Vikan


Vikan - 10.05.1962, Side 10

Vikan - 10.05.1962, Side 10
 ULALLM M Eftir Jónas Guðmundsson, stýrimann. Drengirnir gengu eflir fjörunni þar sem lognaldan snarkafSi 1 sandinum: Sjórinn var sléttur í dag og fjaran angaði af salti og þara. Þeir voru búnir að eigra eftir fjörunni innan frá bryggjum, ýmist fremst á klöppunum, eða á bökkunum fyrir ofan, þár sem baldursbráin óx i breiðum innan um rytjulega grasbúska. Þar fyrir ofan tóku v'S túnskæklarnir og mýrarnar. Við og við fundu drengirnir spýtur, eða dósir, sem þeir fleygðu út á sléttan sjóinn; siðan gripu þeir smásteina og reyndu að hitta spýturnar og dósirnar. Dósir voru betri, þvi það var hægt að sökkva þeim. eins og skipunum í striðinu. Spýturnar og dósirnar voru óvinaskip og þegar eitthvað hitti ráku þeir upp óp. En oftast bar straumurinn herskipin úr kastmáli áður en þeim tókst að hitta, og þá héldu þeir áfram ferð sinni út fjöruna og spörkuðu krossfiskum heldur en ekkert. Það var erfitt að hitta á löngu færi. Sólin var hátt á himninum og i fjarska blánaði fyrir strönd- inni í landi. Þeir voru vanir að flækjast aha leið þangað, sem klettarnir byrjuðu, en klettarnir gengu í sjó fram vestast á eynni, þar snéru þeir við og héldu inn aftnr. Stundum fóru þeir þó ekki alla leið, bátur að koma að. eða há strandferðaskipið, en oftast vissu þeir bó um komu þess fvrirfram og þá fóru þeir sjaldnast langt frá bryggiunni. Oliuskipið kom stundum, og um leið og búið var að binda spurði skipstiórinn: Grjótið enn i leiðslunni? Það var nefnitega lausagrjót einhvers staðar í leiðslunni, sem krakkar höfðu hent inn í rörin begar leiðslan var lögð. Hreppstjórinn svaraði: — Á ég að brjóta gólfið í frystihúsinu? Skipstjórinn sagði, að betta væri i siðasta skipti, sem hann kæmi með olfu þar til búið væri að hreinsa grjótið. Svo skellti hann brúarglugg- anum hraustlega. í fyrstu höfðu drengirnir sárskammazt sín fyrir grjótið í leiðsl- unni og orðið óttas’egnir yfir því að olia kæmi ekki i eyjuna aftur. Eða hvernig átti að róa, ef ekki var til olía á mótorana? Þeim fannst hann harðbrjósta skipstjórinn á olíuskipinu að vera að setja grjótið fyrir sig. En fliótt sáu þeir, að ekkert var að óttast. Það var eins konar fastur liður i viðkomu oliuskipsins í eyjuna að tala um grjótið í leiðslunni. Ekkert var að óttast. Eflaust yrði grjót í leiðshinni um alla eilffð, og skipið héldi áfram að koma með olíu í eyjuna. Þar sem ekki bólaði á neinu skipi héldu drengirnir áfram út að hömrunum. Þegar nálgaðist hamrana, mjókkaði fjaran og ofan við hátt barð við túnið i Nesi. Það' var lftið tún og mikið sendið. Þó drengirnir væru ekki gamlir, tfu ára, vissu þeir að Gvendur f Nesi var alltaf reiður og að hann var nýflutt- ur i eyjuna. Þeir vissu, að betra var að hafa hreint borð við Gvend. “ Efst á barðinu voru leifar af girðitlgu og i fjörtlnhi íágtl tveir ormétnir staurar, sem hofðtl bersýnilega brotnað af elli og oltið i fjöruna. Þetta voru herskip f !agi og áður en varði, var ahnar kominn á flot og grjóthriðin hafin. Drengirnir litu þó við og við upp að Nesi til að svipast um eftir Gvendi, hvort iiann sæi til ferða staursins. Þetta var svo sem enginn staur lengur, hafði einn drengjanna sagt og lioraði fingri í stærðargat, sem einu sinni hafði sýnilega verið kvistur. Veiklulegur drengur, sem ný- kominn var frá landi efíir langa legu, sagði: Hann fer varla að gera veður út af einum staur. En hann þekkti ekki Gvend í Nesi. Síðan hann fluttist í kotið, hafði lionum tekizt að fá alla drengi upp á móti sér. Þeir máttu ekki ganga yfir túnskækilinn, ekki fara ofan í trilluna hans þegar þeir veiddu bryggjuufsann. Allt