Vikan


Vikan - 13.09.1962, Side 15

Vikan - 13.09.1962, Side 15
Konan hans hafði verið myrt og í kvöld átti að taka morðingjann af lífi. Hann kom á barinn í tilefni af því. langt fram á nótt á börum. Ljósin í bamum voru dauf, og Weatherby fannst, að hann mundi kannast við manninn, ef birtan væri betri, og að það mundi koma í ljós, að þeir hefðu hitzt einhvern tíma fyrir löngu einu sinni eða tvisvar. En þannig er það í New York. Ef maður hafði átt lengi heima þar, fannst manni mörg andlit kunnugleg. „Ég geri ráð fyrir“, sagði Giovanni og stóð kyrr hjá Weatherby, „að brátt munuð þið ekki verða svo tíðir gestir hér“. „Nú“, sagði Weatherby, „við munum koma hingað og borða öðru hverju". „Þér vitið, hvað ég á við“, sagði Giovanni. „Þið eruð að hugsa um að flytja út fyrir borgina?" „Ef til vill“, sagði Weatherby. „Ég geri ráð fyrir því. Ef við finnum góðan stað, ekki of langt frá borginni“. „Börn hafa gott af útiloftinu“, sagði Gio- vanni. „Það er ekki rétt gagnvart þeim, að láta þau alast upp í borg. „Nei“,. sagði Weatherby. Dorothy, konan hans, var komin sjö mánuði á leið. Þau höfðu verið gift í fimm ár og þetta var fyrsta barn- ið þeirra. Það veitti honum einhverja fráleita og frumstæða ánægju að tala um sveitaloft- ið, sem bamið hans mundi anda að sér með- an það væri að alast upp. „Svo þarf líka að hugsa um skólana, auðvitað". Það var skemmtilegt að tala um böm, þegar það var víst að maður gat eignazt þau. „Herra Weatherby. ...“ Þetta var maður- inn við barinn. „Má ég hafa þá ánægju að heilsa upp á yður?“ Weatherby sneri sér svolítið hikandi að manninum. Hann var ekki í skapi til sam- ræðna við ókunnuga. Hann hafði það líka á « tilfinningunni, að Giovanni væri ekki um |' það að maðurinn hefði yrt á hann. 1 „Þér þekkið mig ekki aftur“, sagði maður- inn og brosti svolítið óstyrkur. „Við hittumstj^* fyrir átta eða tíu árum. í. ... í íbúðinni'! minni“. Hann gaf frá sér hljóð, sem hefði * getað verið byrjun á feimnislegum hlátri/ I „Ég held að þér hafið komið þar tvisvar eða þrisvar.... Það gat komið til mála, að við hefðum einhverja samvinnu, ef ég man rétt. Svo að þegar ég heyrði Giovanni ávarpa yð- ur með nafni, datt mér... svona í hug.. ójá, ég er Sidney Gosden“. Hann lækkaði röddina um leið og hann sagði nafn sitt, eins og frægt fólk gerir stundum, til þess að sýn- ast hæverskt. Weatherby leit á Giovanni til að fá einhverjar upplýsingar frá honum, en Giovanni var önnum kafinn við að fægja glas og leit ekki upp — hélt sér auðsjáanlega viljandi utan við samræðurnar. „Ó. já“, sagði Weatherby óákveðinn. „Ég hefi búið á Third Avenue“, sagði Gosden. „Selt forngripi og allt viðvíkjandi innanhúss skreytingu“. Aftur kom þetta und- arlega hljóð, sem minnti á hlátur. „Þetta var þegar ég hafði verið fenginn til að innrétta húsasamstæðuna við Beekman Place. Vinur minn hafði talað við yður . .