Vikan


Vikan - 13.09.1962, Blaðsíða 31

Vikan - 13.09.1962, Blaðsíða 31
byggilega ekki á henni að svara þér. Anna Vilfriöur Skarphéðinsdóttir frá Akureyri var í þvotti, þegar ég kom i húsið með rauða þakinu. En hún kom bráölega á stjá, ung kona og vel vaxin. Mætti segja mér, að hún hefði þótt bærilegur aðdráttur í Mývatnssveit. — Hvernig lagðist það í þig, Anna Vilfríður, að flytjast frá Ak- ureyri í Mývatnssveit? — Ég var nú ekki mjög hrifin af þvL Að vísu hef ég ekki reynslu af því að vera með mann og böm í kaupstað, en ég held, að þrátt fyrir allar framíarir, sé miklu erfiðara að vera húsmóðir i sveit. — Eru heimilistæki aimennings- eign hér í sveitinni? — Aðeins þvottavélar, en ekki kæliskápar og hrærivélar. Við höf- um rafmagn frá dieselstöð og kann- ske lagast þetta, þegar við fáum Lax- arrafmagn. Annars stendur ekki á því að karlmennimir geti keypt vél- ar til sinna þarfa og það á hverju ári. — Hugsa ekki karlmenn fyrst og fremst um sjálfa sig hér eins og ann- ars staðar? — Ábyggiiega, þeir gera það víst alls staðar. Að minnsta kosti hef ég ekki náð þeim tökum á mínum manni, sem með þarf. — Og nærð þeim þá liklega ekki héðan af. — 0, það skaltu nú ekki segja. — Hvernig var það á Akureyri, Anna, fór ekki orð af því þar, að Þingeyingar væm montnir. — Jú, og þeir luma lika á því. Annars líkar mér mjög vel við fólk- ið hérna og ég vildi ekki verða af félagslífinu. Sérstaklega á veturna. Þá eru hjónaböll og þess háttar skemmtanir. Á sumrin er svo mikið af krökkum á skemmtunum í Skjól- brekku, að ég kann ekki við mig. — Og þú mundir sjá eftir því að flytja úr Mývatnssveit? — Já, að sumu leyti. Ég mundi sjá eftir mörgu, til dæmis silungn- um, sem er hér upp við land. Það er hægt að ná honum á stöng, en við höfum net og veiðum nóg til matar, nema nú að undanförnu, að veiðin hefur verið miklu minni. — Ferðu oft í kaupstað? — Svona einu sinni til tvisvar á ári til Akureyrar, en síðan ég gifti mig, fyrir fjórum árum, héf ég aldr- ei farið til Reykjavíkur. Það var ekki hægt að tefja Önnu Vilfríði lengur frá þvottinum. Hún vísaði okkur á túnblett austur í hrauninu, þar sem maður hennar, Hallgrímur Þórhallsson, mundi vera við heyskap. Það stóð heima; hann var þar ásamt Einari bróður sínum við hirðingu. Hallgrímur virðist vera rúmlega fertugur og heldur viðskotaillur. Hefur hann ef til vill rennt grun í, að við kæmum innan úr bæ frá frúnni. Að minnsta kosti var lítið upp úr honum að hafa, en Einar bróðir hans var mun þægilegri í viðmóti. Ég spurði þá bræður, hvort þeir teldu Voga erfiða jörð til ábúðar og þeirri spurningu svaraði Hallgrím- ur: — Vogar eru erfið jörð. Það er þrotlaust erfiði. Til þess duga aðeins hörkutól og afkomendur norrænna víkinga. Svo var hann farinn. Reykjahlíð stendur við norðaust- urhorn Mývatns og þangað er stað- arlegt heim að líta. Heimaland Reykjahlíðar nær allt suður til Vatnajökuls og heyrt hef ég, að eft- irlæti Reykjahlíðarmanna hafi ver- ið að segja frá því, að jörðin sé að- eins stærri en Árnessýsla. Annars gleymdi ég að spyrja þá að því. Vatnið er tæpast viðlíka fagurt við Reykjahlíð og það er sunnar með ströndinni, en fjallið á bak við það er fallegt í margvíslegum brúnum tilbrigðum og bætir hitt upp. Það er nánast orðið þorp í Reykjahlíð og fjöldi gesta, bæði í tjöldum og á báðum hótelunum. Maður heyrir vegfarendur mæla ensku, frönsku eða þýzku; langflestir gestanna á hótelunum í Reynihlíð og Reykja- hlíð eru útlendingar. Ég skoðaði bæði þessi hótel og get ekki annað sagt en að þau séu til fyrirmyndar, svo langt sem þau ná. En ferðamannastraumurinn er bund- inn við mjög stuttan tíma og það gerir hótelrekstur ákaflega erfið- an. Arnþór hótelstjóri í Reynihlíð, ungur maður og geðþekkur, talaði um, að æskilegt væri að geta lengt þennan tíma með einhverju móti og helzt þyrfti að koma upp skíðahóteli yfir veturinn. Það væri þó ógjöm- ingur með núverandi samgöngum og mundi líklega ekki vera hægt nema með því móti að fá flugvöll og flugsamgöngur. Fyrir allt venju- legt fólk eru brekkurnar í