Vikan


Vikan - 27.04.1967, Síða 39

Vikan - 27.04.1967, Síða 39
38 VIKAN 17- tbl- Margir alþingismenn unna ís- lenzkri tungu, bókmenntum og sögu, enda vel menntaðir af námi og störfum. Þeir ættu að vera dóm- bærir um meginatriði þess, hvort ís- lenzk mannanöfn séu fögur eða Ijót. Þess vegna sætir undrum, að þeir skuli una því ófremdarástandi, sem nú ríkir í þessu efni, eins og frystir í kæliklefa tregðunnar. Lands- feðurnir eiga að vísu annrlkt, en þessu máli og öðrum slíkum verða þeir samt að sinna, enda til þess kjörnir eins og að skipuleggja þjóð- arbúskapinn. Væri mátulegt að dæma þá að læra utan að bók Þorsteins fyrrverandi hagstofustjóra, ef þeir vanrækja enn um sinn að láta sér hana að kenningu verða. Lögunum yrði sennilega breytt á sama alþingi. ☆ Rómantík í San Remo. Framhald af bls. 5 Þarna málti líka sjá Marianne Faithfull, Connie Francis, Dianne Warwick, góðkunningja okkar The Hollies, hina spænsku Los Bravos og Sonny og Cher, sem komu beint frá Hollywood til þess að taka þátt í keppninni. Ekki lét Marianne Faithfull það á sig fá, þótt hún kæmist ekki í úrslit, enda er sagt að hún hafi verið með hugann við allt annað — semsé Mikka Jagger, söngvara Rollingana, en með þeim hafa nú tekizt kærleikar. Mikki kom til San Remo að keppninni lok- inni til að hitta sína heittelsk- uðu og varð þá uppi fólur og fit hjá blaðaljósmyndurum. Mikki hefur nú gefið Chrissie Shrimp- ton upp á bátinn og snúið sér að Marianne. En rómantíkin var víðar á sveimi en hjá Mikka og Mari- anne. Bandaríski söngvarinn Gene Pitney og unnusta hans Lynn Gayton voru pússuð saman í lítilli kirkju í útjaðri San Remo. Myndin er af þeim hjónum. Sterk og vöndud Verd vicf allra hæfi Gódir greidsluskilmálar Litaval á plastáklaedi og bordplasti Veltitappar á stólfótum án aukakostnadar ALLT Í ELDHUSIÐ Á SAMA STAÐ Angelique í byltingunni. Framhald af bls. 23. arinnar og Angelique rak litla hestasveininn til að leggja á hest prests- ins. Meðan hann var að því, hljóp hún út á heimreiðina og reyndi að hlusta eftir fjarlægum jódyn. En vindurinn skrjáfaði í dauðu laufinu, og hún heyrði ekkert annað. Hún kallaði: — Florimond! Florimond! Hróp hennar dó út i döggvotri nóttinni. Skógurinn daufheyrðist við kalli hennar. — Farið eins hratt og þér getið, sagði hún við prestinn, þegar hann kom aftur. — Um leið og þér komið út fyrir garðana, skuluð þér leggja eyrað að jörðinni til að heyra í hvaða átt hann hefur farið. Hún stóð þarna alein, ófær um að gera upp við sig, hvort hún ætti ekki einnig að söla hestinn sinn og fara í hina áttina, að leita að Florimond. — I sama bili gall við veiðihorn Isaac de Rambourgs. Djúpir tónar og dapurlegir í næturkyrrðinni. Tónarnir flutu hver á eftir öðrum eins og bólur, sem koma upp úr lygnu, dimmu vatni, Það var DAUÐA- KALLIÐ! Aftur hljómaði það, skar þögnina og aftur og aftur! Hvert nýtt kall blandaðist saman við bergmálið af því síðasta. Skógurinn endurómaði 17. tbi. VIKAN 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.