Vikan


Vikan - 22.09.1966, Page 5

Vikan - 22.09.1966, Page 5
Ég hef ekki efni á, að eitthvað komi fyrir hana. — Hversvegna ekki? — Ef það kemur eitthvað fyrir hana, fer Naxos í rusl, og ef það gerist verður hann ekki að neinu gagni fyrir okkur . , . - Okkur? — Þjóðina, sagði Loomis. — Hann á fimm prósent af Arbit Oil. Brezka stjórnin á fiörutíu og sjö og hálft prósent, fjörutíu og sjö og hálfur plús fimm eru fimmtíu og tveir og hálfur. Meðan hann greiðir atkvæði með okkur, fer allt vel. Hann and- varpaði. — Það var allt miklu auð- veldara fyrir okkur, meðan Naxos var ógiftur. — Þetta var Ifklegra, sagði Craig. — Þér er andskotans sama um stúlk- una. Hún er helvítis óþægindi, sagði Loomis. — En það má ekkert koma fyrir hana. Hann tæmdi glasið og stóð upp. — Það er næstum flaska eftir, sagði hann. — Það ætti að endast þér í nokkrar klukkustund- ir. Hann skálmaði til dyra og þar sneri hann sér við. — Ég verð þá að dugast við Grierson, sagði hann. — Helvíti. — Hversvegna? spurði Craig. — Hversvegna er það helvíti? — Vegna þess, að þetta er ekki fyrir hann. En hann er sá bezti, sem ég á eftir. — Nú, þegar þú ert stunginn af. Hann verður sjálfsagt drepinn, sagði Loomis. — Kvikindið þitt, sagði Craig, næstum hlýlega. — Setztu og segðu mér meira. Hann þreif flöskuna af borðinu og skellti tappanum í hana. — Sennilega ætti ég að kasta henni í vegginn, en Serafin gæti notað hana. — Serafin? — Gestgjafinn minn, sagði Craig. — Hann á þessa glæsilegu íbúð, sem ég dvel í um þessar mundir. — Það er pest hér, sagði Loom- is. — Það er líka pest af honum. — Hann er sjötíu og þriggja ára, sagði Craig. — Hann gæti ennþá rekið þig í gegn með hnífi af tutt- ugu feta færi. Hann leit á fyrir- ferðarmikinn Ifkama Loomis. — Ég held að það sé öruggt, að hann hitti. Helvíti ertu feitur, Loomis. Það er viðbjóðslegt. Loomis flissaði góðlátlega. Hann hafði fengið Craig aftur. Móðgun við og við var ekki hátt verð fyr- ir það. — Ég skal segja þér frá henni, sagði hann, — þegar þú hefur þurrk- að þig upp. Ég gef þér tíu daga, og þá hittumst við aftur í Aþenu. Það er eins gott fyrir þig að vera kominn í lag þá, Craig. Ef þú verð- ur það ekki, vil ég ekki sjá þig. Farðu nú út og veiddu eða smygl- aðu, eða hvað það nú er, sem gestgjafi þinn hefur fyrir stafni. Hann snaraði sér út fyrir og gleymdi ekki að skella hurðinni og Craig sat eftir og hugsaði um Tessu og vissi, að það var þetta, sem hún hefði viljað að hann gerði. Ein- hver þarfnaðist hjálpar; Tessa hefði ekki hikað. Það var vegna þess, að hún hafði reynt að hjálpa hon- um, sem hún hafði látið lífið. Serafin kom inn, leit á flöskuna með tappanum og brosti. — Sá feit er farinn — Og löggan. Hann leit á flöskuna’. — Er þetta búið fyrir þig? — Já, sagði Craig. — Sá feiti er góður. Sterkur mað- ur undir öllu þessu. Með höndunum teiknaði hann ýstruna og rassinn á Loomis út í loftið meðan Craig fór úr skyrt- unni og buxunum. — Ég ætla að synda, sagði hann. — Ætlarðu að veiða í nótt? Serafin kinkaði kolli. — Við tökum bátinn. Siglum. — Eins og í gamla daga, sagði Serafin. — Alveg eins og ( gamla daga. Ef þú vilt. Ég þarf að ná í pakka — ef þú vilt hjálpa mér. — Gerðu það sem þér sýnist, gamli þorpari, sagði Craig. — Ég er bara áhöfn. Hann gekk út í sólarljósið, skjögr- aði yfir brennheitan, glitrandi sand- inn, niður að hafinu, sem var að- eins í fimmtíu metra fjarlægð, og lét fallast í milt faðmlag þess og teygði