Vikan - 22.05.1968, Qupperneq 15
Hér er mynd af einni hinna nýrri unglingahljóm-
sveita á Akureyri. „Hinir upprisnu Geislar“ nefna
þeir sig pdtarnir, og segir í fréltabréfi frá einum vel-
unnara hljómsveitarinnar, að þeir hafi gert mikla
lukku, þegar þeir komu fyrst fram í ofanverðum
febrúar síðastliðnum. Einn þeirra félaganna, Þorleif-
ur Bjarnason, er reykvískum unglingum raunar að
góðu kunnur, því að hann var í eina líð irommuleik-
ari með hljómsveitinni Bravó, sem skemmti á hljóm-
leikum The Kinks hérna um árið. „Hinir upprisnu
Geislar“ eru auk Þorleifs Sigurður Þorgeirsson, sem
leikur á sólógítar, en hann lék áður með Geislum;
Ingólfur Björnsson, sem er söngvari hljómsveitar-
innar og annar tveggja gítarleikara. Ingólfur hefur
samið fjölda laga fyrir hljómsveitina, og hefur það
mælzt vel fyrir. Pétur Hjálmarsson leikur á bassa-
gítar og syngur með. Hann lék áður með Ósmönn-
um. Á orgel leikur svo Helgi Sigurjónsson, og tekur
hann líka lagið, ef svo ber undir.
Vinsældir skozku söng
konunnar Lulu aukast
stöðugt. Nýjasta lagið
hennar, „Me, the peaceful
heart“ sýnir glögglega,
hvílík hæfileikakona hér
er á ferðum. Hún á svo
sannarlega framtíðina fyr-
ir sér — sem söngkona,
leikkona (hún lék í kvik-
myndinni „To Sir with
love“ og þótti takast vel)
og sem tízkuteiknari! Fyr-
ir tveimur mánuðum komu
Lulu-föt á markaðinn í
Bretlandi, en það er fatn-
aður fyrir kvenþjóðina,
sem Lulu hefur átt þátt í
að móta. Hún hefur sem
sagt hugmyndirnar í koll-
inum en fær þekktan
tízkuteiknara, Lenbry, til
að útfæra þær. Um allt
Bretland skjóta nú Lulu-
búðir upp kollinum, en
það eru lízkuverzlanir í
eigu Lulu, sem hafa á boð-
stólum föt, sem hún hefur
teiknað. Og hún er bara
nítján!
Á myndunum sýnir Lulu
okkur föt, sem hún hefur
sjálf gert.
isrielski biiiii
Ester ii Abi
ísraelsku hjónin Esther og Abi Ofarim létu heldur betur að sér
kveða í Bretlandi, er lag þeirra „Cinderella Rockefella“ komst í
efsta sæti vinsældalistans þar. Þótt þau hafi ekki komizt á blað
í Bretlandi fyrr, eru þau síður en svo nýgræðingar í sviðsljósinu.
Þau liafa sungið inn á ótal hljómplötur, sem náð hafa geysivinsæld-
um á meginlandinu. Þeim hefur verið líkt við Sonny og Cher, en
slík samlíking er ekki allskostar réttlát, því að Esther og Abi
þykja standa þeim að öllu leyti framar — og um það
bera plötur þeirra vitni. Áður en
fundum Esther og Abi bar fyrst
saman,starfaði Esther sem leikkona
í Haifa en Abi var dansari að atvinnu.
Það var þó ekki fyrr en Esther var kvödd í
herinn, að þau ákváðu að rugla saman reyt-
um og giftast. Það var líka eina ráðið til
að Esther kæmist hjá að gegna herþjón-
ustunni. Hún var að vísu í ísraelska hernum
um tíma — og hlaut þá sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir slcotfimi! Svo tólcu þau að syngja
saman í klúbb einum í Haifa, og eins og hendi
væri veifað voru þau orðin vel þekkt í sínu heimalandi:
þau sungu á hljómplötu, og lagið komst i efsta sæti ísraelska
vinsældarlistans. Það var einmitt í klvibbi þeim, sem getið
var um, að bandaríski kvikmyndaframleiðandnn Otto
Preminger veitti Esther athygli, en hann var þá staddur í
ísrael til að undirbúa töku kvikmyndarinnar Exodus.
