Vikan


Vikan - 22.09.1966, Qupperneq 33

Vikan - 22.09.1966, Qupperneq 33
r 60 lítra ísskápur. 5 ára ábyrgð á kæliþjöppu. 120, 200 og 250 lítra kæliskápar, einnig 330 t árs ábyrgð á öðrum hlutum. lítra sambyggður kæli- og frystiskápur. - eru mest seldu heimilistækin í Noregi - enda vönduð og verð mjög hagkvæmt. Gjörið svo vel að koma og skoða eða skrifið eftir myndalista. Frystikistur 320 og 500 lítra. EINAR FARESTVEIT & CO. H.F. Vesturgötu 2, II hæð, sími 16995. Kistan frystir 20 pakka/hver 1 kg. frá + 30° í -*■ 18° á 24 klukkustundum. Frostið í kistunni getur farið niður í -t- 30°C. J hrindir mér frá sér. Og það lamar mig. Ég lá vakandi og hélt að hún svæfi. En þá sagði hún svo lág- um rómi að varla heyrðist: — Myndir þú trúa á guð, ef þú gætir? Hverju átti ég að svara? Hver var guð? Eitthvað áþreifanlegt. Sjúkdómsóra|r. Skynvilla fyrir ráðvandar nunnur, á gömlum málverkum. — Veiztu hversvegna ég trúi? Ég heyrði að hún settist upp í rúminu og dró djúpt andann. — Jú, vinur, ég trúi því að guð sé til — vegna þess — vegna þess — að það væri svo hörmu- legt ef hann væri ekki til, vegna þess að það væri svo napurt ef ég, sem ekki hef átt við neitt gott að búa og svo margir aðrir, sem búið hafa við ennþá verri kjör — ef við nú tryðum því, þegar mér finnst ég sjá hann, sjá hann koma nær og nær með hverjum deginum og hverri nóttinni — nei, það væri svo óumræðilega þungbært ef það væri aðeins í- myndun og blekking. Ég get ekki trúað því að allt sé svo hræðilega tilgangslaust. Ég verð að fá að vita sannleik- ann, því það hlýtur að vera eitt- hvað meira en þetta líf hér á jörðinni og einhver hlýtur að vita það og þekkja. Ég hef alltaf von- að að ég fengi að sjá og vita eitt- hvað meira, og þyrfti ekki allt- af að vera svo fávís og einföld eins og nú. Ég hef eiginlega ekkert séð og veit heldur ekkert, en þrátt fyrir það hef ég alltaf verið svo viss, — svo viss um það — og svo væri það aðeins ímyndun — þá væri (ég fann að hún lyfti höndunum) þá væri það svo grimmilegt, svo háðu- legt — að þetta auma þrældóms- líf væri allt og sumt. Ég fann — það var svo dimmt að ég gat ekki séð það — að hún hneig örmagna niður á svæf- ilinn. Ég stóð upp og gekk til hennar. Hún lá þar — og augu hennar, sem ég þá sá — þau hafa gert mig ókunnugan meðal þeirra, sem lifa. — Heldur þú að snjórinn heima í fjöllunum þínum sé þiðnaður? — Ef snjóa hefur leyzt í land- inu þínu, þá leysir líka bráðum snjóa á íslandi. — Dreymir þig, Hlíf. — Já. — Hvað dreymir þig? — Mig dreymir að ísland færist til í hafinu um þumlung hverja nótt. Og smám saman bráðni snjórinn á norðurströnd þess. Eftir tvö þúsund ár verða strendur þess orðnar heitar eins og þær risu upp úr Suðurhafi. f staðinn fyrir dvergsóleyj ar yxu þar í röðum rauð og fjólublá klukkublóm á háum tígulegum stönglum. Og fugla- og skordýra- mergðin iðaði og glitraði eins og gull og silfur. íshellurnar og klakahrannirnar eru horfnar, í þeirra stað vex upp þéttur, lauf- ríkur skógur í kringum bæina til verndar gegn stormum og kulda. Ég verð þar líka og þú. En þá er ég ekki lengur veik og spýti ekki blóði, þá þarf ég ekki held- ur að vinna fyrir mat mínum. Nei, þá verð ég sterk og hraust og þarf ekki að fyrirverða mig fyrir ástaratlot þín. Þá situr þú hjá mér og talar við mig um allt, sem þú hefur hugsað og séð, og ekkert vagnskrölt trufl- ar okkur, en fossniður vaggar okkur í svefn meðan norðurljós- in braga á bláum kvöldhimni. Það skeði í nótt um tvöleytið. Ég heyrði að hún hreyfði sig. Ég kom ekki upp nokkru orði. Einhver óljós ótti greip mig. Hún steig framúr rúminu. Hægt fet fyrir fet þreifaði hún sig áfram út að glugganum. Hún lagðist með báða olnboga fram á gluggakistuna, þar stóð hún og horfði út. Því næst kom hún til mín. Hún lagði sig við hlið mína. Hár hennar straukst við andlit mitt. Ég kreisti aftur augun, næstum krampakennt. Þannig lá hún lengi. Svo gat ég ekki beðið lengur. Ég hvíslaði: Hlíf! Hún svaraði ekki. Ég vafði hana örmum og leit í augu henn- ar. Ég sá í rökkrinu að þau voru brostin. Ég hélt arminum um háls hennar. Jörðin hélt áfram göngu sinni og mennirnir héldu áfram að sofa. Nú er ég aftur einmana, meira einmana en áður. Ég reika um eins og svefn- gengill. Fólk gengur fram hjá mér, en mér sýnist það eins og skuggar frá öðrum heimi. Ég er að hugsa um að ferðast burtu. En það er eitthvað, sem hamlar mér, — þessar götur, þessi hús, þessi ljósker — ég geng fram og aftur milli þeirra í staðinn fyrir að fara burtu. Ég stari á allt þetta rétt eins og það hefði mannsaugu. — Læð- ist einhver á eftir mér? Mér er vel við bryggjurnar utan við borgina. Ég fer þang- að án þess ég veiti því athygli fyrr en ég er kominn þangað og ég get staðið þar tímunum VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.