Vikan


Vikan - 21.06.1962, Blaðsíða 22

Vikan - 21.06.1962, Blaðsíða 22
Hér er allt við höndina Síðan Volkswagen kom til sögunnar, hafa verið gerðar fjölniargar tilraunir til þess að keppa við hann. Það eru einkum Evrópumenn sem lagt hafa stund á smábílagerð með góðum árangri, en útkoman hefur alltaf orðið sú sama: Enginn hefur jafnazt á við Volkswagen og andstæðingarnir hafa jafnan viðurkennt, að hann sé tæknilegt meistaraverk. Eitt af því sem gert hefur Volkswagen vinsælan hjá öllum almenningi, er það hversu frábærlega létt og skemmtilegt er að aka honum. ÖII stjórntæki eru mjög einföld og alveg við höndina, enda er bíllinn eins og hugur manns. Línurnar á myndinni benda á 25 hluti í sambandi við stjórnunar og öryggistæki bílsins. NJOTIÐ SUMARSINS í NÝJUM BÍL FRÁ VIKUNNI og látið ekki happ úr hendi sleppa Eftir rúma viku byrjar sá tími, aö fjöldi fólks geti brugðið undir sig betri fæt- inum og átt þrjár vikur fríar og frjálsar. Þá vilja flestir skipta um umhverfi, bæði til gagns og gamans og helzt að komast í sólskirtið, hvort heldur það er fyrir norðan eða sunnan. En stundum st.endur á farartæki, já meira að segja mjög oft, enda þótt okkur virðist vera margir bílar á götunum í Reykjavík. Og hugsið hvílíkt happ það er aö fá splunkunýjan Volkswagen rétt í sama mund og sumarleyf'iö byrjar —• ef farartœki er ekki fyrir hendi. Þá er ekki annaö en að skreppa í Bif- reiðaeftirlitið og skrá bílinn á nafn þess er hnossið hlýtur og síðan er hægt að aka af stað. Eitt af því sein gert hefur Volkswagen eftirsókn- arverðan, er hin ágæta varahlutaþjónusta. Volks- wagen segir i auglýsingum, að það Jnirfi 5008 hluti i bílinn og þe-ssir hlutir fást í Heklu, livenær sem á þarf að halda. Sökum þess hve billinn breytist litið er liægt að nota sömu varahlutina i margar árgerðir. 5008 hlutar og allir til hjá Hekíu

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.