Vikan


Vikan - 22.09.1966, Síða 6

Vikan - 22.09.1966, Síða 6
Barninu líður vel í húðinni! Barninu lídur vel-þegar notað er Nivea babyfein. Hin reynda móðir veit hvers vegna hún velur 'babyfein handa barni sím: Þessar samstiljtu fram- leiðsluvörur - krem, olía, púður, sdpa - innihalda allt, sem húðlteknirinn dlítur nauðsýnlegt hinni viðkvæmu húð barnsins. Börn, snyrt með babyfein, fa hvörki særindi, né rauða og bólgna húð. Q NIVEA JoÉtjföít' CEnDiicníinn® ÍDÚ 'ÍP i oHlnUulnlB W M 1 HVERFISGÖTU 50. - SÍMI 18830. Eins manns sveínsófi Stærð 145x75 cm. lengist með bakpúðunum í 185 cm. Sængurfatageymsla undir dýnunni. Stólar fást í stíl. HÚN ER FEIMIN. Kæri Póstur! Það vill svo illilega til að ég er ein af þeim fjölmörgu sem drepast bráðum úr feimni. Það er nefnilega þannig mál með vexti að ég er bálskotin í strák sem á heima í næsta húsi við mig og er tveim árum eldri en ég, en ég er fjórtán. Ég hef aldrei verið með strák og er farin að örvænta. Ég er kannske ekki beint lagleg en er það sem kall- að er að vera sæt, og er vel vax- in. Og nú ætla ég að biðja þig kæri Póstur um ráð til að kynn- ast þessum strák. Ég hef nokkr- um sinnum talað við hann og veit að hann er líka dálítið feiminn. B. X. Z. P.S. þú mátt svara með eins mikl- um útúrsnúningum eins og þú vilt, bara ef þú kemur með gott ráð. B. X. Z. Veiztu hvaða áhugamál hann hef- ur? Reyndu að komast að því, og ef hann er t.d. bítilóður, get- urðu reynt að verða þér út um góða bítlaplötu og spila hana svo hátt og lengi við opinn glugg- ann, að hann komist ekki hjá að heyra — og heillast. Annars er þér engin ástæða til að ör- vænta strax, aðeins sú sem er 20—21 ára og hefur aldrei „ver- ið með strák“ þarf að fara að athuga sinn gang, svo þú getur verið róleg næstu sex árin. En reyndu þetta með bítlaplötuna — er ekki guli kafbáturinn í al- gleymingi núna? UNGLINGAVANDAMÁL. Kæri Póstbréfsvarari! Ég hefi orðið vör við að nú er orðið mikið hitamál í þætti þínum, hvorum það er að kenna, stjómarvöldunum, eða heimilun- um, ef unglingamir fara í hund- ana. Þótt ég sé enn bara talin unglingur, langar mig að leggja hér orð í belg. Ég tel mig eiga yndislega foreldra og gott heim- ili. Ég hefi mitt eigið herbergi, og mó bjóða heim kunningjum, hvenær sem er. Líka þótt gestir séu hjá pabba og mömmu. Þrátt fyrir þetta allt, hefi ég ekki allt- af verið fyrirmyndar unglingur. Ég og systir mín vorum töluvert úti að skemmta okkur. Komum heim seint á kvöldin bg gegnd- um engu af því sem „karlinn og kerlingin voru að pípa“. Við töldum þau ekkert hafa vit á því hverng ala átti okkur upp. Við gátum gert það sjálfar. Við lentum jú í okkar vandræðum, en komumst frá því af eigin rammleik. Nú er ég talin fyrir- myndar heimasæta, ein af þess- um ágætu unglingum, í góðri stöðu og búin með skóla. Systir mín er gift og orðin 'fyrirmyndar húsmóðir. Ég myndi aldrei kenna hvorki þjóðfélaginu né foreldrum mínum um víxlspor mín. í sum- um tilfellum er kannske hægt að kenna heimilunum um víxlspor unglinganna, en það er ekki oft. Ég álít að allir unglingar eigi sitt erfiða timabil (frá 14 til 16 ára) meðan þeir eru að reyna að skilja sjálfa sig og vita ekki hvað þeir vilja. Ég álít að á þessum árum sé bezt að ungl- ingarnir fái að vera sem mest í friði og taka sem flestar af ákvörðunum sinum sjálfir. Og að síðustu, hvernig er skriftin og stafsetningin Unglingur. Það er á bréfi þínu að sjá, að víxlsporin séu ekki ýkja mörg eða hastarleg, og kemur þar sennilega tvennt til: Góðir for- eldrar og gott upplag. Jafnvel þótt þið systur gerið ykkur ef til vill ekki grein fyrir því, hefur afstaða og aðferð foreldranna gíf- urlega mikið að segja, þau „pípa“ kannski eitt og annað sem þið látið inn um annað eyrað og út um hitt, en sumt af því síast inn og það er mest um vert. Og það er ekki einasta nöldur foreldr- anna við börnin, sem áhrif hef- ur, heldur framkoma þeirra og viðhorf hvors til annars og hug- arfar þeirra almennt. Það er al- veg öruggt mál að þjóðfélagið — og foreldramir sem uppalendur og þjóðfélagsþegnar — hafa mest að segja í þessum málum og öðrum þem, sem varða „ungl- ingavandamálið“ og önnur mál samfélagsins. BÍLAKYNNING. Kæri Póstur! Einhvern tíman í fyrra, eða þar áður, birtuð þið hjá Vikunni myndir af þeim bifreiðum sem voru á markaðinum (nýja bíla) það árið ásamt áætluðu verði hverrar tegundar. Þetta var í alla staði mjög gott, 6 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.