Vikan - 22.05.1968, Blaðsíða 35
35 VIKAN 20 tw-
VIÐ FIETTUM FRÁ VINSTRI TIL H/EGRI
Anthony Quinn frh.
hef alltaf verið talinn ljótur og
er þar að auki orðinn svo gam-
all, að engin stúlka snýr sér við
úti á götu til að horfa á eftir
mér.
En hamingja Antony Quinn
er fyrst og fremst fólgin í vinnu
hans. Hann heldur áfram að lifa
sig inn í hvert hlutverk og leggja
sig allan fram.
— Vinnan er mér allt, segir
hann. Og þegar hún veitir manni
svo mikla fullnægju, þá verður
góður árangur að nást. í hverju
nýju hlutverki finnst mér að ég
verði að standa mig bétur en
síðast. Ég vona, að ég verði aldr-
ei fullkomlega ánægður með
sjálfan mig og frammistöðu
mína.
Antony Quinn segist ætla að
hætta að leika, þegar öll börnin
hans séu orðin uppkomin. Sem
betur fer er langt þangað til það
verður. -fa
Stund grimmdarinnar
Framhald af bls. 12.
ingrid náfölnaði, meðan á sögu
minni stóð, og þegar ég hafði lok-
ið henni, riðaði hún til í sófanum,
eins og hún væri að yfirliði kom-
in. Mig grunaði að eitthvað hefði
hent hana.
— Ingrid! Hann hefur þá verið
hér! Þú hefur hitt hann!
— Já,'hvíslaði hún. — Já, það
hlýtur að hafa verið hann. Ungur,
Ijóshærður og mjög aðlaðandi. . .
— Ja-há, aðlaðandi! Hann reyndi
að myrða mig úti ( skóginum! En
það stendur heima að hann var
ungur og Ijóshærður. Hvað skeði?
Það tók sinn tíma að fá að heyra
alla söguna frá Ingrid, hún virtist
lömuð. Hann hafði komið, rétt eft-
ir að við lögðum af stað, og sagði
henni að hann hefði villzt. Ingrid
hafði gefið honum kaffi, og leyfði
honum svo að hjálpa til við diska-
þvottinn.
— Hve lengi var hann hér?
— Ég, ég veit það ekki með
vissu. Ingrid var bæði hrædd og
vesældarleg.
— Klukkutíma? — Tvo tíma?
Ingrid þagði og kinkaði kolli.
— Þá hefur hann verið hér, þeg-
ar við fórum fyrri ferðina um
skóginn! Það er þokkalegt!
— En ég hafði ekki hugmynd um
að hann væri þessi morðingi, and-
mælti Ingrid, veiklulega. — Þú
sagðir mér ekki hvert þú varst að
fara, en ég hafði grun um að þú
yrðir fjarverandi mestan hluta næt-
urinnar.
— Því meiri ástæða var það fyr-
ir þig að hleypa engum inn, engum
sem þú þekktir ekki!
— En hann leit út fyrir að vera
svo ungur og hjálparvana.
Ingrid var ákveðin í því að verja
hann, hversvegna veit ég ekki. En
þegar hún heyrði endalok leitar-
innar, var hún aftur um það bil að
liða út af.
Sendum myndasýnishorn ef óskaS er.
SteingirOiniar
os
svalaltandrifl
í fjölbreyttu og fallegu úrvali.
Sendum um allt land.
Vel girt lóð eykur
verðmæti hússins.
Blómaker ávallt fyrirliggjandi.
Þverholti 15. — Stmi 19860.
Póstbox 1339.
Ég tók þetta þannig að þetta
væri taugaáfall, sem hún hefði
fengið eftir á, og ég hjálpaði henni
í rúmið, og háttaði svo sjálfur.
Ég heyrði að hún lá og bylti sér,
grét og snökti, og þá náðu atburð-
ir næturinnar aftur á mér tökum.
Ég hafði barizt við morðingja. Ég
hafði drepið mann. Okkar vegna.
Hennar vegna.
Þetta vakti með mér einhvern
frumkraft, breytti mér í villidýr. Ég
réðist að henni, eins og hvyrfilbyl-
ur og tók hana með þeim ofsa,
sem ég hefði aldrei trúað að ég
væri megnugur til. Ingrid lá, sem
eldingu lostin, — það var fyrst
undir lokin sem ég fann andsvar
frá henni, en þá líka svo um mun-
aði. Ingrid virtist elska mig ( ein-
hverri vitfirringslegri örvæntingu.
Þessa úlfanótt varð Erik til.
