Vikan


Vikan - 07.03.1968, Blaðsíða 48

Vikan - 07.03.1968, Blaðsíða 48
/ Smásaga eftir MARGARET E. BROWN Úr safril Alfreds Hltchcocks Einkaréttur: VIKAN Þér vitið, kæri faðir, að það sem er gremjulegast við nöldur og nudd og suð, umvandanir og siðaprédikanir, er, að það leyn- ist mikill sannleikur í þessu, að ekki sé minnzt á spakmælin og málshættina: sjaldan er flas til fagnaðar; ekki er ráð nema í tíma sé tekið.... Myrtle var sýknt og heilagt með eitthvað þessu líkt á vörunum. Og hún hafði rétt fyrir sér, þegar allt kom til alls.... „Þú drepur þig á þessum reyk- ingum. Þær verða þinn bani,“ sagði hún, þegar hún var orðin leið á að fárast yfir öllum göll- um mínum. „Það er ekki verið að hugsa um mig. Húsið er fullt af reykjarstybbu daginn út og daginn inn, svo að maður ætlar alveg að kafna. Maður hefur ekki undan að losa öskubakk- ana. Þú stráir öskunni út um alla íbúðina." Hún skildi eftir tímarit á áber- andi stöðum; þau voru opin og hring hafði verið slegið með rauðum blýanti utan um grein- ar, sem fjölluðu um skaðsemi reykinga; hversu hættulegt það væri að reykja í rúminu og svo framvegis. Og hún hafði alveg 48 VIKAN “•ttL sérstakt yndi af að lesa upphátt minningargreinar um fólk, sem hafði látizt úr lungnakrabba. „Þú gætir hætt ef þú reyndir það. Það eina sem þarf er ofur- lítil skapfesta og viljastyrkur." Þegar ég gerðist eitt sinn svo djarfur að benda henni á, að skapfesta væri ekki hennar sterk- asta hlið; henni hefði ekki enn tekizt að megra sig, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir — þá varð hún bálreið: „Þú veizt vel, að það eru röng efnaskipti sem valda því, að ég er svona feit. Auk þess er þetta í ættinni, og ekki get ég gert að því. Það þýðir ekkert fyrir þig að reyna að skipta um rnnræðu- efni. Það er margsannað, að reyk- ingar stytta ævi mannsins um mörg ár. Heldurðu, að mig langi til að verða ekkja á bezta aldri?“ Hún varð svo æst og reið, að hún varð að hugga sig og róa með því að stinga upp í sig hnefa- fylli af súkkulaði. Ég furðaði mig oft á, hversu Myrtle lét sér annt um líf mitt og heilsu. Ekki stafaði það af ást til mín; hún slokknaði strax á fyrsta ári hjónabands okkar fyrir átján árum. Og fyrir líf- tryggingima mína mundi hún geta með góðu móti fætt sig og klætt og keypt sér nóg súkku- laði. Ef til vill hélt hún, að það væri skylda eiginkonuxmar að hafa áhyggjur af heilsu manns- ins síns. Eða kannski hélt hún, að hún mundi hreinlega sakna þess að hafa engan til að rífast við, þegar ég væri kominn undir græna torfu. Hvers vegna hélt ég áfram að búa með henni? Af vana, býst ég við. Þar að auki má geta þess, að hún var góð húsmóðir, hélt húsinu hreinu og snyrtilegu, eld- aði frábæran mat — og var svo feit, að ég þurfti ekki að hafa neinar áhyggjur af að hún gerð- ist mér ótrú! Ef hún hefði ekki verið svona mikil refsinom, reikna ég með, að við hefðum getað lifað saman í hamingjusömu hjónabandi eins og annað fólk. En hún gat ómögu- lega skilið, að ég hafði ekki minnsta áhuga á að hætta að reykja. Það var hið eina, sem ég hafði verulega nautn af í lífinu. Við áttum engin böm, og mér leiddist í vinnunni. Ég er ómann- blendinn og seintekinn og á því fáa vini. f tómstundum mínum gerði ég ekkert nema að lesa bækur eða horfa á sjónvarp. Reykið þér, kæri faðir? Ekki það? Þá vitið þér heldur ekki, hvílík sæla það er að drekka tvo bolla af heitu, svörtu kaffi eftir góðan morgunverð og opna dag- blaðið sitt um leið og maður kveikir í fyrstu sígarettu dags- ins. Hvílíkur ilmur berst ekki að vitum manns, þegar eldspýtan snertir enda sígarettunnar! Mað- ur tottar svolítið til þess að logi vel í henni, síðan andar maður djúpt að sér og allur líkaminn hvílist og endumærist. í vinn- unni dregur það úr taugaspenn- unni að fá sér að reykja öðm hverju; eftir góðan reyk er miklu betra að einbeita sér að ákveðnu verki. Á kvöldin er ekkert eins þægilegt og sefandi og sitja í hægindastól með bók í annarri hendi og sígarettu í hinni; horfa á blátæran reykinn liðast mjúk- lega upp í loftið. Og það er svo sannarlega reykingunum að þakka, að ég gat afborið nöldrið í Myrtle — furðu lengi. En ég hlýt að hafa hundsað umkvartanir hennar einum um of, því að síðastliðinn vetur var hún orðin staðráðin í, að ég

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.