Vikan


Vikan - 13.09.1962, Qupperneq 14

Vikan - 13.09.1962, Qupperneq 14
Faðir vor, forða oss frá slysum og lát oss skilja HUOÐ NÆTURINNAR SMÁSAGA EFTIR IRVIN SHAW. Það kom Weatherby á óvart, að það skyldi vera ljós í veitingahúsinu, þeg- ar hann beygði inn götuna heim til sín. Veitingahúsið hét Santa Margherita og var að mestu leyti með ítölsku sniði, þótt nokkur franskur blær væri einn- ig á því. Aðalannatíminn var um há- degið, og um hálf ellefu á kvöldin var venjulega búið að loka því. Þetta var notalegt veitingahús, og ef þau hjónin voru löt eitthvert kvöldið, eða ef hann þurfti að taka vinnu með sér heim, fóru þau stundum þangað að borða. Það var ekki dýrt, og Giovanni, bar- þjónninn, var kunningi þeirra. Það var oft, að Weatherby kom þar við á leið heim frá vinnu til að fá sér drykk, því að vínið var gott þarna og rólegt á barnum, sem hafði ekkert sjónvarp. Hann var næstum kominn fram hjá veitingahúsinu, þegar hann stanzaði og hugsaði með sér, að hann hefði gott af einum viskísjúss. Konan hans hafði farið í bíó og var ekki væntanleg heim fyrr en um hálf tólf leytið. Hann var þreyttur og honum leiddist að hugsa til þess að fara heim í tóma íbúðina og sitja þar einn að drykkju. Inni var aðeins einn gestur, sem sat við litla barinn við innganginn. Þjón- arnir voru farnir heim, og Giovanni var að hella bourbon í glas mannsins. Weatherby settist við enda barsins, en samt voru aðeins tveir stólar á milli þeirra. Giovanni gekk til hans og sagði: „Gott kvöld, herra Weatherby", setti fyrir hann glas og hellti stórum viskí- skammti í án þess að mæla það, síðan opnaði hann sódavatnsflösku og lét Weatherby sjálfan um að fylla glasið. Giovanni var stór maður, sem ekki bar það með sér að vera ftali. Hann hafði alvarlegt, skarpleitt andlit og grátt hár hans var klippt á þýzka vísu. „Hvernig hefur frú Wetherby það í kvöld?“ spurði hann. „Ágætt,“ svaraði Weatherby. „Hún hafði það að minnsta kosti gott, þegar ég talaði við hana síðdegis í dag. Ég kem beint af skrifstofunni. „Þér vinnið of mikið, herra Weather- by“, sagði Giovanni. „Það er satt“. Weatherby saup drjúg- an sopa úr glasinu. Það jafnast ekkert á við viskí, hugsaði hann þakklátur og neri glasið milli lófa sér. „Það er opið hér lengi í kvöld“, sagði hann. „Rétt er það“, sagði Giovanni. „Ég er ekkert að flýta mér. Drekkið eins lengi og yður þóknast". Þó að hann beindi orðum sínum að Weatherby, fannst Weahterby, að þau ættu öllu meira erindi til hins mannsins, sem sat með olnbogana á borðinu og hélt um glasið báðum höndum. Hann einblíndí ofan í glasið, eins og spákona, sem ssei eitthvað ógreinilega eins og í þoku, en samt frekar ánægjulegt, í kristals- kúlu. Maðurinn var grannur og hár hans byrjað að grána og andlit hanS bar svip hins menntaða manns. Föt hans voru þröng eftir nýjustu tízku, dökkgrá, og hann var með þverslaufu í sterkum litum við hvíta Oxfordskyrtu- Weatherby tók eftir giftingarhring áj vinstri hönd hans. Hann leit ekki út fyrir að vera sú tegund manna, sem sat

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.