Vikan


Vikan - 10.05.1962, Side 14

Vikan - 10.05.1962, Side 14
„Hvern ætli hann geti drepiö, bölv- aður lúsablesinn." Rödd Bernardos var ögrandi sem fyrr. Riff stóðst ekki lengur mátið. Hann rak upp reiðiöskur, hratt Tony til hliðar, greip fyrir kverkar Bernardo svo hart og snöggt að hann féll við, en aðeins andartak, þvi að Riff kippti honum á fætur og gaf honum um leið svo vel úti látið kjaftshögg, sem kraftar hans og aðstaða leyfðu. Bernardo fann munn sinn fyllast blóði, en laut við og skallaði Riff leiftursnöggt beint i andlitið. Riff missti jafnvægið í svip og steig skref aftur á bak; það dugði Bernardo til að grípa til hnífsins, og þegar hann þerraði blóðði af vitum sér, sá hann hvar bliki sló á blað hnífsins i hendi Riffs. Þá hafði bardaginn snúizt eins og hann kaus helzt; hann skipaði Hákörlunum að láta þetta afskipta- laust, þetta var sem hann vildi. Hann sá að Tony hugðist skakka leikinn, en í sömu svifum brugðu þeir við, Hreyfillinn og Diesillinn, gripu um arma hans og héldu honum föstum. Þeir foringjarnir nálguðust hvor annan danskenndum skrefum, sveifl- uðu hnífunum í hringi og leituðu lags. Þeir höfðu báðir svo mikla þjálfun og reynslu í slikum bardaga, að þeir gerðu sér Ijóst að hann stendur aldrei lengi; venjulega ræður fyrsta hnífs- lag úrslitum; þau verða aldrei fleiri en tvö eða þrjú. Áhorfendurnir slógu óhjálfrátt hring um þá; Hreyfillinn og Diesillinn urðu svo æstir, að þeir linuðu takið á örmum Tonys, og fyrr en þeir vissu hafði hann slitið sig af þeim. Nú gerðist margt samstundis, Riff hrópaði, að hann skyldi ekki skipta sér af þessu og sveiflaði vinstri hend- inni til áherzlu svo síðan var óvarin brot úr andrá; Bernardo brá hnífnum leiftursnöggt til hliðar og upp á við og blaðið gekk inn á milli rifja Riffs unz stóð í hjarta. Riff var dauður áður en hann hneig niður. Tony rak upp angistarvein og greip hnífinn úr aflvana hendi vinar síns um leið og hann stökk fram svo skjótt, að Bernardo stóð berskjaldað- ur fyrir lagi hans og blaðið gekk að hjöltum í síðu hans. Hann hneig til jarðar og var dauður. Allt hafði þetta gerzt með svo skjótum hætti að það virtist óraun- verulegt, en dauðahryglan, líkamarn- ir sem láu í blóði sínu i íorinni, svipt- ir lifi, sviptir möguleikanum til að láta stjórnast aí hatri og reiði, voru hins vegar óbærilega raunveruleg staðreynd. Þá heyrðist skerandi vein aðvörunarblístru lögreglubílsins úti á þjóðveginum uppi yfir; það færðist óðfluga nær og um leið og bílnum var hemlað, beindust leitarljós hans út fyrir veginn, en jafnt Þotur sem Ilákarlar tóku til fótanna og létu myrkrið skýla sér. Hreyfillinn greip um úlnlið Tonys og hljóp af stað. Augu Tonys voru blinduð tárum og hann kallaði hástöf- um nafn Maríu hvað eftir annáð — og það var eins og aðvörunarblístran svaraði honum með skerandi veini sínu. SJÖUNDI KAFLI. Danstónlist, tryllt, seiðandi og dill- andi barst frá ferðaviðtækinu út í náttmyrkrið og stúlkurnar, sem höfðu safnazt saman uppi á þakinu, hreyfðu bol og lendar ósjálfrátt eftir hrynj- andinni, en augu