Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 25.03.1964, Qupperneq 26

Vikan - 25.03.1964, Qupperneq 26
lýsir eftir sterkasta manni landsins — VIKAN 13. tbl. í skemmstum orðum sagt: VIKAN hefur látið smlða krafta- mæli og nú á að fá úr því skorið, hver mesta og bezta krafta hefur í kögglum. Þið sjáið mæta vel á myndinni hér að ofan, hvernig mælirinn lítur út og hvernig ber að taka á honum. Svo er um að gera að bíta á jaxlinn og gretta sig hæfilega til þess að reka endahnútinn á átakið. En sem sagt: nú þýðir ekki lengur að belgja út brjóstið og vera laundrjúgur. Mæl- irinn sýnir svart á hvítu svo ekki verður um villzt, hvort einhver seigla er I sinum eða einungis loft í blöðrunni. Allt að einu er þetta saklaust gaman og margir hafa haft gaman af því að spreyta sig. Við ætlum að fara með mæl- inn á vinnustaði og jafnvel á skemmtistaði (það vita allir hvað menn verða sterkir, þegar þeir hafa fengið einn lít- inn). Við ætlum að sjá, hvernig skrifstofumenn standa sig á móti erfiðismönnum, hvort lögreglan er eins sterk og orð fer af og ef til vill munum við fá einhverja þekkta kraftajötna til að taka á. Við höfum þegar farið í eina smiðju og til lögreglunnar og það voru mikil átök á báðum stöðum. Við segjum frá því seinna. Svona kraftamælir sýnir raunar að- eins krafta við eitt átak, en það gera allir mælar, hvort held- ur þeir eru kreistlr í lófa, eða settir fastir f gólf. Svo raunar

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.