Vikan


Vikan - 25.10.1962, Page 15

Vikan - 25.10.1962, Page 15
SAGA EFTIR SIGURÐ EINARSSON í HOLTI — SÍÐARI HLUTI að ég fari með yður eins og þér væruð gestur minn, þó að það sé að- eins til málamynda. Ég sé, að þér hafið ekkert pantað. Hún kinkaði kolli. Við settumst. Þetta varð ógleymanlega skemmtilegur miðdegisverður. Ég verð að segja það, að ég lagði alla mína litlu heimsmannskunnáttu fram og hótelið í Punkaharju var gott hótel. Okkur tókst að setja saman skemmtilega máltíð og okkur tókst að rabba eins og við hefðum verið gamlir vinir. Ég fann til djúprar vellíðunar/ í félagsskap hennar, en kom það nærri því á óvart, að ég kenndi e'kki votts af óróleika. Ég var þvert á móti mjög öruggur og á einhvern mér óskiljanlegan hátt styrkti hún þessa öryggiskennd mína. Annaðhvort hefur hún verið gædd óvenjulegum aðlögunarhæfileika, eða skarpri greind, sem hún fól á bak við slæðu af kvenlegum þokka. Kannski hvort tveggja. Hún Var aðdáanlegur félagi. Ég tók til dæmis eftir því, að hún gerði sér far um, að það dyldist ekki, að við skemmtum okkur prýðilega, hlustaði jafnvel á smávægilegan hégóma af svo glaðvakandi athygli í látbragði, að þeim sem fjær sátu mátti sýnast, að borðfélagi hennar væri einstakur töfrari. Þeir hefðu átt að vita, hve fjarri sanni það var! Þegar við stóðum upp frá borðum, ætlaði ég að fylgja henni inn í setustofuna, þar sem kaffið var drukkið. Það var eins og hún hikaði við. Svo leit hún beint í augu mér, þagði stundarkorn og sagði: — Er yður sama, þó að þér drekkið kaffið uppi á svölunum hjá mér? Allt hótelið veit, að þér eruð settur til að vera félagi minn í fjarveru mannsins míns. Svo yður er alveg óhætt. Hún sagði þetta síðasta brosandi, en það var ekki vottur af ögrun í brosinu. — Ég þakka, frú Gessler. Það er yndislegt! Við gengum hægt upp stigana. Á neðsta stigapallinum leit hún til mín og ég bauð henni arminn. Við leiddumst alla leið að dyrum henn- ar. Ég tók eftir því, að hún gekk með nálega lokuð augu, en við gengum ekki eins og einn maður, ekki eins og ein vitund stýrði okkur báðum. í snöggri leifturskynjun fann ég, að hún var að ganga þessi spor með Theodor Gessler — ekki mér. Stofan þeirra var nálega helmingi stærri en mín, svalirnar rúm- góðar. Hún fylgdi mér út á svalarnir, bauð mér sæti, gekk síðan að bjöllunni og hringdi. Síðan settist hún á móti mér og beið. Það var rökkur á svölunum, aðeins skin Ijósanna innan úr stofunni og dvínandi dagsbirta. Þegar kaffið var komið á borð og þeman farin stóð hún upp: — Viljið þér koníak eða líkjör með kaffinu? — Þökk fyrir, glas af koníaki. Hún gekk inn í stofuna og kom með vínið og tvö glös, skenkti á þau, settist, þagði drjúglanga stund. Svo greip hún glas sitt, lyfti því, drakk mér til. —- Ég er ákaflega þakklát yður, að þér komuð með mér upp. Það er skvaldur niðri. Mér hefur liðið illa í dag og ég er hrædd. — Finnið þér ekki, hvað ég er hrædd? — Nei, frú. Það hef ég ekki fundið. — Gott, þá sjá það ekki aðrir. — Við hvað emð þér hrædd, frú Gessler? — Ég er hrædd um Theodór. Það kemur eitthvað vont fyrir hann. — Ég hér. Það kemur ekkert vont fyrir hann. Þér eruð nýgift, frú, og hamingjusöm, og óþolinmóð og yður leiðist. Það er allt og sumt. Þetta batnar. Eklci á morgun heldur hinn daginn. Hún anzaði þessu engu. Við dreyptum á kaffinu og víninu. Löng þögn. Ég fann, að hún ætlaði að segja eitthvað meira. Ákvað að verða ekki fyrri til máls. — Ég er líka hrædd um sjálfa mig. — Það kemur eitthvað illt fyrir mig. Hún sagði þetta þannig, að mér gat ekki dulizt, að þetta voru ekki duttlungar. Það var eitthvað, sem raunverulega þjáði hana. Samt fannst mér hyggilegast að slá þessu upp í gaman. Þetta er mjög algengt með nýgiftar konur, frú. Það er nánast lífeðlis- fræðilegt fyrirbrigði. Þér skuluð ekki taka það hátíðlega. Þetta batnar vanalega eftir þrjá mánuði. Hún anzaði þessu heldur ekki. — Ég er líka hrædd við yður, herra Ólafsson. Hún sagði þetta mjög lágt. Það var ótti í svip hennar, ótti fólginn í orðunum. Mér stórbrá, en ákvað að halda mínum tóni. — Það getur ekki verið alvarleg hræðsla. Ég er ekki hættulegur. Auk þess skildi ég herra Gessler svo, að það hefðuð verið þér sjálf, sem kusuð yður félagsskap minn þessa daga. — Það er satt. Ég gerði það, af því ég er svo