Vikan


Vikan - 07.03.1968, Page 24

Vikan - 07.03.1968, Page 24
Gangstéttarkaffihúsin í París: Æskan forsmáir þau. GANGSTÉTTARKAJFFIHUSUNUM í PARES SKAL BORGIÐ í Parísarborg hefur nú verið stofnuð nefnd, er vinna skal að því að gangstéttakaffihúsin þar, svokölluð „brasserie", skuli ekki hverfa með breyttri tíð. Orðið „brasserie“ þýðir raun- ar „bruggstaður", en í raun réttri eru þetta kaffihús eða litlir veit- ingastaðir, sem hafa á boðstólum vín, öl og mat á hæfilegu verði. Mestur varð vegur þessara staða fyrir aldamótin, á tímum Toulou- se-Lautrecs, en einnig voru þeir fjölsóttir á hinum glaðværa „þriðja áratug". Þá voru þeir annað heimili listamanna og rit- höfunda á borð við Pablo Pi- casso, Joan Míró, Ernest Heming- way, John Dos Passos, Ezra Pound og F. Scott Fitzgerald. Þriðji blómatími gangstétta- kaffihúsanna rann upp eftir síð- ari heimsstyrjöld, þegar existen- síalistar söfnuðust að þeim Jean- Paul Sartre og Simone de Beau- voir á Fiore og Deux Magots í St. Germain-des-Prés. Formaður nefndarinnar, Jac- ques Gauthier, hefur látið svo um mælt: „Án gangstéttakaffi- húsanna væri París ekki París. Unglingar nútímans, sem forsmá þau, kunna ekki að meta það sem fallegt er.“ Nefndin hyggst með öllum ráðum hvetja fólk til að sækja meir en áður þau bras- serie, sem enn hafa ekki orðið að leggja upp laupana vegna kæru- leysis unglinganna. VERÐUR SUÐVESTUR’-AFRlKU-” MALIÐ LEYST ÁN ’ VOPNAVIÐSKIPTA Suðvestur-Afríka er ófrjó auðn á suðvesturströnd Afríku. Mikið pólitískt þras hefur staðið um land þetta árum saman, og lítur út fyrir að svo verði lengi fram- vegis. Síðan 1920 — fyrir þann tíma var landið þýzk nýlenda — hef- ur Suður-Afríka stjórnað því samkvæmt umþoði, sem hún á sínum tíma fékk hjá Þjóðabanda- laginu gamla. í október í fyrra ákvað allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að þessari umboðs- stjóm skyldi hér með lokið. — Greiddu hundrað og fjórtán ríki atkvæði með þeirri ákvörðun. Suður-Afríkumenn segja hins vegar að Sameinuðu þjóðimar varði ekkert um þetta og neita að taka mark á ákvörðun þeirra. Ef Sameinuðu þjóðirnar skyldu kjósa að beita valdi til að knýja fram vilja sinn, er hætt við að Suður-Afríkumenn myndu ekki hika við að mæta þeim á þeim vettvangi. Á allsherjarþinginu bollaleggja menn nú hvað gera skuli. Mörg yngstu ríkin í Afríku og Asíu vilja að gripið sé til ofbeldis, ef annað dugi ekki, en stórveldin sum stinga upp á vægari aðgerð- um. Hinir blökku íbúar Suðvestur- Afríku hafa lítinn tíma til að brjóta heilann um þessi mál, og raunar varla innanríkismál sín heldur. Til þess em þeir of önn- um kafnir við að fá hina þurru jörð lands síns til að gefa nógu mikið af sér, til að þeir geti dregið fram lífið, en í sumum héraðanna rignir aðeins sjöunda hvert ár. Að flatarmáli er Suðvestur- Afríka yfir hálf milljón ferkíló- metrar, en stór hluti þess svæð- is er eyðimörk. Landið er það strjálbýlasta í heimi og íbúarnir aðeins rúm sex hundruð þúsund. Flestir þeirra skiptast í rúma tylft afrískra þjóðflokka. Lang- fjölmennastir þeirra eru Óvamb- ar, sem eru um tvö hundruð og sjötíu þúsund að tölu. Þeir eru Bantúmenn að ætterni og búa í leirkofum og hafa með sér fjöl- skyldusamfélög. Hvítir menn í landinu eru nærri hundrað þúsund að tölu, flestir af þýzkum og suður-afr- ískum stofni. Þar eru líka sextán þúsund Búskmenn, sem