Vikan


Vikan - 13.09.1962, Blaðsíða 25

Vikan - 13.09.1962, Blaðsíða 25
 REYKT SÍLD. 3—4 reyktar síldar, 3—4 sneiðar rauðrófur, 2 epli, 2 egg, grænkál, steinselja eða gras- laukur, olíusósa (mayonnesse). )>=5^^5íS»^^>^^í^^í^>^í=Ö?a=öí=í)5í=C>>==í>5í=ö>=í)5ö=Ö5^£)>=S)>=í)>=S)S«=£l>=ö@. SÍLD í FRANSKRI SÓSU. írinn hvert fyrir sig eftir að hafa verið hreinsuð og söltuð. Soðin í kartöflu- eða grænmetispottinum um það bil 15 mín., það fer eftir stærð stykkjanna. »« SÍLDARRÚLLUR. 8 síldar, nýjar, 1 saxaður laukur, 1..2 msk. rifin piparrót, 2—3 msk. smátt klippt steinselja, Vi dl tómat- kraftur, IV2 msk. edik, 2 msk. smjör- líki, 3 msk. brauðmylsna, 1 tesk. salt, Vi tesk. pipar. Síldin er hreinsuð og smá skurðir skornir í roðið. Saxaður laukur, pipar- rót og steinselja látin í hvert flak og þeim síðan rúllað upp frá breiðari end- anum. Raðað í vel smurt eldfast mót. Tómatkrafti og ediki blandað saman og hellt yfir. Smjörlíkið látið í bitum jafnt yfir og fatið látið í 250 gráðu heitan ofn um það bil 7 mín. Þá er brauðmylsnunni sem áður er blönduð með salti og pipar stráð yfir og síðan bakað í 15 mín. Borið fram með soðn- um kartöflum eða kartöflusalati. FISKBAKSTUR. V2 kg fiskiflök, ýsa eða rauðspretta, salt, 1 lítil dós aspas, 1 pakki (lítill) hraðfrystar rækjur. SÓSAN. 30 gr hveiti, 30 gr smjörlíki, 2 dl mjólk, 2 eggjarauður, salt og sítrónu- safi. Fiskurinn er skorinn í fremur smá stykki og raðað í smurt eldfast mót. Salti stráð yfir. Aspasinu og rækjun- um raðað jafnt yfir. — Mjólkin er soðin, smjörlíkið hrært lint, hveitið hrært saman við og mjólkin jöfnuð með 2 síldar (saltsíldar), 2 msk. matarolía, 2 msk. edik, 2 msk. vatn, 2 msk. tóm- atkraftur, 2 msk. sykur, pipar á hnífs- oddi, 2 epli, 2 litlir laukar, 2 msk. saxaðar rauðrófur, 1 msk. saxaðar asíur. Síldin er afvötnuð og hreinsuð. Sé síld- in sölt er gott að leggja flökin í mjólk nokkra stund en þá er nauðsynlegt að láta síga vel af þeim og þerra þau t. d. með eldhúspappír. Flökin eru skorin á ská í meðalstór stykki (3—4 cm breið). Olíu, ediki, vatni, tómatkrafti, sykri og pipar blandað saman og hellt yfir sildina, sem áður er raðað í djúpt aflangt fat. Látið bíða um það bil 2 klst. — Eplin eru flysjuð og skorin í bita og laukurinn saxaður smátt. Látið í randir yfir síldina ásamt rauðróf- um og asíum, eftir því sem litirnir fara bezt saman. Einnig er gott að hafa harðsoðin söxuð egg hér með, þá er fallegast að saxa rauður og hvítur sitt í hvoru lagi. — Skreytt með söxuðum graslauk eða steinselju (persilju). Bor- ið sem fyrsti réttur til miðdegisverðar. Þá er gott að hafa heitar kartöflur með. Einnig gott sem sjálfstæður réttur á kalt borð eða með brauði til kvöld- verðar. Síldin er hreinsuð og skorin í bita. (Hvert flak í 4—5 stk.). Rauðrófurnar eru skornar í mjóar ræmur og eplin eru flysjuð og í aflanga bita. Eggin eru harðsoðin og skorin í sneiðar. Lagt í raðir á fatið, skreytt með olíusósu (mayonn- esse) og að síðustu er grænkál, steinselja eða graslaukur klipptur yfir. Gott með rúgbrauðs- samlokum. STEIKT SÍLD. 8 litlar síldar, nýjar, 8 sardínur í olíu, sinnep, 3 msk. hveiti, 1 tesk. salt, pipar á hnífsoddi, 150 gr smjörl., 4 tómatar, piparrót, soðnar kart- öflur. Síldin er hreinsuð, skorin hryggmegin og inn- yflin tekin úr. Skoluð vel. Þerruð á stykki eða eldhúspappír. Ein sardína er lögð á hvert síldar- flak og þau síðan lögð saman, smurð með þunnu lagi af sinnepi, velt upp úr hveiti, salti og pipar og steiktar í smjörlíkinu við fremur hægan hita. Þegar síldin er gegnumsteikt, er henni raðað á heitt fat og pannan þurrkuð, afgangurinn af smjörinu bræddur og tómatarnir sem áður eru þvegnir, skornir í tvennt og steiktir. Raðað á fatið hjá síldinni og piparrót rifin yfir. Heitar kartöflur og smjörlíkið sem eftir er á pönnunni borið með. VIKAN 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.