“ „Auðvitað“, sagði Weatherby hjartanlega. Hann kom enn ekki fyrir sig nafninu, en han mundi eftir atvikinu. Það var þegar hann var að byrja feril sinn sem arkitekt og hélt að hann gæti rekið stofu upp á eigin spýt- ur, að hann hafði heyrt um þessi hús í aust- urhlutanum, sem átti að gera að smáíbúðum. Einhver kunningja hans í einu af stóru fyr- irtækjunum, sem ekki hafði viljað taka þetta J að sér, hafði bent honum á þetta, ef ske kynni að hann hefði áhuga fyrir því’og lállð hann hafa nafn Gosden um leið. Hann mundi óljóst eftir samtalinu við Gosden, hann hafði staðið þar við fimmtán eða tuttugu mínút- ur í illa lýstri búðinni, þar sem gömlum hús- gögnum var staflað saman — mundi, að honum hafði fundizt þetta tímaspillir, ein misheppnuð tilraun í viðbót. „Hvað varð um þetta?“ spurði hann. „Það varð ekkert úr því“, sagði Gosden. „Þér vitið, hvernig þetta endar venjulega. Þeir rifu öll húsin og byggðu hræðilega ljót sambýlishús þarna, nítján hæða. Það var af- leitt. Mér leizt mjög vel á hugmyndir yðar. Ég man mjög vel eftir þeim, allt fram á þennan dag“. Hvernig hann talaði, minnti á konu í kokkteilboði — hratt og óstöðvandi, til þess að halda manninum kyrrum í horn- inu, eins og kona, sem segir allt, sem kemur í huga hennar, til þess að maðurinn sleppi ekki að barnum og skilji hana eftir eina með engan til að tala við það sem eftir var kvölds- ins •— það sem eftir var ævinnar. „Ég ætlaði að fylgjast með starfsferli yðar“, hélt Gosden fljótmæjtur áfram. „Ég var viss um, að yð- ar biði glæsileg framtíð, en maður er alltaf svo önnum kafinn í þessari borg — auðvitað við eitthvað ómerkilegt — en ég hafði ætl- að mér . . “ Hann baðaði höndunum vand- ræðalega og endaði ekki setninguna. „Ég geng sjálfsagt fram hjá byggingum eftir yður dag- lega, minnismerkjum hæfni yðar, án þess að vita af því. . . .“ „Nei, það getur maður víst ekki sagt“, sagði Weatherby. „Ég fór að starfa við stórt fyrir- tæki“. Hann sagði manninum nafnið á því, og Gosden kinkaði alvarlegur kolli, eins og til að sýna virðingu sína fyrir framkvæmd- um þess. „Ég vinn svona við hitt og þetta þar“. „Þetta hefur allt sinn gang“, sagði Gosden glaðlega. „Svo að þér eruð einn af þessum ungu mönnum, sem eruð að koma okkur vesalings New Yorkbúum öllum í köld og skínandi glerbúr". „Ég er nú ekki svo ungur“, sagði Weather- by og hugsaði dapur, að það væri sannleik- ur. Gosden sjálfur gat varla verið meira en svo sem tíu árum eldri en hann. Hann lauk úr glasinu. Framkoma Gosden, flaustursleg og áleitnisleg, og ekki laus við tilgerð, gerði hann vandræðalegan. „Jæja“, sagði hann og tók fram veskið sitt. „Ég held að ég verði. . . . “ „Ó, nei, gerið það ekki . . “ Rödd Gosden varð undarlega angistarfull. „Þá lokar Gio- vanni flöskunum og hendir mér út. Við skul- um fá okkur einn til, Giovanni, einn í viðbót. Gerið það! Fáið yður einn með okkur Gio- vanni. Þetta seint að kvöldi . . “ „Ég verð að ..“ byrjaði Weatherby, en sá þá, að Giovanni horfði undarlega fast á hann, eins og hann vildi koma til hans áríð- andi skilaboðum. Giovanni hellti í snatri viskí aftur í glas Waetherby og bourbon í glasið hjá Gosden og sama í sitt eigið glas. „Jæja “ sagði Gosden ánægður. „Þetta var betra. En látið yður ekki detta í hug, herra Weatherby, að ég gangi um og bjóði hverjum sem er upp á drykk. í rauninni er ég sparsamur, má næstum kallast nízkur, konan mín var vön að segja, að það væri eiginlega það eina, sem hún hefði út á mig að setja“. Hann lyfti glasinu hátíðlega, og löng, grönn hönd hans skalf lítillega. Weath- erby datt í hug, hvort verið gæti að Gosden væri of drykkj umaður. „Drekkum hinum