Vikan - 27.04.1967, Page 28
GEIMFARI
IIERDUR
IIL
V ___________)
EFTIR
EDWARD A. HERRON
' 'N
ÁÐUR EN GEIMFARI
ÞÝTUR í FYRSTA
SINN ÚT í GEIMINN,
VERÐUR HANN AÐ
GANGA f GEGNUM
TVEGGJA ÁRA ÞJÁLFUN,
ANDLEGA OG LÍKAMLEGA
V ___________)
Sjónvarpsmyndatökuvél sem kennir geimförunum aS taka myndir
af tunglinu. Þetta cr æfingaklefi i beig Grumman flugbáts.
Þeir komu í gegnum glerdyrnar, einn og
einn eða iveir og Iveir saman, í einkennis-
búningum frá lofther, sjóher og landgöngu-
liði Bandaríkjanna, og einnig í borgaraleg-
um fötum. Þeir hnöppuðust inn í fundarher-
bergi í læknadeild geimfaraskólans á Brooks
herflugslöðinni í Texas. Allir voru menn-
irnir grannvaxnir og horaðir, eins og orr-
ustuþotuflugmenn eru að jafnaði. Allir voru
þeir umsækjendur um stöðu sem geimfar-
ar hjá bandaríska geimferðaráðuneytinu
(NASA).
Hver þeirra var svo falinn umsjá eins
hinna líu lækna, sem svo spurði hann
spjörunum úr um heilbrigðisástand hans frá
fæðingu. Svo fengu þeir lista yfir það hve-
nær þeir áttu að mæta til rannsókna sem
miðuðu að þvi að finna leynda líkamsgalla,
ef þeir væru til staðar. Þessar hárnákvæmu
prófanir voru sannast sagna ógnvekjandi. Dr.
James Culver, undirofursti í flughernum og
sérfræðingur í augnsjúkdómum sagði: - - Við
höfum áhuga á rannsóknum sem gera okkur
kleift að sjá fyrir, ekki aðeins hvernig hver
einstakur geimfari rækir skyldur sínar, held-
ur líka hve lengi þjóðin getur vænzt óað-
finnanlegri þjónustu af hans hendi. Það er
mikið í húfi. Það þarf mikinn tíma og pen-
inga til að þjálfa þessa menn.
Á deild Dr. Culvers einni saman eru fram-
kvæmd 60 nákvæm próf á 10 mismunandi
stöðvum augans, og allar rannsóknir, sál-
fræðilegar og líkamlegar eru eftir því. Mönn-
unum er fleygt fram og aftur í myrkvuðum
herbergjum og þeytt í miðflóttaaflsstrokk-
um, svo læknarnir geti mælt og rannsakað
viðbrögð hjartans. Á öðrum stað eru gerðar
rissmyndir af því er rafstraumi er beint í
gegnum hjartað. Þeim er dengt niður í fleyti-
28 VTKAJST 1T- <*»•
Hylki scm þjálfar geimfarana í að vinna við þyngdarleysi.
fulll vatnsker, og svo er nákvæmlega
mælt það vatnsmagn sem flýtur yf-
ir, það er gert til að ákveða eðlis-
þyngd. Röntgenmyndir, blóðpróf og
nálarstungur voru alveg óteljandi.
Þetla stóð yfir í sjö daga og þá
lágu fyrir ótal skýrslur frá öllum
10 rannsóknadeildum.
Flestir sem standast þessar próf-
raunir eru fullþroska menn og hafa
yfirleitt yfir 1800 flugtíma á orr-
ustuþolum og verið undir heraga.
Samt eru þessir menn eins og feimn-
ir skóladrengir, þegar þeir ganga í
fyrsta sinn inn um dyrnar á þjálf-
unarstöðinni í Houston, Texas. En
það fer fljótt af þeim, þeir eru fljót-
ir að taka við sér.
Kennsla þeirra og þjálfun er
ekki tilviljunarkennd, hún fer fram
eftir nákvæmlega skipulögðu kerfi.
Það er Ray Zedekar, aðstoðar-
maður við forskólaþjálfun hjá
NASA, sem semur áætlun um
þjálfun geimfaranna, en yfirum-
sjón hefur Deke Slayton, einn af
sjö fyrstu geimförunum. t
Alhliða þjálfun stendur yfir í um
það bil 18 mánuði. Þrjá daga vik-
unnar í fyrstu fjóra mánuðina,
mæta flugmennirnir kl. 8 á morgn-
ana. Fyrsta kennslustundin stendur
yfir í tvo tíma, svo er önnur
kennslustund fyrir hádegi, og sú
síðasta milli kt. 2 og 4. í hádegis-
hléinu, er ætlast til að flugmenn-
irnir viðhaldi líkamsþjálfun í fim-
leikasal skólans.
Þarna er um tíu námskeið að