Vikan


Vikan - 07.03.1968, Blaðsíða 36

Vikan - 07.03.1968, Blaðsíða 36
SKREFI Á UNDAN . HIIAR [» ÖBKIH HAN5 NOfl? ÞaS er alltaf sami Ieikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð- um verðlaunum handa beim, sem getur fundið örkJna. Verð- launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti* og fram- leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói. Síðast er dregið var hlaut verðlaunin: Lilja Þorleifsdóttir, Háaleitisbraut 34, Reykja.v?' VinnitJganna má vrtja í skrifstofu Vikunnar. Nafn Heimili Örkin er á bls. byggt musteri, þar sem geymd voru fley Kheops, skip næturinnar. ( þessum risastóru tréskipum gat hinn látni faraó haldið áfram ferð sinni í myrkri — til eilífðarinnar. En hið eina sem eftir er af hon- um er lítil stytta úr fílabeini, sem sýnir göfugt andlit: arnarnef og oddhvassa höku og helgirúnir, sem geyma einkunnarorð pýramfda hans: „Kheops ríkir yfir sjóndeildar- hringnum"." Næst er pýramídi Khephrens bað- aður Ijósum: „Pýramídi Khephrens konungs. Einnig hann hefur sín einkunnar- orð: „Khepren er mikill". Af virð- ingu við föður sinn, Kheops, hafði Khephren pýramída sinn eilftið minni. Grunnflötur hans er 710 fet á hverja hlið og hæðin 445 fet. Toppurinn er þakinn slípuðum kalk- steini og upphaflega var pýramfd- inn allur þakinn honum." Loks er Ijósunum beint að þriðja og minnsta pýramídanum, pýra- mída Mykerinosar, og sfðan ótal minni pýramídum, þar sem drottn- ingar, ráðherrar og annað fyrir- fólk var lagt til hinztu hvíldar. Sýningin heldur áfram. Við sjá- um þetta stórkostlega svið í alls konar Ijós og litbrigðum og hlýðum á sögu faraóanna. Sýningin stend- ur yfir í tæpan klukkutíma. Ef til vil I verða minnisstæðust eftirfar- andi orð, sem lögð voru sfinxinum f munn: ,,Ég ber vitni um vilja Kheops, föður mfns. Um eilffð mun ég bjóða tímanum byrginn. Ég sá Antony og Kleopötru líða undir lok. Alexander mikli, Caesar og Napoleon krupu við fætur mína. Ég sá stórveldis- drauma sigurvegara þyrlast burt eins og fallin laufblöð. Ég hef val- ið mér sem einkunnarorð arabísk- an málshátt, sem hljóðar svo: Ver- öldin óttast tímann, en tíminn hræð- ist pýramídana." Það er ekki oft að sýning hefur þau áhrif, að torkennilegur fiðring- ur fer um brjóstið. Sú varð raunin f þetta sinn, einkum fyrstu mínút- urnar. Það var aðeins eitt ofurlítið atvik, sem gerði það að verkum, að hin magnþrungna stemning hjaðnaði eilftið og bros laumaðist út í annað munnvikið. Þegar frá- sögnin reis hvað hæst í tónum og tali heyrðist hundgá, sem ekki féll alls kostar í kramið. Litlu sfðar sást hundkvikindi vappa um grafarrúst- irnar. Skuggi þess margfaldaðist f Ijósadýrðinni og teygði sig upp eft- ir fótstalli sfinxins! Eftir sem áður mun þessi kvöld- stund f eyðimörkinni seint gleym- ast. Hrikalegum mikilleik hennar verður naumast með orðum lýst. ☆ Ung stúlka á flótta Framhald af bls. 17. hljótt, að kyrrðin gerði hann órólegan. Hann hristi höfuðið og leit snöggt til ungu stúlkunnar: — En nú verð ég að fá að vita nákvæmlega hvað gerðist. Hún hikaði andartak, og fékk 36 VIKAN 10’ »»■

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.