Vikan - 07.03.1968, Blaðsíða 32
Ronson
hArþurrka heimilanna
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK
32 VIKAN 10-tbl-
STJ'O RNHSPA^ 1
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr(l): Þú átt erfitt með að standast freistingarnar og verð- ur að leggja hart að þér til að sigrast á þeim. Þú átt erfitt með að taka ákvarðanir og skalt grennslast eftir áliti kunningja þinna.
®rW Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú færð einstakt tækifæri til að skemmta þér, en það gæti kallazt óháttvísi ef þú reyndir að láta aðra vita af því. Varastu fólk með gulbrún augu. Laugar- dagur er heilladagur.
fl Tvlburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú hefur ekki haft mikið fyrir stafni undanfarið, en ert samt þrgyttur. Taktu fyrsta tækifæri sem þér gefst til að breyta um umhverfi. Þú kynnist persónu sem þú hefur gaman af að athuga.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Nágrannar þínir aðstoða þig, en þú veizt ekki full- komlega hvernig þú átt að bregðast við því. Eyddu frítímunum við hollar tómstundaiðkanir, sérstaklega ef færi gefst á þeim utan dyra.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú ert fremur laus við og lcemur eklci miklu í verk. Nokkrar breytingar verða á högum þínum til hins verra, en það er aðeins um stundarsakir. Þú ert með- sekur i smá hrekkjum, sem geta haft slæman endi.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú færð verkefni sem þarfnast mikillar nákvæmni og tekur mikið af tíma þínum. Maður sem þú hefur litils háttar kynnzt i samkvæmi gerir góðan leik, fyrir þína hönd. Heillatala er fjórir.
0 Vogarmerkið (24. september — 23. október)t Þú færð mikinn tíma til að sinna áhugamálum þín- um og er það vel. Þú ert smám saman að gera þér grein fyrir þýðingu þess að geta útilokað hversdags- leikann og slakað á. Föstudagur færir þér bréf.
¥> Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Atvik á vinnustað verður til að koma af stað mikl- um misskilningi, sem þú átt ekki gott með að koma á hreint, vegna nokkurs sem þú vilt dylja. Það verð- ur erfitt fyrir þig að velja og hafna.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú færð skilaboð, sem gera þig nokkuð hugsi og að líkindum eiga þau stærstan þátt í að þú frestar öll- um framkvæmdum í bili. Þú færð tilboð frá mann- eskju sem leggur ekki í vana sinn að hugsa um aðra.
£ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú verður að taka ákvarðanir, því fyrr, því betra. Kunningi þinn sýnist ekki búa yfir þeim kostum er þú hafðir ætlað. Hættu að gefa honum tækifæri, það er að eyða tímanum til ónýtis.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú gerir glappaskot í vikulokin með fremur óþægi- legum og vandræðalegum afleiðingum. Þú hefur gert þessu líkt áður, reyndu að grafast fyrlr um orsak- irnar. Þér verður boðið á frægan stað.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Hafðu gát á buddunni, því innan tíðar þarftu á tölu- verðum peningum að halda. Kunningi þinn verður þér að ómetanlegu gagni í vikunni. Síðari hluti vik- unnar er varasamur fyrir pilta undir tvítugu.