Vikan


Vikan - 10.05.1962, Side 27

Vikan - 10.05.1962, Side 27
Þú ert í linnulausu kapphlaupi við tímann, sískim- andi og hlerandi eftir boði hans og banni. I hlekknum um úlnlið þinn mælist hagsýni þín og trúnaður. Verður þú of seinn í vinnuna, á fundinn, á stefnumótið? Varð annar sneggri að grípa hverfult tækifærið og eigna sér hagnað sem þú áttir von á? «1 mlmm mÍIMÉÍ " i - í : • -V;:; f SIÐMENNIN GARHAFTI. ( Hefir ])ú fundiS til hlekkjanna, sem þú berð? Þú hreyk-' ir þér í ímynduðu frelsi, en hlekkur tímans er læstur uin úlniið þinn. Þegar þú vaknar að morgni, kemur ])ér vakl hans strax í hug, undir ánauð hans liður dagurinn, og um eið og þú leggst til hvíldar, horfir þú kvíðinn fram á timaþröng næsta dags, jafnvel vikunnar allrar. Þú ert i linnulausu kapphlaupi við tímann, siskimandi og h erandi eftir boði hans og banni. í hlekknum um úln- :ið í'i;:n mæiist hagsýni þín og trúnaður. Verður þú of seinn í vinnuna, á fundinn, á stefnumótið? Varð annar sneggri að grípa hverfuit tækifærið og eigna sér hagnað, sem bú áttir í vonum? Ef þetta á við þig, þá ertu nútimamaður. Frá fyrstu bernsku er óstýrilátt eðli barnsins laðað sveigt og ])vingað undir kröfu siðmenningarinnar. Sú krafa verður sifellt nærgöngulli við sjálfhverft og dreym- ið frumeðlið. Siðmenning nútimans er orðin svo flókin og fjarlæg því fábreytta frumstæðingsviðhorfi, sem mannkynið bjó við lengsta tíð, að barnið verður að fórna eðli sínu til hálfs, ef það á að standast kapphlaupið við timann og valda aðlögunarkröfum hennar. Nýfætt barn á líf sitt að öllu leyti undir umhyggju annarra. Þörf þess er takmankalaus, og því er sjálfselska þess alger. Það kann aðeins að njóta þess, sem aðrir veita, og sleppir engum þægindum sársaukalaust. En móðirin tekur strax að venja það við stillingu og sjálfs- afneitun, mikilvægustu aðlögunarkröfur siðmenningar- -innar. Hún temur því reglubundna stundvisi með næringu og svefn, hreinlæti gagnvart nauðþurftum, bindindi við æsandi snertingu kynfæranna. Jafnvel á ást sína verður barnið að leggja hömlur. Það situr ekki eitt við ástaryi móður sinnar; systkini, maki, starfsskyldur gera einnig kröfu til hennar. Eruinstæð baráttuhvötin má ekki einu sinni fá óhindraða framrás; ekki aðeins að barnið sæti ámæli frá öðrum, nei, ásökunin sprettur brátt fram i huga þess sjálfs. Þá er samvizkan vöknuð og segir til sín, ])cssi óþægilega rödd samfélagssiðgæðisins i brjósli einstaldingsins. Með henni hefst sú tvíhverfð og togstreita, sem einkenn- ir sálariíf hins siðmenntaða manns. Hversu mjúk sem móðurhöndin var, þvingunarlaust varð barnið ekki hneppt í spennitreyju siðmenningarinnar. Á þvi fær margur að kenna síðar. Hinar hemjulausu frumlivatir liafa ekl i ávallt tamizt og göfgazt á þann hátt, að sálrænt sam- ræmi sé tryggt. Þvl lenda þær, frumsjálfið, eins og 1 rer nefnast, oft í fullri andstöðu við siðgæðið eða yfirs.'álfið, eins og það hefir formazt í vitund einstaklingsins. Frum- sjálfinu þykir þrengt að sér um of, það sér al s staðar bönn og takmörkun. Þvi er það sifellt I uppreisnarhug, og það kostar bæði orku og lipurð að halda því I skefjum. SJÁLFIÐ OG SAMFÉLAGIÐ. I átökunum milli frumhvata og siðrænnar hefðar reyn- Frumhald a bls. 33. VIKAN 27

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.