úr sér í endalausum blám- anum. Ofan frá kofadyrunum fylgd- ist Serafin með honum. Craig var hættur við brennivínið og það var gott. Aður en langt um liði, yrði líkami hans harður og sterkur á ný, og Craig yrði hamingjusamur. Craig var Serafin jafn mikils virði og sonur hans, Stavros, og nú var Stavros læknir með praxis í Aþenu og allir á Andraki dáðust að hon- um. En 1944 hafði Craig bjargað lífi Stavrosar. Allt, sem Serafin átti, var hans. Hann tók að syngja, rödd- in var sterk og falleg, hann hlakk- aði til næturinnar. Stjörnurnar voru stórar og mild- ar, ekki með harðri demantsbirt- unni, sem ríkir í kulda norðursins, og Serafin og Craig drógu stóra, gamla bátinn fram, gamla tvígeng- isvélin drundi, hóstaði á lélegum strokk. Þetta hola, skellandi hljóð var óeðlilega hátt á þöglu hafinu. Báturinn var eins og allir Miðjarð- arhafsbátar, klunnalegur og frum- stæður, breiður um miðjuna og hár í stafni og skut. Serafin elskaði hann. Þeir sigldu út á Eyjahafið, þar til Andraki var ekki nema dökkur blettur á rauðum sjónum og Craig drap á vélinni, dró upp hriktandi seglið og svitnaði af þörf fyrir brennivín og sígarettur. — Hvenær veiðum við? spurði hann. — Seinna, sagði Serafin. — Stefndu í norð-austur, sonur minn. Craig hlýddi og báturinn hall- aðist meðan hann beygði; seglin gripu vindinn og vatnið gljáfraði framhjá. — Fyrsti fiskurinn verður í dós- um, sagði Serafin. — Haltu honum svona! Ég ætla að sofa um stund. Ég er gamall maður, kraftur minn er þorrinn. — Ekki segja steipurnar það, sagði Craig og Serafin flissaði, og svo var hann næstum þegar í stað tekinn að hrjóta, meðan hann safn- aði svefni gegn tímanum, sem hann þurfti að vaka. Craig hélt stefnunni, umluktur myrkri, ilminum af hafinu og til- finningunni af öldunum, sem gjálfruðu við stýrið. Hérna á bátn- um, með möguleika á hættu fram- undan, var hann heima. Brennivín- ið, rakíið og koníakið, sem hann hafði drukkið, hafði veikt hann mun meira en hann mátti við. Þann- ig átti ekki að minnast Tessu. Henn- ar aðferð var að hjálpa, eins og hann myndi hjálpa; gömlum manni, sem hann unni, stúlku, sem hann þekkti ekki, en til þess þurfti hann að vinna kraftana aftur, verða handstyrkur og stöðugur og fljótur í viðbrögðum. Hann hélt bátnum á stefnunni og reyndi að hugsa ekki um, hve mjög hann þarfoaðist á- fengis. Að undanteknum hrotum Serafins var hann aleinn í hlýju myrkri hafsins og barðist við dap- urlegar minningar, sem voru of Ijósar og of daprar til að láta und- an. Og þá heyrði hann það, hvin- inn í tveim vélum, orkumiklum og stöðugum, og hendur hans urðu rakar, þegar hann skynjaði í þús- undasta skipti yfirvofandi hættu. Gamli maðurinn hreyfði sig á þil- farinu og sagði: — Litastu um eft- ir Ijósi, sonur minn, rautt yfir grænu. Craig rýndi út í myrkrið og það var gamli maðurinn, sem kom auga á það, tvö strik á bakborða, og sagði honum að stýra þangað. Þeg- ar þeir nálguðust, kveikti Serafin á Ijóskerum og setti þau f röð á þilfarið, síðan sagði hann Craig að fara inn í káetuna. Það var óráð- legt fyrir hann að sjást. Craig hik- aði en hlýddi síðan. Serafin kunni sitt starf. Hávaðinn í vélunum jókst, og báturinn kom nær. Hraðskreið renni- leg snekkja; henni var vel stýrt, sett afturá á nákvæmlega réttu andartaki, og um leið og bátarnir snertust, var kaðli kastað yfir í beinabera hönd gamla mannsins. Craig heyrði raddir talast mjúklega við á grísku, hikandi, óvissar, síð- an