Vikan - 09.07.1964, Blaðsíða 3
títgefandi Hilmir h.f,
Ritstjóri:
Gislt Sigurðsson tábm.).
Blaðamenn:
Guðraundur Karlsson og
Sigrurður Hreiðar.
Útiitsteikning:
Snorri Friðriksson.
Auglýsingastjóri:
Gunnar Steindórsson.
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33,
Símar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Pósthólí 533. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreiíing, LaugaVegi 133, sími
36720. Dreifingarstjóri Óskar Karlsson.
'Verð í lausasölu kr. 25. Áskriítarverð
er 300 kr. ársþriðjungslega, greiðist
fyrirfram. Prentun Hilrair h.f. Mynda-
mót: Rafgraf h.f.
VIRiATV
í NIÆSTA BLAÐI
SJÓNVARP REYKJAVÍK. Viðtal við Bencdikt
Gröndal um íslenzkt sjónvarp, efni jiess og
kostnaðinn við það, svo og þau áhrif, scm
líklegt er að íslenzkt sjónvarp hafi.
★
GÆFTALEYSI VIÐ GRÆNLAND. G.K. fór
í veiðiferð í Eiríksfjörð ásamt íslenzkum
sportvciðimönnum, cn aflinn var rýr. Hins
vegar var ferðin hin ánægjulegasta.
★
IIANN VILL HITTA VINI SÍNA. Greina-
flokkur um vandamál samhúðar.
★
NEYÐARKALL ÚR GEIMNUM. Fjórði hluti
þcssa æsispcnnandi greinafiokks.
★
VIÐ GULLFOSS OG f PJAXA. Grein um að-
búnað og ferðamannaaðstöðu við þcnnan
fegursta foss íslands, sem aðeins er 125 km
frá Rcykjavík.
★
I>AR AÐ AUKI: Síðan síðast, opna með mynd-
um. Smásaga eftir Nicholson. Framhaldssög-
urnar, Angelique og dr. No og úrdráttur úr
kvikmynd, sem sýnd verður hráðlega í
Reykjavík.
IÞESSARI VIKU
5 dagar á heimsýningunni í
New York
Flcstum kunnugum kcmur saman um, p.ð heim-
sýníngin í New York sé sú stórkostlegasta, sem liingað
til hcfur verið haldin, en fyrst og fremst sú skemmti-
lcgasta. Þetta er nefnilega miklu meira
en sýning, öllu fremur alþjóðlegt samfélag, kaup-
stefna fyrir listmuni og handiðnað, ævintýraland
með byggingum, svo djörfum og nýstár-
leguin að undrun sætir. Ýmis stærstu fyrirtæki heims-
ins keppast um að sýna hvað hægt er að gera
fyrir mátt tækni, en auk þess er heimsýningin einn
feiknarlegur skemmtistaður, þar sem hægt er að
eyða hálfum og líklega heilum mánuði í dýr-
legum fagnaði án þess að nokkur dagur verði öðrum
líkur. Grein í fjórum opnum eftir Gísla Sigurðs-
son, ritstjóra.
Hvernig á að fara á heimsýning-
una og hvað kostar það?
Það eru vitaskuld Loftleiðir, sem annast mannflutninga
af íslandi og vestur, þangað og nú þegar hin nýja
Rolls Royce flugvél er aðeins rúma 6 tíma
á milli, þá getur það ekki talizt mikið ferðalag. Við
höfum líka tekið saman eitt og ann-
að um hótelverð í New York.
Baðfatatízkan
Hvort þaö á að fara í sundlaugina á Ólafs-
firði, svamla í Laugarvatni, í gömlu Laugunum í
Reykjavík, Nauthólsvlkinni eða á baðströndum á Spáni
og Ítalíu — það skiptir minnstu máli. Baðfata-
tízkan tekur stöðugum hreytingum (hjartsýnismenn
segja að Uikini verði fyrirferðarminni með hverju
árinu) og cnginn lætur sjá sig í afdönkuðum sundbol.
Við höfurn tínt saman nokkrar myndir, scm
sýna það sem komið gæti til grcina.
ENNFREMUR...
Auk þess sein hér að framan er talið: Bílaprófun Vik-
unnar: Ilillman IMP, lítill og mjög viðkunnan-
legur bíll, cinn af keppinautum Volkswagen. Þriðja
greinin í greinaflokknum: Neyðarkali úr
gcimnum. Framhaldssögurnar: Angelique og dr. No
og bráðsmellin smásaga: Einkalíf eiginkonunnar.
FORSÍÐAN
Þetta er heimur bjartra lita og djarfra forma:
Svipmyndir af alheimsýningunni. Þarna sést til dæm-
is gata úr borg framtíðarinnar, einteinungsbrautir, Unisphere, og fornaldardýr.
- 3
VIKAN 28. thl.