Vikan


Vikan - 25.10.1962, Blaðsíða 16

Vikan - 25.10.1962, Blaðsíða 16
AL.LT fyri r „Suzie Wong“ Hún Nancy litla Kwan, sem við hér heima á íslandi þekkjum bezt undir nafninu Suzie Wong, er sannar- lega blönduð blóði og uppruna. Hún er að hálfu leyti Kínverji, að þremur áttundu Englendingur, að einum áttunda Skoti og auk þessa rennur Malajablóð í æðum hennar. Nancy Kwan er fædd fyrir tuttugu og þremur árum í Hong Kong og kom fyrst til London þrettán ára gömul. Þar hóf hún ballettnám og kom fyrst fram seytián ára. Eftir nokkurra ára dvöl í Lundúnum, hvarf Nancy aftur heim til Hong Kong, þar sem kvikmynda- fclk, sem starfaði að töku myndarinnar Suzie Wong, var á höttunum eftir ungri og efnilegri innfæddri stúlku, sem gæti tekið að sér aðalhlutverkið. Er skemmst frá því að segja, að einn góðan veðurdag kom það auga á Nancy litlu, og var þá enginn í vafa um hvernig hlut- verki Suzie Wong yrði bezt borgið. Eftir að Nancy „debúteraði11 í Suzie Wong, hafa allar dyr staðið henni opnar og leiðin til fjár og frama reynzt henni harla greið. Um daginn var að hún gifta sig • • • ★ „Það er kostur að vera feitur“. Það er haft eftir rokk-píanóleikaranum og söngvaranum Fats Domino, að það sé mikill kostur að vera vel í holdum og Fats Domino ætti sannarlega að vita, hvað hann syngur í þeim efnum, því að hann vegur hvorki meira né minna en 200 pund. Allir unglingar þekkja hann af hans framúr- skarandi skemmtilegu hljómplötum, vita að hann er einn hinna fyrstu rokkara og heldur enn sínum dæmafáu vinsældum og það fylli- lega að verðleikum. Það vita máski ekki allir, að Fats Domino er tiltölulega mjög ungur að árum, nefnilega fæddur hinn 26. febrúar árið 1928. Hann byrjaði að læra á píanó fimm ára, tók mikl- um og örum framförum á hljóðfærið og var aðeins nítján ára gamall, þegar hann tók að leika með danshljómsveit. Er það í frásögur fært, að þegar Domino hreppti sæti í fyrstu hljómsveitinni, sem hann lék með, hafi hann ekki beðið boðanna, en haldið upp á þann heiðurs- og heilladag með því bráðsnjalla tiltæki að ganga í hið heilaga með einni seytján ára ektakærustu, Rose- mary. — Rosemary mín elskar mig meira nú en nokkru sinni fyrr, segir Fats Domino og brosir í kampinn eins og hann einn getur gert. Nú er ég nefnilega 220 pund, en þegar ég kynntist Rosemary var ég mesti hor- krangi, aðeins 140. Já, það er mikill kostur að vera feitur. HAMINGJUSAMIR UNGLINGAR. Þessir unglingar, sem við sjáum hér á myndinni eru heldur en ekki hamingjusamir því að svo er nefnilega mál með vexti, að þeir eru nemndur í skóla einum í Englandi, sem grundvall- ast á alveg sérstökum uppeldisaðferðum. Þar fá nemendur að ráða sér sjálfir að mestu leyti, segja það, sem þá langar til og gera flest það, sem þá langar til. Svo mikið er frjálsræðið í skóla þessum, að nemendur hans ráða því sjálfir, hvað þeir læra og hafa valfrelsi um námsgreinarnar. Væri ekki tilvalið að koma upp slíkum „fyrrmyndarskóla“ hér á íslandi ... ? 16 VIKAN Billy Fury og The Satellites. Billy Fury er kunnur enskur dægur- lagasöngvari og heitir réttu nafni Ronald Wycherly. Hann náði um skeið miklum vinsældum og var þessi mynd tekin ein- mittum þær mundir, er hann stóð á há- tindi frægðar sinnar. Hljómsveitin, sem er með honum á myndinni kallar sig The Satellites. The Diriftérs The Drifters er nafnið á söngkvartett, sem í sjö ár var meðal vinsælustu söngvara Bandaríkjanna. Fyrsta plata þeirra félaga hét „Money Honey“ og setti hún allt á annan endann ef svo má segja og vakti óskaplega hrifningu. Eftir útkomu þess- arar fyrstu plötu fóru vinsældir þeirra félaga vaxandi með ári hverju. Nú mun söngkvartettinn The Drifters hafa verið leystur upp og þylcir trúlega að honum mikill sjónar- og „heyrnar“-sviptir. -A The Everly Brothers Allir kannast við dægurlagasöngvarana The Everly Brothers. Við höfum þann heiður að birta hér mynd af þeim ágætu bræðrum og vonum, að einhver hafi ánægju af.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.