Vikan


Vikan - 07.03.1968, Blaðsíða 30

Vikan - 07.03.1968, Blaðsíða 30
'Aaí®;; RAOUEL WELCII UIETNAM MILLI ÞESS sem saklausum mönnum er att út í blóðugt sva'ð af tilgangslausri villimennsku, er reynt að skemmta þeim af fremsta megni. Það er fastur liður í hernaðaráætlun stórþjóðanna að senda færustu skemmtikrafta á vígvellina til þess að reyna að láta her- mennina gleyma hörmungum stríðsins um stund. Marilyn Monroe lét eitt sinn svo ummælt, að minnisstæðasta at- vikið á öllum leikferli hennar hafi verið, er hún stóð á sviði undir berum himni í Kóreu og skemmti þúsundum hermanna. Þeirri stundu gat Marilyn aldrei gleymt, — og líklega hermennirnir ekki heldur. Lengi hefur verið beðið eftir arftaka Marilyn Monroe, og nú er hann loksins kominn fram á sjónarsviðið: Raquel Welch er óum- deilanlega kynþokkadís kvikmyndanna í Hollywood um þessar mundir. Vinsældir hennar fara vaxandi jafnt og þétt. Sumir vilja meira að segja álíta, að hún búi yfir meiri töfrum en Marilyn Mon- roe hafi nokkurn tíma haft. Þessar myndir voru teknar, þegar Raquel Welch heimsótti banda- ríska bækistöð í námunda við Da Nang í Víetnam fyrir nokkru. — Rúmlega tíu þúsund hermenn horfðu á hana syngja og dansa í ör- stuttum og gisnum prjónakjól. Og eftir myndunum að dæma virðist hermönnunum hafa tekizt að leysa lífsgleði sína úr læðingi stutta stund, þrátt fyrir ömurlegt hlutskipti sitt. &

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.