Vikan


Vikan - 10.05.1962, Blaðsíða 21

Vikan - 10.05.1962, Blaðsíða 21
Það var fyrir tveim árum, að blaðamaður frá Vikunni hitti að máli unga, tjóshærða stúlku, sem afgreiddi í Regnboganum i Bankastræti og tók af henni nokkrar myndir, sem birtust í blaðinu. Þá var hún 17 ára gömul, lagleg stúlka með tilgerðar- lausa og óvenjulega aðlaðandi framkomu. Hún hafði að vísu spreytt sig á dægurlagasöng eins og margar stúlkur á þeim aldri og hún söng og dans- aði i revíu, sem þá gekk í Sjálfstæðishúsinu. Það gerði hún mest að gamni sínu og án þess að gera sér vonir um frama á því sviði. Þessi unga stúlka heitir Sigrún Ragnarsdóttir. Siðan myndirnar birt- ust af henni í Viluinni fyrir tveim árum siðan hefur ýmislegt óvenjulegt á daga hennar drifið. Ég hitti hana nýlega á heimili hennar við Skóla- brautina í Kópavogi, sem er mjög ámóta og aðrar götur í því plássi; forarieðja og stórgrýti á vixl, en nýbyggð og ófrágengin hús á báða vegu. Nú fór ég ekki til þess að hitta laglega afgreiðslu- stúlku úr Regnboganum, heldur fræga fegurðardís, sem á þessum tveim árum liefur orðið fegurðar- drottning íslands, komizt i úrslit og orðið ein af fimm efstu á Langasandi og síðan ferðazt nálega kringum hnöttinn í krafti þeirrar viðurkenningar, sem hún hafði fengið- En nú var hún komin heim. Og þarna stóð hún eins og fjallkonan sjálf á tröppunum, þegar ég skálmaði heim að húsinu og heit aprílsólin skein á hreina, nýfallna mjöll svo maður fékk ofbirtu i augun. Jú, hún hafði breytzt eitthvað ofurlitið. En ekki meir en eðlilegt og sjálfsagt má teija fyrir unga stúlku á þessum aldri. Hún hafði þroskazt, en i meginatriðum var það sú sama Sigrún, sem við hittum að máli fyrir tveim árum. Hún var jafn tilgerðarlaus og elskuleg eins og þá og virðist hafa haft nægilega sterk bein til þess að þola góða daga. — Ég er svo himinlifandi yfir því að vera kom- in heim, sagði hún og það var auðséð, að hún meinti það. Hún hafði komið með heilan stafla af verðtaunastyttum og skjöldum og þeir stóðu i röð á pianóinu. — Hvað var þessi útivist þín orðin löng, Sigrún? — Niu mánuðir. Keppnin á Langasandi var i júli í fyrrasumar. Eftir það var ég á Langasandi fram i desember og bjó hjá frú Swanson, konu af is- lenzkum ættum, sem komið hefur talsvert við sögu í fegurðarsamkeppninni á Langasandi. Hún reynd- ist mér alveg einstaklega vel. — Og hvað hafðirðu fyrir stafni? — Það var nú ýmislegt. Ég var tjósmyndafyrir- sæta og vann meðal annars við að auglýsa íslenzk- an fisk hjá fyrirtæki, sem heitir Wilbur Allen og hefur umboð fyrir hann. Það var mjög gott upp úr því að hafa, enda þótt vinnan tæki stuttan tima og oftast gerði ég ekki neitt annað en að láta mér liða vel og mér fannst það heldur leiðigjarnt. En veðrið er dásamlegt þarna; alltaf sól og bliða og ef ég þyrfti að kjósa um það að eiga einhvers staðar annars staðar heima heldur en á íslandi, þá mundi ég kjósa Kaliforníu. Þar búa líka nokkrir íslend- ingar og þeir hafa komið sér mjög vel áfram. — Þú hefur náttúrlega komið til Hollywood. — Já, en þar vildi ég ekki vera. Los Angeles er svo óskaplega mannmörg og það er svo mikill hraði á öllu þar. Mér fannst Hollywood ekkert himnaríki, síður en svo, en mér er heldur ekkert áfram um að komast að i leiklist og kvikmyndum. Ég kom bæði í sjónvarps- og kvikmyndaver og það hreif mig ekki neitt. — Nú varst þú vön að koma fram og syngja opinberlega hér heima. Gafst þér tækifæri til þess fyrir vestan? — íig hef aldrei haft mikið álit á mér sem söng- konu, enda þótt ég ynni fyrir mér heima um tíma með söng. En ég gerði það að gamni mínu, að ég fór lil þekkts kennara þar vestra og bað hann um að segja mér álit sitt á söngrödd minni og í hverju mér væri helzt áfátt. Ég er hálf feimin að segja frá þvi, en hann varð svo hrifinn af röddinni að hann vildi drífa mig til þess að syngja inn á plötur upp i Hollywood. Ég var til með að reyna það, en svo liöguðu atvikin því þannig til, að ég fór í langt sýningarferðalag, sem tók hálfan þriðja mán- uð. Ég ætlaði að fara til hans að ferðinni lokinni og syngja, en þá var ég orðin svo uppgefin á þessu lífi og ákveðin að komast heim sem fyrst, að ég hætti alveg við það. Þessi ferð var farin fyrir at- beina auðjöfurs á Filipseyjum. Hann var kallaður Sigrún Ragnarsdóttir í heimsókn hjá innfæddri fjölskyldu á Filippseyjum. Húsið er úr einhverskonar bambus. Sigrún Ragnarsdóttir varð Ungfrú ísland 1960. Hún tók þátt í hinni alþjóðlegu fegurðarsamkeppni á Langasandi í fyrrasumar og varð fimmta í röðinni eins og allir muna. — Sigrún var níu mánuði í ferðinni, hefur farið langleiðina kringum hnöttinn, verið fótómódel og sýningarstúlka, en kýs ísland umfram allt og hefur sagt skilið Framhald á bls. 33. við ævintýri í bili

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.