó Vilhjálmur Guðjónsson, klarinet og altó-sax Jónas Dagbjartsson, trompet Erwin Koeppen, bassi Guðmundur R. Einarsson, trommur. Lúdó-sextettinn. Hans Kragh Júlíusson, trommur Sigurður Þórarinsson, píanó Hans Jensson, tenór-saxófónn Sigurður Gunnarsson, gítar Sigurður Baldvinsson, bassi Stefán Jónsson, söngvari. Hljómsveit Andrésar Ingólfssonar. Andrés Ingólfsson, altó-saxófónn Elfar Berg Sigurðsson, pfanó Gunnar Sveinsson, vibrafónn Ólafur G. Þórhallsson, gítar, út- setjari Gunnar Sigurðsson, bassi Alfreð Alfreðsson, trommur Harald G. Haralds, söngvari. Hljómsveit Þorsteins Eiríkssonar. Þorsteinn Eiríksson, trommur Guðni Guðnason, harmonika Árni ísleifsson, pianó, útsetjari. Hljómsveit Guðmundar Finnbjörnss. Guðmundur Finnbjörnsson, altó- saxófónn Jóhannes Jóhannesson, harmonika Ásgeir Sverrisson, harmonika Taage Möller, píanó Haraldur Baldursson, gítar Karl Karlsson, trommur Hulda Emilsdóttir, söngkona. Hljómsveit Magnúsar Randrup Magnús Randrup, harmonika tenór-sax. Sigurgeir Björgvinsson, píanó harmónika Gunnar Mogensen, trommur Ó.M.-kvintettinn. Gunnar Bernburg, trompet Leó Jónsson, píanó Erik Petersen, gítar Baldur Arngrímsson, gítar Guðmar Marelsson, trommur Agnes Ingvarsdóttir, söngkona. NAUST-tríóið. Carl Billich, píanó, útsetjari Jan Morávek, fiðla, útsetjari Pétur Urbancic, bassi. no veuum við beztu hljóðfæraleikara íslands og setjum saman DANSHIJÖMSVEIT ÁRSINS Hér eru mikil tíðindi og merk fyrir alla þá, sem unna dansmúsík. Vikan hefur forgöngu um það, að koma saman danshljómsveit ársins — síðan verður hald- inn mikill og merkilegur konsert og það verður atburður ársins í heimi dans- hljómlistar á íslandi. Vikan hefur að vandlega athuguðu máli valið 17 beztu danshljómsveitirnar. Hér birtist listi yfir þær, meðlimi þeirra og hvaða hljóð- færi þeir hafa með höndum. Fyrir þann stóra hóp, sem sækir skemmtistaði að staðaldri og fylgist með í dansmúsik er það auðvelt að taka þátt f þessari kosningu. Jafnvel þótt þeir þekki ekki mennina með nöfnum, þá hafa þeir ef til vill tekið eftir því, að þeim fellur bezt við píanóleikarann á þessum stað og gítarleikarann á hinum. Hérna geta þeir séð, hvað þeir heita og atkvæða- seðillinn er hér til hægri; þið skrifið aðeins eitt nafn við hvert hljóðfæri. Við höfum „beztu hljómsveitina“ mcð í kosningunni og hún mun koma sér- staklega fram á hljómleikunum, sem haldnir verða í einhverju af samkomu- húsum bæjarins í maí í vor. Það getur ekki orðið fyrr, vegna þess að frestur til að skila atkvæðaseðlum rennur út 15. apríl, síðan þarf að birta úrslitin í blaðinu, láta mennina koma saman og æfa o. s. frv. Talning atkvæða fer fram 15. apríl og mun fulltrúi frá Félagi íslenzkra hljóðfæraleikara verða viðstaddur talninguna. Það eru sem sagt lesendur Vikunnar sem velja hljómsveit ársins og með henni munu koma fram sú söngkona og sá söngvari sem flest atkvæði hljóta. Starf útsetjarans er mjög þýðingarmikið og vandasamt og hlutur hans er í rauninni mjög stór í nútíma dansmúsík. Það er tekið fram, hver útsetur fyrir flestar hljómsveitirnar á meðfylgjandi lista. Atkvæði verða því aðeins tekin gild, að þau verði á lista, sem klipptur hefur verið út úr blaðinu.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.