kaldranalegu, einmanalegu, en fögru gler- byggingum til“, sagði Gosden, „hinum nýju byggingum New York borgar“. Þeir drukku allir og Giovanni drakk í botn, þvoði glasið og þurrkaði án nokkurra svipbrigða. „Mér fellur svo vel við þennan stað“, sagði Gosden og leit í kringum sig á lampana, sem lýstu daufri birtu, og á límkennd málverkin á veggjunum. „Það eru sérstakar minningar bundnar við þennan stað. Ég bar upp bónorð hér á einu vetrarkvöldi. Við konu mína“, bætti hann fljótmæltur við, eins og hann væri hræddur um, að Weatherby mundi halda, að hann hefði verið að biðja hér konu annars manns. „Við komum ekki nógu oft hingað eftir það“. Hann hristi höfuðið dapur. „Ég veit ekki hvers vegna. Kannski vegna þess, að við áttum heima í hinum enda borg- arinnar". Hann dreypti á glasinu og benti á málverk af sjó og fjöllum á veggnum beint gegnt þeim. „Ég hafði alltaf ætlað að ferðast með konuna mína til Nervi. Til þess að sjá hofið. En eins og Frakkar mundu segja, Hél- as, við fórum aldrei þá ferð. Ég hélt að við hefðum nægan tíma — eitthvert annað ár. Og eins og ég sagði áðan, ég var sparsamur, og útgjöldin virtust of mikil . . .“ Hann yppti öxlum og byrjaði aftur að stara ofan í glasið, eins og til að skyggnast inn í hulda heima, hélt því milli handa sér og einblíndi í það. „Segið mér, herra Weatherby“, sagði hann rólegri og venjulegri röddu, „hafið þér nokk- urn tíma drepið mann?“ „Hvað“, spurði Weatherby og trúði ekki sínum eigin eyrum. ,Hafið þér nokkurn tíma drepið mann?“ í þriðja sinn heyrðist þessi undarlegi hálf- hlátur. „Reyndar er þetta spurning, sem oft gæti átt við. Það hljóta að vera margir í þess- ari borg, sem einhvern tíma hafa drepið mann — t.d. lögreglumenn að skyldustörfum, ó- gætnir ökumenn, læknar og hjúkrunarkon- ur við líknarstörf, börn með leikfangabyssu, hermenn í stríði “ Weatherby leit á Giovanni, en hann sagði ekkert. Eitthvað var í svip Giovanni, sem gaf til kynna, að hann vildi að Weatherby kæmi til móts við manninn. „Nú“, sagði Weatherby. „Ég var í stríð- inu. .. . “ „Auðvitað í fótgönguliðinu, og kannski með byssusting", sagði Gosden með þessari nýju, einkennilega blæbrigðalausu rödd. „Ég var í stórskotaliðinu“, sagði Weather- by. „Það má ef til vill segja, að.. . .“ „Glæsilegur kapteinn“, sagði Gosden bros- andi, „horfandi í kíki og gefandi fyrirskip- anir um skothríð á óvinina". „Það var nú ekki alveg svona“, sagði Weatherby, „ég var nítján ára og var ó- breyttur hermaður. Aðalvinna mín var að grafa skotgryfjur“. „Samt“, hélt Gosden áfram, „væri hægt að segja, að þér hafið með vinnu yðar stuðlað að því að menn væru drepnir“. „Nú, já“, sagði Weatherby, „það var skot- ið einhver ósköp. Sjálfsagt hefur það ein- hvern tíma hæft einhvern". „Ég var vanur að hafa mjög gaman af veiðum“, sagði Gosden. „Það var þegar ég var drengur. Ég ólst upp í Alabama, þó nú geti enginn lengur þekkt mig af málhreimn- um. Einu sinni skaut ég gaupu“. Hann saup hugsandi á drykknum. „En mér varð það brátt ógeðfellt. Þó hafði ég enga tilfinningu gagnvart fuglum. Fuglar eru undarlega ill- viljaðir, eins og fjandsamlegir manninum, finnst yður það ekki, herra Weatherby?“ . ■' 1 Framhald á bls, 37. yiKAM 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.