Preminger þótti svo mikið til Esther koma, að hann bauð
henni að fara með veigamikið hlutverk í þessari frægu
kvikmynd, en myndin var sem kunnugt er sýnd hér í Laug-
arásbíói fyrir nokkrum árum. Esther og Abi hafa tekið þátt í
ótal söngvakeppnum víðsvegar um Evrópu og oftast
orðið númer eitt. Á söngskrá þeiri;a kennir
margra grasa — þau syngja þjóðlög, jazz,
pop-músik og jafnvel lög frá 16. og 17.
öld. Lagið „Cinderella — Framhald á bls. 37
15 VIKAN zo-tbI-
VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI
Cílla ii Pail
Nýjasta lag: Cillu Black heitir „Step in-
side, love“ og er eftir Paul McCartney.
Mörgum þykir nokkuð langur tími líða
milli útkomu á plötum með þessari ágætu
söngkonu, en hún segir sjálf, að liún vilji
aðeins syngja þau lög, sem henni falla í
geð, og það getur tekið sinn tíma að leita
að þeim! Paul kom fram sem gestur í
sjónvarpsþætti Cillu í brezka sjónvarpinu
og annaðist þá undirleik fyrir hana, er
hún söng lag hans „Step inside love“. -
Þótt sagt sé, að lagið sé eftir Lennon og
McCartney, hefur John Lennon ekki kom-
ið nálægt þessu lagi, og hefur þetta gef-
ið ýmsum ástæðu til að ætla, að Bítla-
lögin séu annað hvort eftir John Lennon
eða Paul McCartney — en ekki alltaf eft-
ir þá báða. „Step inside, love“ er eitt fal-
legasta lag, sem Cilla Black hefur sung-
ið, og það ætti sannarlega að heyrst oftar.
ANDRÉS INDRIÐASON
Dave Dee n félaoar
Lögin, sem Dave Dee og félagar hans, Dozy, Beaky, Mick og Tick,
senda frá sér, verða æ stórbrotnari. Samt eru lögin þeirra alltaf auðþekkt:
það er einhver léttur, frísklegur og frumlegur blær yfir þeim. Tökum
nýjasta lagið þeirra „The Legend of Xanadu“. Það er í mexíkönsk-
um stíl — og' textinn er mikil harmasaga. Segir frá tveimur ung-
um mönnum, sem báðir vilja ná ástum sömu stúlkunnar. Þeir
heyja einvígi úti í eyðimörkinni og endar með gráti og gnístran
tanna. Þetta lag er sem sagt í mexíkönskum stíl, en sú hug-
mynd þeirra að láta hvert lag bera svipmót af tónlist einhvers
ákveðins lands hefur gefizt mæta vel. Lagið „Bend it“ var með
grískum keim, „Okay“ með rússneskum, „Zabadak“ var upp á
arabisku og nú er það Legend of Xanadu, með mexíkönskum
keim. Öll þessi lög eru eftir Howard og Blaikley, þá ágætu laga-
höfunda, en þess má geta, að þéir eru jafnframt umboðsmenn
hljómsveitarinnar. Það er því þeirra. hagur að fá þeim sem bezt. lög í
. Lagið „Legend of Xanadu“ er hið lengsta, sem komið hefur
á tveggja laga plötu frá Dave Dee og Co. — eða þrjár og hálf mínúta.
Þess vegna hefur mörgum útvarpsstöðvum verið meinilla við að spila
lagið — og þegar átti að gefa lagið út í Bandaríkjunum, var þess farið á
leit við hljómsveitina, að lagið yrði stytt niður í tvær mínútur og fimmtán
sekúndur. Þá er þess að geta, að nýkomin er út hæggeng hljómplata með
hljómsveitinni, og nefnist platan „If no one sang“. — Framhald á bls. 37.
VIÐ FLETTUM FRA VINSTRI TIL HÆGRI
2o. tbi. VIKAN 14