Vikan - 07.03.1968, Síða 6
r-------------------------------------------------
Hin vinsælu RCA sjónvarpstæki
fyririiggjandi í mörgum gerðum.
-- 2ja ára ábyrgð.
Allar nánari upplýsingar veitir
R.C.A. umboðið.
GEORG ÁMIINDASSQN SCl
Suðurlandsbraut 10. — Símar 81180 og 35277.
GREHSÁSVEGI22 - Z4
SlMAR: 30Z80-3ZZGZ
LITAVER
íí;;ííí!íí
II
Pilkington’s postulín veggflísar
Stærðir: 7'/2 cm x 15 cm og 11 cm x 11 cm.
Barrystaines linoleum
parket gólfflísar
Stærðir 10 cm x 90 cm og 23 cm x 23 cm.
GOTT VERÐ
LÖG - M.A. NÝTT LAG EFTIR GUNNAR
ÞÓRÐARSON
Innan skamms er væntanleg
hljómplata, sem um margt mun
þykja forvitnileg. f fyrsta lagi
það, að ný söngkona kveður sér
hljóðs — og þó . . . kannski er
ekki rétt að orða þetta svo, því
að Sigrún Harðardóttir hefur
sungið allar götur frá því hún
man eftir sér. Eða svo segja þeir,
sem gerst þekkja til hennar! f
annan stað er innihald plötunn-
ar; nýtt og gullfailegt lag eftir
Gunnar Þórðarson, franskt þjóð-
lag, írskt þjóðlag — og svo lag-
ið „Dear Mrs. Applebee", sem
brezki söngvarinn David Garr-
ick gerði vinsælt í Bretlandi fyr-
ir einu ári. Og í þriðja lagi er
þess að getá, að undirleik hafa
annazt valinkunnir hljóðfæra-
leilcarar úr ýmsum vinsælustu
hljómsveitum unga fólksins að
viðbættum nokkrum liðsmönnum
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Sigrún Harðardóttir er nem-
andi í Menntaskólanum á Akur-
eyri og stundar nám í fjórða
bekk máladeildar. Sigrún er
fædd í Frakklandi og þar átti
hún heima fyrstu líu ár ævinn-
ar. í Reykjavík bjó hún þar
næstu sjö árin, en undanfarin
tvö ár hefur hún dvalið á Akur-
eyri. Sigrún er dóttir Harðar
Helgasonar, sendiráðunautar, og
bandarískrar konu hans og eru
þau hjón nú búsett í Washing-
ton.
Sigrún Harðardóttir. Myndin er tekin í Sjálfstæöishúsinn á Akureyri,
NÝ HLJÓMPLATA VÆNTANLEG'.
SIGRÚN HARÐARDÖTTIR SYNGUR FJÖGUR
6 VIKAN
10. tbl.