þeirra störðu út í myrkrið, rök og heit af þrá, kviða og ástríðu. Klukkan var orðin hálf- tiu; þetta hlaut þvi að haía verið hörð orrusta — og Það þýddi að garp- arnir myndu verða frekir til fjörsins að henni lokinni, og stúlkurnar biðu þess með brennandi óþreyju að mega gefa sig hamslausum losta þeirra á vald. Consuelo dró litinn spegil upp úr tösku sinni, skoðaði sig i honum um hrið. „Þetta er síðasta nóttin, sem ég ber ljóst hár,“ sagði hún. „Skiptir engu máli,“ varð Rosaliu að orði. „Það hafði ég þó haldið,“ svaraði Consuelo og stakk speglinum aftur 1 tösku sína. „Spákonan sagði Pepe að dökkhærð stúlka mundi valda þátta- skilum i lifi hans." „Og það er Þess vegna, sem hann vildi ekki lita við þér áður en hann fór í bardagann?" Rosalia var svo hreykin af skarpskyggni sinni, að hún gekk þangað sem Maria stóð ein sins liðs út við handriðið, til þess að segja henni frá uppgötvun sinni — að Consuelo væri jafnvel enn heimskari en hún létist vera. Lögreglubílarnir óku á fleygiferð um strætin fyrir neðan og Þeyttu aðvörunarblistrur sínar án afláts. Það fór hrollur um Maríu. Það voru viss hljóð, sem henni var ógerlegt að þola í eyrum sér, sem hún hataði og ótt- aðist í senn, og veinið í aðvörunar- blístrunum boðaði alltaf eitthvað illt — sjúkleika, slys, dauða eða eldsvoða — þótt það kæmi henni sjálfri ekki við. „Það varð ekkert úr bardaganum," sagði hún við Rosaliu. „Enn ein spákonan?" svaraði Rosa- lía ertnislega. Maria starði út yfir handriðið, nið- ur í hringiðustraum ljósanna. Spuröi sjálfa sig hvort Þess mundi enn langt að bíða að Tony kæmi aftur. Ekki þess vegna, að hann þyrfti að hafa hraðann á til að ræða við foreldra hennar; þau höfðu farið í kvikmynda- hús með yngri systrunum og voru ekki væntanleg heim íyrr en eftir góða stund. María hafði tekið þeirri ákvörðun þeirra með meiri fögnuði, en hún Þorði að láta uppskátt. „Hvert ætlar þú með Chino eftir bardagann, sen> Þú segir að ekkert hafi orðið úr?“ heyrði hún Consuelo spyrja. María sneri sér að henni og brosti dult. „Égg fer ekki neitt með Chino,“ svaraði hún. „Hún ætlar að reyna að telja okk- ur trú um að hún sé einungis að halda sér til fyrir okkur,“ sagði Rosalia og benti á Maríu, þar sem. hún stóð í sínum hvíta kjól. „Nei, svo sannarlega er ég ekki að halda mér til fyrir ykkur.“ María hristi höfuðið. Hún virti þær stöllur sínar fyrir sér og spurði sjálfa sig að hve miklu leyti henni væri óhætt að trúa þeim fyrir leyndarmálinu. „Getið þið þagað yfir leyndarmáli ?" spurði hún. Consuelo klappaði saman lófum. „Ég er sköpuð til þess að mér sé trúað fyrir leyndarmálum. Ef þú trúir mér fyrir því, er það sama og Þú trúir öllum fyrir því, svo þú Þarft ekki að leggja á þig það ómak að útbreiða það sjálf.“ „I kvöld er ég að bíða eftir pilt- inum, sem ég ætla að giftast," mælti Maria. „E’ins og slíkt sé eitthvert leyndar- Þoturnar og Hákarlarnir tóku til mál." Það leyndi sér ekki að Consuelo fótanna og létu myrkrið skýla sér. varð fyrir vonbrigðum. „Veiztu það, /

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.