Vikan


Vikan - 22.09.1966, Qupperneq 32

Vikan - 22.09.1966, Qupperneq 32
AEG Eldavélar: Fjölmargar gerÖir. Helluborð: Tvær gerÖir: Inngreypt eða niðurfelld. Klukku- rofi, borð úr Krómnikkel- stóli, sjólfvirk hraðsuðu- hella m. 12 hitastilling- um. Bakaraofn: Klukkurofi, tvöföld hurð, innri hurð með gleri, Ijós í ofni, infra-grill með mótordrifnum grillteini. Lofthreinsari: Afkastamikill blósari, loftsia, lykteyðir. SÖLUUMBOÐ UM ALLT LAND REYKJAVÍK: HÚSPRÝÐI H.F. Laugavegi 176. — Símar 20440 — 20441. BRÆÐURNIR Vesturgötu 3. Sími 11467. ORMSSON H.F. STJÖRNUSPÁ Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl)* Þú verður vitni að atburði sem þú verður lengi að • sœtta þig við, en hann mun eigi að síður verða þér til góðs síðar meir. Þú færð smá viðurkenningu á vinnustað og áttu hana fyllilega skilið. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú færð freistandi boð, en sennilega áttu ekki að sinna því. Taktu það ekki illa upp þó vinur þinn ætlist til mikils af þér, hann rétti þér hjálparhönd þegai4 illa stóð á fyrir þér. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú verður að haga þér gætilega til að koma ekki illa við neinn. I kringum þig eru persónur sem eiga í miklum erfiðleikum og skaltu því haga þér sam- kvæmt því. Vertu heima á kvöldin. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þverlyndi þitt verður til þess að þú missir af nokkru sem þú hefur áhuga á og því miður snýr það ekki aftur. Þú skemmtir þér mjög vei á fjölmennri sam- komu og eignast nýjan kunningja. Tvíburamerkið (22. maí — 21 júní): í>ú stendur frammi fyrir vandamáli og eygir tvær leiðir til úrlausnar. Dragðu að ákveða þig' eins lengi og hægt er því þú hefur enn ekki fengið að vita allt sem til þarf. Heilladagur er þriðjudagur. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú skalt ekki vera svona áhyggjufullur, það eyði- leggur aðeins ánægju þína af því sem þú þegar hefur. Þú ert mjög duglegur og mátt vera ánægður með þá aðstöðu sem þú ert nú þegar í. % Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Þú lærir nokkuð sem á eftir að auðvelda þér störf þín til muna. Þú hefur sterka ábyrgðartilfinningu en ert ekki nógu ánægður með hlutverk þitt og aðstöðu þína til að inna það af hendi. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú hefur verið nokkuð óræður og dularfullur und- anfarið og hefur það orðið til þess að kunningjar þínir hvíslast á um þig. Þú verður fyrir reynslu sem á eftir að koma þér vel síðar meir. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Vikan verður mjög ánægjuleg fyrir þig og þína nánustu. Gefðu þér tíma til að vera með fjölskyldu þinni og sinna hverjum og einum. Hugsaðu þig vel um áður en þú tekur bindandi ákvarðanir. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúarl: Eitthvað kemur þér óvænt um helgina en það verð- ur til að bæta um fyrir þér. Þú færð fljótlega nokkra hjálp sem þú gerir þér mikið úr. Þú vinnur mjög mikið á mörgum vígstöðvum. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Þú færð til geymslu hluti sem þú átt í erfiðleikum með. Framkoma eins ættingja þíns er þér mikii ráðgáta sem þú færð seint gilda skýringu á. Þú ert niðursokkinn í eigin rannsóknir. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Vikan verður fremur leiðinleg en það er mikið þér kenna vegna þess hve neikvætt þú ert stilltur. Þú ert orðinn óþolinmóður að bíða eftir einhverju. Föstudagurinn verður góður dagur.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.