glaðlega kveðju gamla manns- ins. Báturinn hallaðist, um leið og mennirnir klöngruðust um borð, og hann heyrði lestarlúguna opnaða, og það rumdi í manni, sem dró eitthvað eða bar, síðan skall kassi á þilfarinu. Sígarettur, sennilega, og skoskt viskí. Úr frá Sviss, kop- arvír. Það skipti engu máli. Það var ávani hjá Serafin að smygla. Hann gat ekki vanið sig af þvf, og það borgaði sig betur en fisk- veiðar. I stríðinu hafði hann smygl- að mönnum eins og Craig, þögl- um, hættulegum mönnum, sem drápu Þjóðverja. Það voru beztu launin fyrir Serafin. Craig heyrði lestarlúgunni lokað, og sfðan hallaðist báturinn aftur, þegar fleiri komu um borð. Aftur heyrðust háværar raddir, og Sera- fin svaraði reiður, mótmælandi. Að lokum varð þögn, og Craig fann svitann streyma úr líkama sínum og hendur hans og handleggir skulfu. Svo barst fótatak í áttina að káet- unni, og hann renndi sér undir rekkjutjöldin, heyrði dyrnar opnast, sá bjarmann frá vasaljósi og síð- an kallaði karlmannsrödd á þýzku: — Það er enginn hér. Hann segir satt. Káetudyrunum var skellt, en þær lokuðust ekki alveg, og slóg- ust til, þegar báturinn hófst og hné. Svo hallaðist hann einu sinni enn, og Craig velti sér fram úr fylgsni sínu og svipaðist um eftir vopni. Þar var ekkert nema vín- flaska. Hann tók um hálsinn á henni og gekk fram að klefadyr- unum, heyrði að kaðlinum var kast- að yfir í snekkjuna og síðan vélar- gnýinn f henni. Nú voru þrfr menn um borð auk Serafins og hans sjálfs. Hann gekk fram úr káetunni, um leið og snekkjan fór burt, og bát- urinn hoppaði í kjölfarinu. Hann gekk hljóðlaust á berum fótum að netahrúgu og umhverfis hana, þangað til hann sá Serafin í birt- unni frá þilfarsluktinni. Tveir menn stóðu andspænis honum, og sá þriðji svolítið framar og horfði á mjólkurhvítt kjölfarið eftir snekkj- una. Annar mannanna var með byssu. Hann sagði: — Gerðu eins og þér er sagt, gamli maður. Þessi bátur fer til Menos. Þú hefur þfn fyrirmæli. Þér verður borgað. — Ég hef aldrei samþykkt þetta, sagði Serafin. — Ég ætla ekki . . . Hönd hins mannsins hreyfðist hratt og hnitmiðað og sló Serafin þvert yfir andlitið. Serafin stirðn- aði upp, og svitinn spratt aftur út á Craig, þar til Serafin gekk að stýrish jól inu. — Annar ykkar verður að setja vélina í gang, sagði hann. Byssulausi maðurinn tók lúguna ofan af lestinni og meðan hann gerði það, kom Craig framundan hrúgunni og sló byssumanninn aft- an á hálsinn með flöskunni. Hann féll eins og viðardrumbur, og hinn maðurinn snarsnerist á hæli og kast- aði lestarhleranum að Craig. Hann lenti aðeins um þumlung frá berum tánum um leið og Craig stökk aft- ur á bak, og hendur hans skulfu af vanmætti. Maðurinn sem hafði næstum fótbrotið hann, kom hægt nær, og Craig sá, að hann var einnig vopnaður með hnífi, löngum með ofurlftið íbjúgu blaði. Craig hreyfði sig varkár, bölvaði klunna- skapnum í sjálfum sér, en síðan stökk maðurinn að honum og lagði til hans með hnífnum. Craig ætl- aði að hremma olnboga mannsins um leið og hann sneri sér und- an, en var of hægfara, lagið geig- aði og hnífurinn renndi yfir rif- bein hans. Hinn maðurinn vék sér undan og hjó aftur og aftur. Craig heppnaðist aðeins að víkja sér und- an. Þeir tifuðu hægt í hringi og Craig fann þreytuna og aumingja- skapinn vaxa hið innra með sér, og vissi, að hann myndi þola eina Framhald á bls. 50. VIKAN 5

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.