Reykja- hlíðarfjalli nægar og ekki skortir snjóinn að jafnaði, en skíðaköppum mundi þó líklega þykja heldur lít- ið færzt í fang. • Pétur í Reynihlíð er stórmógúll í Mývatnssveit. Hann er eigandi að hótel Reynihlíð, nýbakaður hrepp- stjóri og þar að auki vegavinnuverk- stjóri í sveitinni. — í mínu ungdæmi komu útlend- ingar talsvert til Mývatns, sagði Pét- ur, — og reyndar alltaf síðan. Áður þurfti að fara með ferðamönnum austur að Jökulsá til þess að ferja þá yfir. Þangað eru 36 km og þessu varð að sinna, því þetta var lög- ferja. Grímsstaðir eru rétt hinum megin við ána, en það var ekki ör- uggt að þangað heyrðist þótt ferða- menn kölluðu. Þetta lagðist af, þeg- ar síminn kom. Þá var hringt í Grímsstaði. — Hefur ætt þín búið í Reykja- hlíð frá ómunatíð? — Afi minn og faðir komu til Reykjahlíðar árið 1895 frá Svartár- koti í Bárðardal. Þá var greiðasala hér og ekki veit ég hversu lengi það hefur verið. Ég fékk veitingaleyfi 1943. Hafði búskap um tíma, en er hættur því. Svo hef ég mann við hótelið. Ég hef ekki verið hótelstjóri, það er misskilningur. Ég er eigandi. Og nýorðinn hreppstjóri. — Líklega er kjarninn úr Þing- eyingum hér við Mývatn, Pétur. — Ekki veit ég það nú. Það er svo rnikil blöndun og aðflutningur. Af húsfreyjum sveitarinnar eru þrjá- tíu aðfluttar, en aðeins þrír karl- menn ef maður tekur húsráðendur. — Leiðist þér annars staðar en hér? — Ég uni mér alls staðar þar sem eitthvað er að gera og gæti jafnvel hugsað mér að flytja héðan. En í Reykjavík leiðist mér, nema þá helzt á Þjóðskjalasafninu. Ég hef stundum verið þar að draga saman ýmsar heimildir um sveitina hérna. — Hvað segir hreppstjórinn um afkomu manna í Mývatnssveit? — Fólkið kemst yfirleitt vel af. Jarðirnar eru 25 en ábúendur á þeim 64. Það vantar lítið á, að þrír bændur séu á hverri jörð. Á síðasta ári voru seldir 327.501 lítrar af mjólk og íargað var 7813 dilkum. Sauðfjárbúskapurinn er í góðu lagi og góðar afurðir af hverri vetrar- fóðraðri á. Svo hafa menn ýmsar aðrar tekjur. Á síðasta ári seldu bændur í Mývatnssveit 7939 kg af silungi, 16.253 andaregg og rúmlega 50 þúsund hænuegg. Sem sagt: Það drýpur smjör af hverju strái. Lengra varð samtalið ekki við stórmógúlinn í Reykjahlíð, því hann burtkallaðist til þess að gera við brú, sem hafði bilað. • Degi er tekið að halla, þegar við höldum vestur með vatninu norðan- verðu. Nú er hægt að aka hringinn. Útsýnið er víðáttumeira og bæirnir hinum megin við vatnið sýnast alveg niðri i vatnsborðinu. Ungur maður, Kjartan á Gríms- stöðum, ferjaði okkur út í Slútnes. Það er tíu mínútna ferð og vatnið er svo grunnt, að utanborðsmótor- inn hrærir í botnleðjunni. Fjölskrúð- ugri gróður mun vandfundinn á ís- landi en sá, sem verður á vegi manns í Slútnesi og útsýni þaðan er dáfag- urt. Kjartan á Grímsstöðum kvaðst ætla sér það hlutskipti að búa þar. Segist ekki geta hugsað sér að flytja úr sveitinni. Vindbelgur. Vagnbrekka. Neslönd. Síbreytilegt útsýni. Vogur hvítur af álftum. Ef þessi staður væri til dæm- is í nánd við Kaupmannahöfn. Eng- inn maður í hinum siðmenntaða heimi mundi komast hjá því að þekkja hann út og inn. Danir mundu ekki minnast á annað í ferðamanna- áróðri sínum. Þeir mundu raða lúx- ushótelum á þessa dýrlegu vatns- bakka. Milljónerar mundu kaupa landskika í nánd við þann stað fyrir svimandi upphæðir. Túristar hvað- anæva úr veröldinni mundu þyrpast þangað, fylla lautirnar í hrauninu, hólmana á vatninu og það yrði krökkt af lystibátum. En hvað yrði þá eftir af náttur- unni? Að minnsta kosti ekki það Mý- vatn, sem nú er svo til óþekkt og óáreitt uppi á hálendi Norðurlands. • Hringurinn lokast við Arnarvatn, þar sem Laxá liðast út úr vatninu milli viði vaxinna hólma. Mýflugan suðar í logninu og þó er hún hreinn hégómi núna miðað við það sem mest getur orðið. Um þá plágu kvað Illugi skáld: Af öllu hjarta ég þess bið andskotann grátandi, að flugna óbjarta forhert lið fari í svarta helvítið. En hún er ekki farin í það svarta enn. Gísli Sigurðsson. VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.