var bannað hjá Gvendi og hann sat ekki við orðin tóm, heldur hljóp á eftir þeim og steytti hnefaná. Það kom sjaldan fyrir, að hann náði þeim, þvi strákar eru fljótari að hlaupa en fullorðnir sjómenn, og þá sjaldan hann náði þeim lúskraði hann þeim svikalaust, ef engin skarst i leikinn. Að mega ekki veiða bryggjuufsa úr triliununi, ef maður vildi, var mjög torskilið fyrir slráka í þessari eyju, að maður tali nú ekki um að stytta sér leið, ef maður skemmdi ekkert. Veiklulegi drengurinn, sem hafði verið til læknis í landi, kast- aði ekki lengur steinum. Hann hafði byrjað, meðan stutt var í staurinn, en þegar straumurinn hafði borið hann lengra frá landi hætti hann, en strákarnir héldu áfram að sökkva skipinu- Steinarnir höfðu misst ferðina, þegar þeir skullu i vatnið, ýmist of langt, eða stutt, eða til hliðar. Þeir hittu sjaldnar núna, en einstöku sinnum féll þung sprengja yfir óvinaskipið við fagn- aðarlæti. Þá sá drengurinn, hvar maður kom hlaupandi niður að sjónum. — Það var Gvendur. — Hann er að koma strákar, sagði hann. Hann Gvendur er að koma. Þeir hættu að kasta sprengjunum yfir óvininn og litu upp i áttina að Nesi, þar sem Gvendur kom á sprettinum. Og þeir biðu ekki boðanna, heldur ruku af stað, beint af augum upp brekkuna og svo eftir bjarg- brúninni. Drengurinn, sem hafði verið veikur var ekki eins fljótur af stað. 1 fyrstu skildi hann ekki, hvað var að óttast, en svo runnu á hann tvær grimur og hann hélt á eftir hinum þegar hann sá að Gvendur breytti stefnunni á hlaupunum og til hans. En það dró saman. Það er erfitt að hlaupa hratt eftir að hafa verið rúmfastur. í þann mund er drengurinn var kominn upp á bjargbrúnina og ætlaði að hlaupa meðfram henni eftir félögum sínum, skrikaði thonum fótur og hann féll fram fyrir sig, og Gvendur steypti sér yfir hann eins og rándýr yfir bráð. Dreng- urinn heyrði andardrátt hans hásan og móðan og fann sveitt brjóst hans þrýstast á bakið á sér: — Nú, sagði Gvendur, náði ég þér, bölvaður þrjóturinn. Orðin komu i smáskömmtum, því hann andaði ótt og títt af mæði. Veiztu hvað ég geri við þig? Veiztu hvað ég geri við þá, sem stela girð- ingarstaurum i Nesi? Ég sýni þér soldið i hömrunum og hann kreppti hnefana utan um holdið i grönnum upphandlegg drengs- ins, sem lá á grúfu í mosadýinu. Drengurinn hélt, að hann myndi rífa holdið af beinunum, en svo sleppti hann takinu og greip þess í stað utan um fótleggi drengsins og reis á fætur. Drengurinn hafði ekki sagt neitt, heldur aðeins beðið átekta. í fyrstu var hann feginn, að geta kastað mæðinni, en svo þegar hann heyrði, hvað Gvendur var æstur, hætti honum að standa á sama, og þegar hann fór að drösla honum i átina að bjarg- brúninni greip hann hræðilegur grunur. Ætlaði hann að fleygja honum fram af? Og hann rak upp voðalegt vein og veikir fing- tirnir Vrepptust i blautah mosann og hann reyndi án árangurs að ná handfestu og hann vatt upp á langan veikan likamann, krcppti fættirna og reyndi með því móti að losa sig. En Gvendur herti takið og þannig stympuðust þeir nær bjargbrúninni. Loks gafst drengurinn upp og höfuðið seig fram af brúninni og síðan brjóstið. Hann þorði nú ekki að hreyfa sig meira og við blasti stórgrýtisurðin langt fyrir neðan í rótum bjargsins. G-vendur lót hann síga áfram, þar til hann lafði fram af brúninni. Hann hé!t föstu taki um fælur drengsins, rétt um ökklann, en nú fann drengurinn, að hann var að losa um takið, opna greiparnar litið eitt og loka þeim aftur, eins og hann væri að gera það upp við sig, hvort hann ætti að láta hann falla i urðina. Framhald á bls. 34. 10 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.