Vikan


Vikan - 21.06.1962, Side 36

Vikan - 21.06.1962, Side 36
Þér njótið vaxandi álifs ... þegar þér notið Blá Gillette Extra rakblöð Þér getið verið vissir um óaðfinnanlegt útlit yðar, þegar þér notið Blá Gillette Extra blöð, undrablöðin, sem þér finnið ekki fyrir. Bó skeggrótin sé hörð eða húðin viðkvæm, þá finnið þér ekki fyrir blaðinu ef notuð eru Blá Gillette Extra. 5 blöð aðeins Kr. 20.50. Gillette ® er eina leiðin til sómasamlegs raksturs <g> GHIette er skrásett vörumerkl. Tækniþáttur Framhald af bls. 3. tveim „sk‘rúfumeiSum“, sem hreyf- ill þess snýr. Talið er að það nái allt að 20 km hraða á klst. á sléttu hjarni, sem að vísu er ekki nein ofsaferð, en mestu máli skipt- ir að „snifíiilinn" er álitinn verða mjög öruggt farartæki á þessum slóðum. Hann kvað og vera mjög brattgengur, en það kemur sér vel í fjalllendinu suður þar, sem allt er jökli hulið. Hver veit nema „snigillinn" gæti komið til greina sem farartæki á Vatnajökli. Ef hann reynist vel á Suðurskautinu, ætti hann einnig að reynast vel þar. Sjónvarpsturnarnir — hæstu byggingar i heimi. Þar eð sjónvarpsbylgjurnar eru með þeim eðlisgalla, að þær rek- ast á hœðir og fjöll og aðra slika 36 vikas fyrirstöðu, er leitazt við að útvarpa þeim úr sem mestri hæð. Raunar lítur út fyrir að það vandamál leys- ist innan skamms, þegar endur- varpshnöttunum verður komið á loft, en samt sem áður hafa þegar verið reistir miklir sjónvarpsturn- ar víða um heim, og gerðar áætl- anir um byggingu annarra. Þessir turnar eru hæstu bygging- ar í heimi, og verða hæstu bygg- ingarnar sem fyrir voru áður, held- ur lágkúrulegar í samanburði við þá hæstu þeirra, eins og meðfylgj- andi teikning sýnir. Hæst ber þar sjónvarpsturninn mikla í Moskvu, sem verður 508 m hár, þegar hann er fullgerður. Senditurninn í Okla- homa er 479 m, eða 139 m hærri en Empire State skýjakljúfurinn i New York. Kristalturninn í Lund- únum er að vísu enn ekki til nema á pappírnum, en verður 340 m hár þegar til kemur. Sjónvarps- turninn i Tokio er 332 m á hæð og byggður í svipuðum stil og Eif- felturninn i París, sem er 300 m á hæð og var lengi hæsta bygging i heimi og hið frægasta mannvirki. Þá keraur sjónvarpsturninn í Stutt- gart, 211 m á hæð — og loks hæstu byggingar frá fyrri öldum, Ulmer- dómkirkjan í Múnster, 161 m, Che- ops-pýramídinn egipzki, 137 m og Stefánsdómkirkjan í Vín, 136 m á hæð, sem allt eru hinar reisuleg- ustu byggingar, og sýna að þeir gömlu gátu nokkuð líka, þrátt fyrir liá takmörkuðu tækni, sem þeir höfðu yfir að ráða. * Bréf að norðan Framhald af bls. 14. Jæja. Er þá ekki orðið það sama að vera fínn og ríkur? Annars held ég að þessar sögur um Arnarnesið séu málum blandaðar, þvi ég held að allir geti fengið þar lóðir keypt- ar, sem eiga fé til að greiða þær. Við skulum segja, að engir byggi þar aðrir en þeir, sem eiga þessa milljón, sem allir keppa að. Ef menn ætla aðeins að velja „sína“ menn, þá er ekki einhlýtt að velja þá eina, sem eiga mliljónina. Það gæti nefnilega endað með því að þarna myndaðist skrílhverfi. Það er einhver hringavitleysa í kollinum á þér, kæri vinur. Þú ruglar ein hvernveginn öllu saman. Heldurðu til dæmis að ríkir menn séu meiri snyrtimenni en aðrir menn? Vitan- lega er sjálfsagt að fegra umhverfi ^lls staðar sem mest og bezt. Það er menningarvottur að hafa allt snyrtilegt i kringum sig. En mun- urinn felst ekki í peningaeign. Ég þekki fjölda dæma um ríka menn, sem andskotast allar trissur á si- felldu spani og allt af i leit að ein- hverju nýju. En þeir hirða ekki garðinn sinn. Hann er i órækt. Ég þekki fjölda marga menn, sem finna lausn sinna mála, sem eiga hamingju sína á heimili sínu og í garðinum sínum. Ef þú átt bíl þá skaltu aka um borgina núna. Þú sérð þessa menn kyrrláta að vinnu við garðinn sinn og konur þeirra eru líkast til að störfum með þeim. Þú segist vera þakklátur verka- mönnum og iðnaðarmönnum fyrir það að þeir skuli hafa lagt fyrir sig þau störf, sem þeir stunda, en þú segist ekki geta haft samneyti við þá. Hvers konar hroki er þetta? Hvers konar störf hefur þú með höndum? Á ég að trúa þvi, að margir hafi sams konar afstöðu og þú? Hvað heldurðu að þú sért? Þú og þínir likar hanga á herðunum á verkafólkinu. Það væri þér og þín- um líkum mátulegt að verkafólkið snaraði þér af sér ofan i skurðinn við húsdyrnar hjá þér, sem þú hef- ur ekki haft manndóm í þér til þess að moka ofan i. Ég er þinn einlægur Björn á Norðurpól. í fullri alvöru Framhald af bls. 2. um það fé, sem íbúar þess verða að leggja á móti. Og það virðist i fljótu bragði helzt til „flott“ að reisa gistihús, sem einungis verða starfrækt yfir sumartímann, i byggðarlagi, þar sem milljónabygging — barnaskól- inn — stendur auður og ónotaður á sama lima, sem með litlum til- kostnaði hefði einnig getað gegnt þvi hlutverki. Þótt hér sé aðeins minnzt á eitt dæmi, munu þau fleiri og verða þó enn fleiri á næstu ár- um með auknum ferðamanna- straum að sumarlagi, sem krefst fjölgunar á sumargististöðum víðs- vegar um land. Þar verður farið eins að — reist milljónabygging, sem stendur auð og ónotuð vetrar- langt, skammt frá annarri milljóna- byggingu, sem stendur auð og ó- notuð sumarlangt-------- Og skammt frá stendur þriðja milljónabyggingin, auð og ónotuð nema rétt um helgar, og þó ekki nema að litlu leyti, séu þar ekki á ferðinni danshljómsveitir úr höfuð- staðnum eða nálægum kaupstöðum, sem „trekkja að“ — og mun þó nokkur vafi leika á um menningar- áhrifin af þeim samkomum, að ekki sé meira sagt. „Er þetta hæet, Matthias?“ Drómundur.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.