Vikan


Vikan - 13.09.1962, Page 7

Vikan - 13.09.1962, Page 7
 : ' ' , 'i wm tMHi v ■ - liWÉiiiÍtfi liwiv!::;;®;:;?: liilil |§Í!|ÉÍ! i i ' < , x: i mmÍ lIlMiiPli jiiiiiíY ;i:; ; : .i-iiiiiiiiP: i í .;• ::::ii::;i: :.;i: •••• ’: ■ x-M: •i':.i-:-. x:;; : '••:•: i x N. - M|íh| Mpi . liiiiéiiiMÍi':;: mm Séð yfir Mývatn frá Kálfaströnd. Bláfjall og Sellandafjall í baltsýn. Ljósmynd: Þorsteinn Jósefsson. Grein og viðtöl: Gísli Sigurðsson. MYVATNSSVEIT ÉG VÆNSTAVEIT EGAR talað er um náttúrufegurð er sjálfsagt hvorki rétt né heimilt að telja einn stað öllum öðrum fegurri og tala um það sem óvefengjanlega staðreynd. Gildi máls og vogar verður ekki lagt á náttúrufegurð; hugtakið er afstætt og það sem einn telur afbragð, finnst öðrum harla tilkomulítið. Aður fyrr var náttúrufegurð sétt í samband við gæði lands- ins. Það var fallegt á Völlúm, þegar vel veiddist. Svo afstæð er þó náttúrufegurð ekki lengur. Við erum sammála um, að ákveðnir staðir séu mjög fallegir, en sjaldan á einu máli um þann allra fegursta. Um þetta var ég að hugsa á leiðinni yfir Mývatnsheiðina og beið þess með nokkurri óþreyju að opnaðist útsýn yfir þá sveit, sem norðlenzkir telja bezta fjöður í sínum hatti. Þegar ég var barn, heyrði ég vísu, sem var eitthvað á þessa leið: Mývatnssveit ég vænsta veit vera á þessu láði. Fólkið gott, en fær þann vott, að fullt sé það af háði. Þessi vísa er víst nokkuð gömul. Nú er ekki lengur talað um, að Mý- vetningar séu háðskir, en þeim mun meira orð fer af því, að þeir séu ánægðir með sig. Að minnsta kosti segja þeir svo í lágsveitum Þing- eyjarsýslu. Ég spurði einhvern þar um þetta landsfræga þingeyska mont. Viðmælandi minn sagði það fara þverrandi með ári hverju og væri það varla eftir nema í gömlum körlum. Unga fólkið virtist hafa skömm á því. En hann bætti við: „Farðu upp í Mývatnssveit. Þeir eru þrælmontnir þar ennþá“. Framhald á næstu siðu. ▼IKAN 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.