Vikan - 13.09.1962, Page 13
EFTIR KRISTMANN
sem kínversk matsöluhús, og eftir tuttugu
og þriggja ára dvöl þar var mig farið að
lengja eftir hinum gómsætu, austurlenzku
krásum, sem Kinverjar eru manna slyngastir
að töfra fram. í London verður naumast
þverfótað fyrir kínverskum veitingahúsum,
en vandinn sá að velja á milli. Við Dadinah
— þ.e.a.s. Steinunn, konan mín, sem harð-
bannar mér að kalla sig því nafni, sem hún
var skírð, enda meðal vina aldrei kölluð ann-
að en Dadinah — tókum því fljótt að spyrj-
ast fyrir um, hvar á boðstólum væri beztur,
kínverskur matur. „Hongkong veitingahúsið
í Shaftesbury Avenue“, sagði blaðasalinn
okkar á horninu. „Auðvitað Hongkong!“
söghu þeir í tóbaksbúðinni. „Hongkong ■—
hvað annað?“ sagöi dyravörðurinn á Regent
Paiace Hotel. „Vitanlega farið þið í Hong-
kong“, sagði sjálfur hótelstjórinn, er ætti
að hafa vit á sliku. „Hjá Charlie Young fáið
þið bezta, kínverska matinn í Evrópu — ef
ekki heiminum, enda er hann kunnur undir
nafninu „Konungur kínverskra veitinga-
manna í Evrópu".
Hongkong veitingahúsið var í næstu götu,
og fórum við þangað beinustu leið. Það var
auðþekkt, því að auk nafnsins voru á fram-
hlið hússins litríkar skreytingar og í glugg-
anum dönsuðu fram og aftur litlar, kinversk-
ar dúkkur klæddar ýmiss konar skrítnum
þjóðbúningum. Salirnir eru á þrem hæðum
auk kjallara í húsunum 58—60, Shaítesbury
A v enue. Við gengum upp á aðra hæð, þar sem
\ij blasir stórt málverk af alvörugefinni,
kinverskri konú.
Smávaxinn, heldur raunamæddur piltur
leiddi okkur til sætis með bukti og beyging-
um. Hann var svo líkur góðum sveitadreng
úr Fl : anum, að mér lá við að spyrja, hvort
hann væri ckki ættaður þaðan. „Hvað heitir
þú, vinur?“ spurði ég.
„Ma Kam Tang“, svaraði hann, og nú varð
GUÐMUNDSSON
andlitið eitt bros.
„Ertu nýkominn til London?“
„Fyrir nokkrum mánuðum", svaraði hann
á bjagaðri ensku.
„Og hvernig líkar þér lífið?" spurði Dad-
inah.
Hann varð aftur dapurlegur. „Það er ágætt
í vinnunni, en — ég er svo einmana. Ég þekki
engan og kann ekki ensku, get ekki talað við
fólk“.
„Attu þá enga vini hér?“ spurði ég og leit
rnoð samúð á aumingja litla Tang.
„Jú, einn“, svaraði hann og ljómaði nú
allur á ný. „Voðalega góðan“.
„Enga kærustu?"
Kmverjar geta víst ekki roðnað, en Tang
virtist mjög nálægt því, er hann hristi höf-
uoiö og varð niðurlútur. „Nei“, sagði hann
lagróma, „en kannske seinna ég er bara
seytján ára“.
Við báðum Tang að ráðleggja okkur, hvað
við ættum að panta, þar eð við erum hvorugt
vel læst á kínversku, en matseðillinn á þeirri
göfugu tungu. „Betra að fá hr. Wu“, sagði
hann. „Það er yfirþjónninn; hann veit allt“.
Þao var ekki fjarri sanni. Hr. Wu Ki Con
reyndist maður fjölfróður með afbrigðum,
hagíræðingur að menntun, en heimspekingur
Framhald á bls. 39.
Tang litli er einna líkastur feimnum sveita-
pjlti úr Flóanum.
Eins og allir vita, voru keisarar í Kína; meira
að segja bjó H. C. Andersen til sögu um einn
af þeim. Fyrir mörgum öldum voru þar einnig
konungar; um þá ræðir „Sturlunga“ Kínverja,
Sagan um konungsríkin þrjú. En kínverskur
konungur í Evrópu nú á dögum, bráðlifandi og
, ráðandi rikjum skammt frá „miðdepli alheims-
ins“, Piccadilly Circus — - það er meira en
sumir okkar vissu . eða hvað?
Chong Mong Yong — Björninn dreymandi —
er hrífandi blöndun af enskum gentlemanni og
kínverskum mandarín. Að vísu rennur ekki
dropi ef brezku blóði í æðum hans, en fjöru-
tíu ára dvöl í London og ensk eiginkona hafa
sett mót sitt á manninn. Charlie Young er nafn-
ið, sem hann gengur undir hér, og það er orð-
ið vel þekkt um alla Evrópu. Kínverskir veit-
ingamenn frá París, Brússel, Antwerpen, Rott-
erdam, Amsterdam, Bonn, Zúrich, Madrid, Mil-
ano, Rómaborg og fjölmörgum stöðum öðrum
koma í pílagrímsferð til veitingahúss hans hér
í London í því skyni að uppgötva leyndardóma
þess aðdráttarafls, er það býr yfir.
Ég hef alltaf ve'rið sólginn í kínverskan mat,
frá því ég bragðaði hann fyrst í París árið
seytján hundruð og súrkál. En eins og kunnugt
er, fyrirfinnast ekki á íslandi slíkar stofnanir
Það er gaman að verða átján ára! Lawson með pabba sínum, Chong Mong Yong.
11111»
'
ÍSMgjí’jiÍÍSSíw:;:
...'...................................í.j
■
mmmm
i',
- & \
SfftSál
VIKAN 13