Vikan - 25.10.1962, Síða 3
VIKAN
ogtaeknin
HARMONIKU-
BÍLSKÝLI.
Fyrirtæki eitt, brezkt, er nú farið
að framleiða „harmoniku-bílskúra"
sem sjá má á meðfylgjandi mynd.
Er þar um að ræða sterka plast-
þekju, spennta á járngrind, sem fest
er við húsvegg, er myndar þá eina
hliðina, og brotin saman upp að
veggnum, þegar skýlið er ekki í
notkun. Annars má fella það niður,
annað hvort alveg eða að eins miklu
leyti og þurfa þykir. Er þarna um
að ræða hið handhægasta skjól fyrir
bílinn gegn regni og hríð, þar sem
ekki er rúm fyrir venjulegan bíl-
skúr.
Kynni einhver að vilja kynna sér
gerð þessa af bílskýlum nánar, kall-
ast þau „Carquad" og eru framleidd
af Vickers Todd & Dawson Lmt.,
Burgess Hill, Sussex, Englandi, og
geta þeir þá snúið sér bréflega til
þeirra. Annars virðist smíði þeirra
svo auðveld og einföld, að framleiða
mætti þá hér á landi — auðvitað að
fengnu leyfi hinna brezku framleið-
enda, sem að öllum líkindum hafa
bréf upp á einkaréttinn.
Listin — ekki hvað sízt myndlist-
in — getur tekið á sig mörg form
og sköpunarmáttur listamanna leit-
að útrásar á ýmsan hátt. Howard
Munce, í Bandaríkjunum, tekur
gamla nagla, sem áður hafa verið
að festa járnbrautarteina,
sú þriðja vatnaskrímsli nokkurt, og
er þess ekki getið hvort þar muni
komið hið fræga skrímsli frá Lock
Nesh — eða kannski Kataness-
skrímslið. ★
LIST ER ÞAÐ LÍKA . . . .
LÓÐRÉTT FLUGTAK OG
LENDING - SC. 1.
sagar þá og klýfur með ýmsu móti,
beygir þá og vindur, unz þeir taka
á sig það form, sem nægir honum
til tjáningar. Þess skal getið, að þessi
verk hans eru nú á sýningum í
frægum „sölum“ víðs vegar um
Bandaríkin og „vekja almenna at-
hygli“.
Þess skal getið, lesendum til
nokkurrar glöggvunar, að fyrsta
myndin — þ.e. fyrsti naglinn — á að
tákna „baseballleikara", önnur leik-
fimismann í stökki yfir „kistu“ og
„Við getum ekki stært okkur af
að hafa náð valdi á fluginu fyrr en
okkur er fært að hefja okkur lóðrétt
frá jörðu af ekki stærri blettum
en flugkosturinn er sjálfur, haldið
honum kyrrum í lofti, eftir því sem
okkur býður við að horfa, fljúga
jafnt aftur á bak og áfram og lenda
síðan lóðrétt við sömu skilyrði og
við flugtakið", segir einn af kunn-
ustu sérfræðingum Breta í flugi.
Með öðrum orðum — maðurinn
verður að geta talizt jafnoki krumma
gamla í lofti, áður en kallast full-
fleygur, en allar þessar listir getur
sá svarti leikið og vel það, þótt stirð-
fleygur sé hann aftur á bak.
Síðan í lok síðari heimsstyrjald-
ar hefur verið unnið látlaust að
smíði flugvéla, sem fullnægt geti
öllum þessum kröfum — en þrátt
fyrir alla tæknina, verður ekki sagt,
að það hafi tekizt fyllilega. Að und-
anförnu hafa komið fram margar
gerðir flugvéla, sem fullnægt hafa
kröfunum að meira eða minna leyti,
en engin, sem fullnægir þeim að öllu
leyti. Nokkrar þeirra þurfa mun
styttri braut til flugtaks en venju-
legar vélar, og geta einnig flogið
tiltölulega hægt, en yfirleitt bitnar
það þá á flughraðanum. Það skal
þegar tekið fram, að hér er ekki átt
við þyrilvængjur eða svifþyrlur,
sem að vísu geta hafið sig til flugs
og lent lóðrétt, og þyrilvængjumar
einnig haldið kyrru fyrir í lofti, en
eru bæði mun hægfleygari og dýrari
í rekstri en aðrar gerðir.
Sú flugvélargerð, sem telja má að
einna næst hafi komizt því að full-
nægja fyrrnefndum kröfum enn, er
brezka VTOL-þotan SC. 1, sem hér
birtast myndir af. Að vísu flýgur
hún ekki aftur á bak. En hún nær
mjög hröðu, lóðréttu flugtaki og
getur einnig lent lóðrétt, „situr“ kyrr
i loftinu og getur flogið lárétt með
250 hnúta hraða. Til hins lóðrétta
flugtaks og lendingar er hún búin
fjórum þotuhreyflum, og má halla
stútunum um 35 gráður, en fimmti
hreyfillinn, aftast í vélinni, knýr
hana áfram í láréttu flugi. Eins og
myndirnar sýna, er þessi flugvél
ekki beinlínis rennileg — en það er
krummi gamli ekki heldur í lofti, og
satt bezt að segja, er ekki laust við
að nokkur svipur sé með þeim.
VIKAK
Útgefandi; ililmir h.f.
Hitstjóri:
Gísll Sigurðsson (ábm.).
Framkvíemdastjórj:
Hiimar A. Krisíjánssbn,
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt
33, Sírnar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreífing, ’Caugavegi 133, sími
36720. Dreifingarstjóri Oskar Karlp-
son. Verð i lausasölu kr. 20. Áskrifi-
arverð er 250 kr. ársþriðjungslega,
greíðist;íyrírfram. Prentun: Hilmi'r
h.f. Myndarnót: Rafgraf h.f.
FORSIÐAN
PRINZINN okkar, sem við ætlum að gefa einhverj-
_ um lescnda Vikunnar í jólagjöf, bíður óþolinmóður
eftir hinum nýja eiganda. Ekki á hann þó illa ævi
hjá okkur, því hann er aðallega notaður til að flytja fallegar stúlkur á fallega
staði, þar sem hægt er að mynda hann fyrir lesendurna. Hér sjáið þið tvær
slíkar stúlkur, Önnu Kristjánsdóttur (í rauðum kjól) og Guðbjörgu
Theodórsdóttur, þar sem þær eru að gæla við PRINZINN súður í Hafnarfirði.
í næstá blaði verður m. ac
• Makleg hvíld. — Viðtöl og grein um fullorðna menn, sem
hafa orðið að láta af störfum fyrir aldurssakir, athafnamenn
eins og Guðmund Thoroddsen lækni, Guðbrand Magn-
ússon forstjóra, Pál V. G. Kolka lækni og séra Þórð Odd-
geirsson.
• Geimfarinn. — Skemmtileg smásaga um geimfara — og bux-
urnar hans.
• Þegar moldin kallar. — Smásaga eftir Jórunni Ólafsdóttur.
• Islenzk álfamær. (Um Önnu Geirs með mynd).
• Ungt fólk á uppleið (Gunnar Eyjólfsson leikari).
• Allt um gluggatjöld. — Myndir og lýsingar á alls konar
gluggatjöldum, leiðbeiningar um þau og upplýsingar nauð-
synlegar fyrir allar húsmæður.
VIKAN 3