Vikan - 24.09.1964, Side 12
ÞflÐSEM EKKI
TOKST flÐ
MYNDfl
ÚR DAGBÓK THELDU VICTOR - FYRRI HLUTI
Það er mikið ritað og
rætt um fræga kvik-
myndaleikara, og hvað
þeir gera í fríi og á
vinnustað. Þegar stóru
kvikmyndafélögin taka
myndir, er venjulega
hópur af blaðamönnum
umhverfis, sem skýra
frá öllu sem þeim
þykir markvert. Við
þekkjum og höfum
flest lesið slíkar
frásagnir.
Fyrir nokkru var verið
að taka kvikmyndina
„Night of the lguana“
í Mexico City. Ein
starfsstúlka kvik-
myndafélagsins,
Thelda Victor, sem
hafði 100 dala laun á
viku, tók sig til og
skrifaði dagbók um
hvað kvikmyndaleikar-
arnir aðhefðust á milli
þess að þeir voru að
leika í myndinni. Þessi
frásögn hennar varð
svo látlaus en jafnframt
óvenju skemmtilega
skrifuð, að VIKUNNI
finnst fengur í að
birta hana.
— VIKAN 39. tbl.
Mexíkóborg, 21. september. Á morgun er sá mikli
dagur. Við, þessar venjulegu manneskjur höfum
hangið hérna i viku, prófað langferðabílinn, sem
nota á i kvikmyndinni, en eiginlega verið að biða
þess að hinar konunglegu persónur — Liz og
Richard — haldi innreið sína. Það ætti að verða
eftirminnilegur atburður. Burton fær 500,000
dollara fyrir leik sinn í kvikmyndinni. Ava Gard-
ner sem ekki fær nema 400,000 dollara, kom í dag
—• en hún kom hávaðalaust. Mér sýnist hún eiga
allavega heima í lilutverki sinu, sem útlæg og
lifsþreytt gistihússtýra í sóðalegri, mexikanskri
borg. Hún er með dökkt húðsig undir augunum.
Ætti að láta taka það. Ég átti stutt samtal við að-
stoðarmann Johns Huston, Emilio Fernandez.
Þetta er alger villimaður. Hann ber tvær skamm-
byssur við belti og barðastóran stráhatt á höfði.
Hann virðist þegar vera farinn að gefa Övu Gard-
ner eldhýrt auga. Kveðst vera mjög þakklátur
fyrir þetta starf, þar eð hann hafi verið á svört-
um lista hjá mexikönskum kvikmyndaframleið-
endum síðustu sjö árin. Særði víst kvikmynda-
framleiðandann, sem hann vann lijá síðast, all-
hættulega með skammbyssuskoti.
Mér var sagt í dag, að auk skyldustarfa minna
sem ritari leikstjórans, Johns Huston, ætti ég að
fá þarna mitt fyrsta leikhlutverk. Ég á að leika
eina af kennslukonunum frá Texas í langferða-
bílnum. Burt leikur fararstjóra okkar!
Mexíkóborg, 22. september. Þau konunglegu eru
komin með föruneyti sínu. Ekki hávaðalaust.
Sjálf var ég ekki viðstödd athöfnina, en undan-
tekningarlaust vissu allir, sem fyrir voru, hvað
gerzt hafði, innan klukkustundar frá því að það
gerðist. Tennessee Williams hefði ekki samið leik-
rænna atriði. Ef marka má, sáu þau það úr flug-
vélinni að mikill mannfjöldi beið þeirra á vellin-
um. Richard Burton vildi að þau færu út, strax
og flugvélin var lent, en Elizabeth Taylor var ekki
á því. Um það hnakkrifust þau svo með' hrópum
og köllum. í sömu svifum ruddistEmilioFernandez
inn í flugvélina með skammbyssurnar dinglandi
á mjöðmunum. Hann greip um arm Elizabeth og
kallaði: „Komið með mér!“ Hún varð dauðskelk-
uð æpti og veinaði. Þá öskraði Burton: „Út úr
flugvélinni með þennan brjálæðing, áður en ég
drep hann!“ Engu að siður kom það í dagblöð-
unum að Elizabeth hefði sagt: „Ég hef alltaf þráð
að mega koma aftur til Mexíkó.“ Þar var einnig
vitnað i orð Burtons, sem ekki var eins hæversk-
ur: „Þetta er í fyrsta skipti, sem ég kem til Mexíkó,
og ég vona, einnig það síðasta.“
Mexikóborg, 23. september. Sue (Lolita) Lyon
kom í dag — hljóðlega, þar eð enginn virtist hafa
sérlegan óhuga í því sambandi. Hún lýsti yfir
því, að hún sæktist einungis eftir peningum, bætti
því við, að hún hefði ekki hugmynd um hvað hún
ætlaði sér að verða i lífinu, og sagði loks að hún
AVA GARDNER
SUE LYON
biði komu „vinar síns“, Hampton Fanchers III,
með óþreyju. Það vill svo til, að þessi vinur
hennar er kvæntur.
Ilún er sannarlega girnileg. Hún er íturvaxin,
frekar há og tággrönn, og hárið, sem er silfurljóst,
fellur slétt og þykkt að herðum. Hún er eggjandi og
kynheit, en yfirbragðið sakleysislegt og ferskt enn,
enda ekki nema 17 ára.
Ég Iauk við að lesa handritið að „Iguana“ í dag.
Leiksagan fjallar um siðspilltan, bandarískan prest,
séra Lawrence Shannon (Burton), sem tekur að sér
fararstjórn kennarahóps, sem ferðast um Mexíkó í
langferðabíl. Yngsti þáttakandinn í ferðinni, (Sue
Lyon), reynir að fá hann til við sig, en árangurs-
laust, en aðstæðurnar eru þó þannig, að hann óttast
um að hann haldi starfinu. Loks lætur stúlkukornið
sefazt í faðmlögum bílstjórans, (Skip Ward). Hóp-
urinn fær nú gistingu í hrörlegu hóteli, sem rekið
er af ekkju nokkurri, Ava Gardner). Þar hittir prest-