enn eru á steinaldarstigi. Þeir stunda veiðar með eiturörvum. Þjóðverjar lýstu landið undir „vernd“ sína 1884, en áttu lengi í miklum brösum við að brjóta íbúana til hlýðni við sig. Þegar heimsstyrjöldin fyrri brauzt út, hófu Suður-Afríkumenn hemað gegn Þjóðverjum í nýlendunni. Varð hið þýzka herlið að gefast upp 1915. Um fimm ára skeið hafði suð- ur-afríski herinn veg og vanda af stjórn landsins. Árið 1920 veitti Þjóðabandalagið svo Suð- ur-Afríku umboðsstjórn yfir landinu. Síðustu árin hafa Sam- einuðu þjóðirnar reynt að taka þetta umboð af Suður-Afríku- mönnum, einkum vegna þess að hin nýju, sjálfstæðu Afríkuríki hafa krafizt þess. Ein höfuðröksemd þeirra er sú, að Suður-Afríka hafi einnig knú- ið fram stefnu sína um kynþátta- aðskilnað í Suðvestur-Afríku. — Blökkumannaríkin halda því fram, að Suður-Afríkumenn hafi farið út fyrir mörk þeirra rétt- inda, sem umboðið veitir þeim, með því að undiroka hina dökku íbúa landsins stjómmálalega, fjárhagslega, félagslega og menn- ingarlega. Eþíópía og Líbería lögðu þetta mál fyrir alþjóðadómstólinn í Haag, en hann vísaði því frá af formsástæðum eftir sex ára bolla- leggingar. Suðvestur-Afríkumálið er því ennþá fyrir hendi. Stjórn Suður- Afríku, undir forustu Balthazars J. Vorsters, hefur alls ekki hugs- að sér að sleppa tökum á landinu. Suður-Afríka hefur lagt fram stórfé til fjárfestingar þar, en það var gjaldþrota, er ríkið tók við því árið 1920. Helztu útflutningsvörur lands- ins em demantar, fiskur, og loð- feldir. Þetta gaf fjórtán þúsund milljónir í aðra hönd árið 1965. Undir stjórn Suður-Afrfku hef- ur verið komið upp mörgum skólum, sjúkrahúsum, áveitu- görðum og iðjuverum. Vegir og flugvellir tengja stærri bæina saman. Samt er Suðvestur-Afríka enn- þá eitt einmanalegasta svæði heimsins, umlukt af eyðimörkun- um Karaharí og Namíb. Hinir svörtu íbúar landsins halda að mestu kyrru fyrir á svæðum þeim, er þjóðflokkum þeirra hefur verið úthlutað. Þeir kjósa að búa í friði í sínum æva- fomu ættarsamfélögum og hafa lítinn áhuga á því bramþolti úti í heimi, sem einn góðan veður- dag getur leitt til „sjálfstæðis" þeirra. ★ LAND- KÖNNUÐURINN Landkönnuður í svörtustu Af- ríku rakst á þorp svertingja af ættbálki, sem talinn var fjand- samlegur hvítum og gersamlega villtur. f von um að geta bliðkað svertingjana og gera þá vinsam- legri hvítum, tók hann að segja þeim frá vestrænni menningu. -— Við elskum náunga vorn, sagði hann. Og hinir innfæddu hróp- uðu einum munni: — Hussanga! Landkönnuðinum leizt ekki sem verst á og hélt áfram: — Við komum fram við meðbræður okkar eins og við viljum að þeir komi fram við okkur. — Hussanga, hrópuðu svert- ingjarnir af mikilli ákefð. — Við erum friðarsinnar, sagði landkönnuðurinn. — HUSSANGA! Tárin streymdu niður kinnar landkönnuðarins af fögnuði og mann kærleika: — Við komum til ykkar sem vinir, bræður. Treystið okkur. Opnið okkur faðm ykkar, hús ykkar, hjörtu ykkar! — HUSSANGA! hljómaði margraddað í skóginum. Harla kátur sneri nú könnuð- urinn máli sínu til höfðingjans og sagði: — Ég sé, að þið hafið búpening hér. Þar á meðal teg- undir, sem ég þekki ekki. Má ég skoða dýrin nánar? — Að sjálfsögðu, svaraði höfð- inginn. — En við eru ekki búnir að moka út, svo þér verðið að gæta þess að stíga ekki í huss- anga. 24 VIKAN 10‘ tbI-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.