Vikan


Vikan - 07.03.1968, Síða 50

Vikan - 07.03.1968, Síða 50
 BMW BIFREIÐAR i FARARBRODDI Bandaríska bílablaðið Road and Track birti nýlega lista yfir 7 beztu bilategundir heims og skipaði BMW í fimmta sæti. Vér bjóðum yður þrjár gerð- ir af BMW — BMW 1600, BMW 1800 og BMW 2000. BMW bifreiðirnar vinna stöðugt á hér á landi, þar sem bifreiðaeigendur leita í auknum mæli eftir sterkari og vandaðri bifreiðum, sem þola betur hina slæmu og bröttu vegi. Sterk og kraft- mikil vél BMW er trygging fyrir góðri endingu. Sjálf- stæð fjöðrun á öllum hjólum gerir BMW betri og stöðugri á ósléttum vegum hérlendis. Sætin í BMW eru vönduð og einstaklega þaégileg. Útsýni úr bílnum er mjög gott. BMW bifreiðirnar eru vand- aðar og glæsilegar, jafnt að utan sern innan. KRISTINN GUÐNASON HF KLAPPARSTÍG 25-27, SÍMI 22675 Hin vota gröf Framhald af bls. 15. fyrir mánuði. Hún hefði átt að segja mér frá því, ég veit ekki hver C er. — Álítið þér að hún hafi ver- ið myrt, herra Kimberton? Ég er hættur að leika leiki. Kannski að við getum báðir lagt spilin á borðið. — Ég hef það staðfest að þér voruð í um hundrað kílómetra fjarlægð héðan, þegar lát henn- ar átti sér stað. Það undanskilur náttúrlega ekki þann möguleika að leigja einhvern til að gera þetta fyrir sig, en leigumorð eru ekki gerð á þennan hátt. Og ég held ekki að þér mynduð gera neitt svo barnalegt og hættulegt. — Ég hef ekki verið með sjálf- um mér síðan ég frétti að hún væri dáin. Ég er með einhverja æðislega tilfinningu. Ég hefði al- veg eins getað kastað Guz Hern- andez út um einhvern af glugg- unum hér eins og út um dyrn- ar. Ég gef ekki fimmeyring fyrir neitt af því sem ég geri. Ekkert skiptir mig neinu máli lengur. Ég treysti mér ekki einu sinni til að hugsa inn að hún hafi verið myrt. — Ég hef gert mér tilgátur, herra Kimberton. Hún geymdi eitthvað fyrir yður. Það var eitt- hvað verðmætt og það var trún- aðarmál. Þér fóruð til íbúðar hennar að sækja það næsta dag. Þér sögðuð frú Carey að þér hefð- uð fundið það. Ég held að það hafi þegar verið horfið. Hún var með lykilinn að íbúðinni með sér, þegar hún fór út að vatninu að synda. Hann var á lykla- hringnum hennar með tveimur öðrum dyralyklum. Lykillinn var tekin við vatnið, að því er virð- ist. Það var áhættusamt, svo hún hefur sennilega verið látin þá. Svo var hann notaður, sennilega sömu nóttina. — Svo yður langar að vita hvað hún geymdi fyrir mig. — Það kynni að hjálpa. — Það væri nokkurn veginn það vitlausasta sem ég gæti gert að segja yður það. Ég hef verið í slæmri klípu, ef ég segði yður hvað það var, gæti það komið mér aftur út í pottinn, þangað sem hann er heitastur, herra Breckenridge. Hún geymdi fyrir mig obbann af þeim peningum sem ég hef stungið undan skatti. Ef ég hefði þurft að flýja hefði ég getað sent eftir henni og hún hefði komið með þá. Eitt hundr- að og sex þúsund dollarar í reiðu- fé, í snjáðri, blárri skjóðu. Ég laug til um hvað var í skjóðunni. Ég vildi ekki að hún vissi hví- líkur skúrkur ég er. Skrýtið. í dag hefði ég getað tekið við þessu aftur, vegna þess að þrýst- ingurinn var af mér í bili. Þessir peningar eru hvergi til á skjöl- um eða skýrslum. — Ég óska ekki að vera til neinna óþæginda. — Ég held ekki að það stafi nein óþægindi af yður. Aftur á móti af Guz Hernandez og hann hefur viljann til þess, en djöfull- inn má hirða hann. Djöfullinn má hirða allt, nema komast að því hver drap Lucee. — Nú viðurkennið þér að einhver hafi gert það. Kimberton grandskoðaði hann í nokkur andartök. — Þú heitir Bart? Ég heiti Skip. Við eigum samleið. Bréf- ið, sem hún skrifaði. Peningarn- ir, sem eru horfnir. Tveir og tveir eru fjórir, Bart. Framhald í næsta blaði. Hekluð motta Framhald af bls. 47. upp 6 loftlykkjur í nilfiju motturnar mynda úr þeim hring og loka. Raðið litunum niður eftir smekk og heklið mottuna í æskilcgri stærð. Ilcklið scanustu umf. gjarnan scm tungurönd með lykkjubogum þannig: Fitjið upp 3—6 loftlykkjur (eftir æski- legri stærð boganna), slepppið nokkr- uin lykkjum af fastaheklinu og festið síðan bogunum niður með 1 fasta- lykkju. Fitjið síðau upp jafnmargar lykkjur í næsta loflykkjuboga, sleppið sama lykkjufjölda af fastalieklinu og festið niður með fastalykkju. Heklið þannig áfram. Strekkjið mottuna með þvf að leggja hana á þykkt stykkl næla form hcnn- ar út með tftuprjónum, leggja raka klúta yfir og láta gegnþorna nætur. langt. Einnig má pressa mottuna laus- lcga frá röngu. 50 VIKAN 10-tbl

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.