Vikan - 08.02.1968, Blaðsíða 9
CHEVROLET CHEVELLE
MALIBU
Ef maður ætlar að kaupa Chevrolet USA, er ekki
nóg a3 greina fró því; þetta eina merki býður
nefnilega upp á 41 undirgerð, allt frá sport-
bílnum Corvette Sport upp í lúxusmódelið Ca-
price. Chevellan hefur orðið vinsæl hér og verð-
ur sennilega áfram í nýju fötunum sínum, þótt
gangverkið sé að mestu óbreytt. Þið getið valið
um 14 Chevelluafbrigði og vélar frá 140 til 350
ha SAE.
BMW 1600 GT
Það er ekkert leyndarmál, að BMW verksmiðj-
urnar voru í ærnum f járhagskröggum fyrir
skemmstu. En nú er allt komið í liðinn á nýjan
leik. Salan vex jafnt og þétt, BMW er á uppleið.
Og þótt framleiðslan sé ekki gífurleg á alþjóð-
legan mælikvarða bjóða verksmiðjurnar upp á
ýmsar gerðir: 166 Tl, 1600 Cabrio, 1600 GT og
lúxusbílinn Glas BMW 3000 V 8. Hér er mynd
af BMW 1600 GT. Hann má kallast framhald af
Glas 1300/1/00 GT. Útlitið er nokkuð breytt,
og i bilnum er að finna sama mótor, gírkassa og
afturöxul og í BMW 1600 Tl, sem hefur einstaka
aksturshæfni. Vélarorka 1600 GT er 105 ha
DIN, viðbragðið frá 0—100 er 11,2 sekúndur.
Hámarkshraði er kringum 190 km/kls.
V0LV0 142
Nei, þetta er ekki prentvilla. Þeir kalla tveggja
dyra útgáfuna af Volvo 144, Volvo 142. Og
tveggja dyra útgáfan er eina nýung þessarar
gerðar '1968, enda er bíllinn svo að segja ný-
kominn á markaðinn og mjög vel úr garði gerð-
ur í upphafi.
F0RD FALCQN FUTURA
Einu sinni sagði íslenzkur bílaáhugamaður: —
Amerískur Ford getur ekki verið lélegur. Svo
mikið er víst, að Falcon er vinsæll bíll og
skemmtilegur, vélin hreint afbragð, 120 ha. —
Breytingin er ekki mikil í ár, ofurlítið að fram-
an, ásamt nýjum framstuðara og að aftan eru
komin ferköntuð afturljós.
SK0DA 1100 MB DE LUXE
í haust kom fram aflmeiri útgáfa af Skoda 1000,
með 52 ha SAE vél móti 48 ha áður, hámarks-
hraði verður nú um 135 km/klst móti 125 áður.
Að öðru leyti eru 1000 MB og 1100 MB næst-
um því eins.
I
JEEPSTER
Kannski ekki beinlínis augnayndi, en býður upp
á ýmsa góða kosti. Fólksbill að vissu marki og
jeppi að vissu marki, blandar eiginleikum þess-
ara tveggja gerða furðu vel saman. Þegar hann
er kominn með 160 ha V 6 vél og Turbo Hydra-
Matic sjálfskiptingu í viðbót við fjórhjóladrifið
tekur varla nokkur hliðstæða honum fram.
SAAB 96
I stórum dráttum er hinn harðgerði og vinsæli
bill ekki mikið breyttur; rúðurnar að framan og
aftan stækkaðar og það var nú gott. Oryggið
er nú sem fyrr aðall SAAB, bíll, sem tekur hon-
um fram að öryggi verður tæpast fundinn. —
SAAB var einn þeirra fyrstu, sem kom með tvö-
falt bremsukerfi, nú bætir hann við varnaðar-
Ijósi, sem á að kvikna, ef eitthvað kemur fyrir
annað hvort kerfið. Til þess eru þó litlar likur,
þvi bremsurörin eru nú lögð innan í hliðum bíls-
ins en ekki undir botninum eins og áður. Það
hefur í för með sér útilokun á skemmdum af
steinkasti eða öðru slíku og miklu minni likur á
tæringu. Og svo er þetta mjög endingargóður
bill miðað við sæmilega meðferð og prýðilegt
að aka honum.
MATRA M 530
Óþekktur bill hérlendis. Þetta er franskur sport-
bíll með þrjú ár að baki, snöggur, hraðskreiður
og liggur vel. Hann er með V 4 vél úr þýzkum
Ford og getur farið kílómeterinn á 34 sekúndum.
6. tbi. VIKAN 9