Vikan


Vikan - 27.04.1967, Page 19

Vikan - 27.04.1967, Page 19
Undirbyggingin úr hlöðnu grjóti, grasið í hlíðinni, rabarbarinn rænfangið ásamt girðingunni og hliðinu, allt stuðlar þetta að því að húsið fellur þrátt fyrir allt mjög vel inn í umhverfið. Nýi tíminn fæðist á grýttum berangri þar á Patreksfirði; báturinn gamli sem stendur einn og yfirgefinn niðri á mölinni og myndar skemmtilega andstæðu við splunkunýtt og skemmtilegt íbúðarhús Finnboga Magnús- sonar skipstjóra, það var í byggingu þarna upp í hlíðinni. Hann hefur verið mjög fengsæll skipstjóri eins og sjá má á húsinu. Guðrún Guðmundsdóttir, 18 ára, hefur unnið við afgreiðsustörf á Pat- reksfirði. Hún er þaðan úr plássinu. Hún hefur verið í skóla á Núpi 1 Dýrafirði; falleg ung stúlka með látlausa og elskulega framkomu, góður fulltrúi fyrir ungu kynslóðina vestur á fjörðum. Hún sagði að það gæti verið miklu meira fjör á vetrarvertíðinni á Patreksfirði, en margt ungt fólk færi þó i burtu. Og á sumrin fara margir á síidina. Samkomuhúsið á Patreksfirði heitir Skjaldborg og þar eru ekki mjög oft böll á sumrin en þá er farið í Birkimel á Barðaströnd. En það er bíó á Patreksfirði og Guðrún íer oft i bíó. Henni finnst gott að vera þar og getur prýðilega vel hugsað sér að eiga þar heima. IIESTUR Á FJORDUM Vestfir8ingar hafa lengi haft orð á sér fyrir það að vera þrekmikið og gott fólk. Þeir þurftu ó þrekinu að halda í viðureign við nóttúruna; það varð ekki komizt milli staða öðruvísi en að ýta bóti á flot eða klifa fjöll. Nú er samgöngurnar orðnar greiðari, ógætir vegir tengja firðina saman og síðan bilaeign varð almenn, hefur fólk úr öðrum landshlutum flykkzt þangað að sumarlagi, enda er landslagið í senn stórbrotið og hrikalegt. Sumsstaðar er afskekktin allt að þvi yfirþyrm- andi, á öðrum stöðum verður maður ekki var við þessa tilfinningu og víða er uppbygging í fullum gangi eins og annarsstaðar á landinu. Hér á eftir eru nokkrar svipmyndir af stöðum og fólki vestur á fjörðum. TEXTI OG MYNDIR: GÍSU SIGURÐSSON. :: ■ '■ ■ Ef til vill eru gluggarnir ekki alveg eins stórir eins og tíðkast að hafa hér syðra, en að öðru leyti minnir þessi nýja húsaröð á Patreksfirði mjög á ný hverfi t.d. í Reykjavík. Og maðurinn við staurinn er sjálfur sýsluskrifarinn í plássinu, Skúli Magnússon, fæddur í Teitsdal í Arnar- firði. Hann er spakur að viti, hefur numið heimsspeki í Kína og eiga ekki margir íslendingar sammerkt með honum í því. Eftir stúdentspróf frá Laugarvatni fór hann til Kína árið 1957 og var í Peking á vegum Menningartengsla íslands og Kína. Hann lærði kínverskuna og lagði auk þess stund á heimsspeki, sem raunar var ekki marxistisk nema að litlu leyti. Þar var hann hátt í fjögur ár og þóttist þá nægilega undir- búinn til þess að geta aftur horfið á bernskuslóðir vestur á fjörðum. Honum líkaði mjög vel við fólkið í Kína, taldi það vinsamlegt og for- dómalaust og engri mætti hann andúð. Þá voru rauðir varðliðar óþekkt fyrirbrigði. Heimkominn kenndi hann einn vetur á Bíldudal, en hefur verið sýslu- skrifari hjá sýslumanninum á Patreksfirði síðan 1963. Það starf er aðal- lega fólgið í innheimtu skatta, tollútreikningi, þinglýsingum og umsjón með bókhaldi sjúkrahússins. Skúli segir mest af fólkinu á Patreksfirði aðflutt af Barðaströnd eða Rauðasandi, en tiltölulega lítið af gömlum innfæddum Patreksfirðingum. Nú orðið flytur fólk þó orðið lítið í burtu, enda er afkoman prýðileg og oftast aflast vel frá Patreksfirði. 17. tbi. vikan 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.