hrædd — um okkur ÖU — og við yður. Þetta var óneitanlega mjög slæm rökfræði. Ég skildi ekki upp né niður. En mér var sannarlega horfinn allur galsi. — Kæra frú Gessler, þér hafið sýnt mér mikið traust, og ég er yður innilega þakklátur fyrir það. En finnst yður ósanngjarnt, þó að ég biðji yður um að skýra þetta nánar. Ég hef djúpa samúð með yður, af því að ég finn, að eitthvað mjög alvarlegt amar að yður. Eitthvað meira en leiði ungrar, hamingjusamrar konu yfir fjarveru ástvinar sins. — En ég skil yður ekki. Það er allt og sumt. Þess vegna er hætt við, að samúð mín og félagsskapur minn geti ekki orðið yður að æski- legu liði — nema þér getið skýrt þetta nánar. Hún sat lengi þögul. Svo stóð hún upp og skenkti í glas mitt. Settist. Sat þögul enn um stund. — Komið þér inn í stofuna, herra Ólafsson, mér er kalt. Við gengum inn. Hún benti mér á sæti, fór út á svalirnar og sótti bollana og glösin, gekk hægum skrefum að svaladyrunum. Lokaði. Hún nam staðar fyrir innan glerhurðina, sneri beint við mér. Rökkrið fyrir utan myndaði svartan ramma umhverfis hana. Hún var mjög föl undir gullinbrúnni slikju hörundsins. Lampinn í loftinu beint fyrir ofan hana sló ofurlitlum eirrauðum bjarma á dökkt hárið. Komgula hárbandið lýsti eins og baugur. — María Magdalena. — Ég reyndi að hrinda hugsuninni frá mér. María þú, sem elskaðir mikið. —- María Gessler, þú, sem ert hin sæla, sem elskar. — María Guðsmóðir, ora pro nobis peccatoribus — bið fyrir oss syndurunum.---------- Þessar hugsanir æða í gegnum vitund mína eins og flögrandi myndir á meðan hún stendur þarna undir Ijósinu með myrkur næturinnar eins og umgjörð og bakgrunn. Ég er hættur að sporna við þeim. Á meðan hún stendur þarna gerist ekki neitt. Á meðan ég hugsa svona gerist ekki neitt. Það er gott. Hér má ekkert gerast. Einhver dularfullur varðmaður í hugskoti mínu segir: Nú hreyfir þú þig ekki, segir ekki neitt, gerir ekki neitt. Grafkyrr! Viðbúinn! Hún gekk til mín, rétti mér glas mitt, tók sitt og sneri fæti þess milli fingranna. Svo lagði hún höndina á öxl mér, lyfti glasinu og við drukkum. — Ég veit, að ég má treysta yður, Ólafsson, sagði hún, þess vegna ætla ég að segja yður allt. Ég er hrædd. Mig hefur dreymt undarlegan draum. Ég þorði ekki að segja Theodór hann. — Ég gat það ekki. Það er voðalegt, en ég — ég gat það ekki. Það var líka yðar vegna. — Mín? — Já yðar. — Ég vildi ekki, að honum yrði illa við yður. — Þér ætlið að segja mér þenna draum, frú Gessler? — Já. Ég bjóst við, að hún héldi áfram. En það varð ekkert af því. Hún hallaði sér aftur á bak í stólnum, og leiddi mig augum undan hálflukt- um brám, eins og hún væri að skoða eitthvert furðuverk. Svo hnykkti hún til höfðinu og sagði í tóni, sem minnti á uppgefið barn: — Já, það voruð þér. Ég Iézt ekki heyra það. Kannski var hún móðursjúk, eða brjáluð, eða hver veit hvað. Það gerði ekkert til. Hún var óviðjafnanlega yndis- leg. Ég fann að mín veika dyggð og brothætta trúmennska voru í voða. Gerði mig harðan og myndugan: — Hvað dreymdi yður, frú Gessler? Hún leit upp, leit beint í augu mér. Það glitraði á tár í augunum. — Mig dreymdi — að við værum einhvers staðar á ferð, ég og þér. Við gengum í glóðheitu myrkri, gengum og leiddumst. Og það komu tvö augu æðandi á móti okkur utan úr þessu myrkri — ég þekkti þau. Það voru augu Theodórs. Ekki hann sjálfur, aðeins augun hans — og við tvö í þessu heita myrkri ... — Hvað varð um þessi augu? — Þau brunuðu að okkur skýrari og skýrari. Við lokuðum augunum og þau brunuðu inn um augnalokin á okkur. Þá greiu ég í báðar hendur yðar og sagði: Nú liættum við að sjá hvort annað. Ég man ekki meira. Ég vaknaði og síðan hef ég verið hrædd. — Hvenær dreymdi yður þennan draum, frú Gessler? — f fyrrinótt — rétt undir morgun. Ég kallaði á Theodór hér út á svalirnar í sólskinið, þegar ég vaknaði, til þess að hafa af mér óhugn- aðinn. Ég get ekki neitað því, að nú var mér alvarlega brugðið. Tvær al- ókunnar manneskjur, sami draumur á sömu stund. Á þessu augnabliki var ég áreiðanlega hræddari en frú Gessler. Ég sat eins og fjötraður. — Er yður að verða illt, Ólafsson? Þér eruð náfölur! Hún var komin alveg til mín. Ég spratt á fætur. Framhald á bls. 39. TIE4N 15

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.