Það er ósköp eðlilegt að ég sé
viss um það. Þetta var nefnilega
í síðasta sinn sem ég nálgaðist
hana. Morguninn eftir sagðist hún
ætla að fara til borgarinnar á und-
an mér. Þegar ég kom um næstu
helgi, var Ingrid búin að flytja
rúmið mitt inn í annað herbergi.
Eftir þetta var ekkert samband
á milli okkar, við urðum sem
ókunnug hvort öðru. Ég hélt (
fyrstu að þetta væru einhverjir
dyntir, vegna þess að hún var
þunguð, en það skánaði ekkert eft-
ir að Erik fæddist, hún hélt áfram
að haga sér svona undarlega.
Svo var það ári eftir eltingaleik-
inn í skóginum. Við vorum aftur
flutt út í veiðikofann, og Bertil
borðaði kvöldmat hjá okkur. Að
vonum fórum við að tala um það
sem skeði fyrir ári síðan, sorgar-
leikinn í skóginum.
— Hefurðu hitt hreppstjórann s(ð-
an? spurði Bertil.
— Nei, aldrei.
— Ég skil það. En sannleikurinn
er sá að þú gerðir þjóðfélaginu
meira gagn en þig grunar, þegar
þú skauzt morðingjann.
— Hvað áttu við með því?
— Eins og þú veizt er ég sem
læknir ( töluverðu áliti. Ég komst
yfir skýrslurnar um líf og dauða
morðingjans, það var sannarlega
ekki neinn venjulegur sálsjúkdóm-
ur sem að honum gekk.
— Sálsjúkdómur? spurði Ingrid
allt í einu. — Var hann sinnisveik-
ur?
— Vissirðu það ekki? Jú, það
var hann svo sannarlega, og hann
þjáðist af arfgengum sjúkdómi.
Við megum vera ánægð með að
hann fjölgaði aldrei mannkyninu.
Ingrid var alltaf miður sfn, þegar
talið barst að sjúkdómum, og nú
virtist henni vera flökurt.
— Til skýringar má geta þess,
hélt Bertil áfram, — að það mætti
eiginlega líkja slíku villidýri við
sprengju, sem enginn öryggislás
er á. Hann hefði getað lagzt með
stúlku, götudrós, eða hverri sem
er, með hræðilegum afleiðingum.
Barnið hefði mjög sennilega erft
þessa hrollvekjandi eiginleika frá
föðurnum. Getað orðið eins og
hann, aðlaðandi og oft ástúðleg-
ur í framkomu, en undir niðri
hreinn sadisti, — miskunnarlaus
morðingi....
— Hefði afkvæmi hans örugg-
lega orðið þannig? hvíslaði Ingrid.
— Möguleikarnir á því að hann
hefði eignazt heilbrigt afkvæmi,
voru álíka miklir og að það hefði
fæðzt með tvö höfuð, sagði Bertil.
Þar sem við sáum að Ingrid var
eitthvað miður sín, felldum við nið-
ur þetta tal.
Ef ég á að vera stuttorður, þá
er satt bezt að segja að ég gat
ekki haldið það út að búa með
Ingrid. Hún varð mér svo ókunnug,
lagðist í drykkjuskap og hætti að
hirða sjálfa sig. Hún hafði heldur
ekkert við því að segja, þegar ég
fór fram á skilnað, nokkrum mán-
uðum síðar. Ég lét hana hafa nægi-
lega peninga til viðurværis, gegn
því að ég fengi að halda barninu.
Hún hafði heldur ekkert á móti
því, það var eins og hún hefði
ekki nokkrar tilfinningar gagnvart
sínu eigin barni. Bertil sagði mér
að slíkt væri alvanalegt hjá
drykkjusjúklingum.
Þegar tvö ár voru liðin, fékk ég
endursenda peningaávísunina til
hennar. Það var sagt að móttak-
andi væri látin, og ég gerði ekkert
í því að komast að með hvaða
hætti. Ég var þá kvæntur Rose-
Marie, konu, sem ( alla staði hent-
aði mér vel. Hún fékk fljótlega nóg
að gera, því cð við höfðum mik-
inn gestagang og fórum oft til
veizluhalda, svo ég fékk góða barn-
fóstru handa Erik.
Þið megið samt ekki halda að
mér sé sama um Erik, eða að ég
vanræki hann. Síður en svo. Ef ég
á stund, þá nýt ég þess að leika
við hann og sinna honum.
Hann er líkur öðrum drengjum,
oft erfiður og hávaðasamur, en
hann er oftast elskulegur og að-
laðandi. Hann er mjög eðlilegt og
heilbrigt barn. Hann hefur erft
Ijósa hárið og bláu augun frá mér,
en hann lítur út fyrir að verða
grannvaxnari en ég var nokkurn
tíma.
Að ég er nú að rifja upp þessa
liðnu atburði er eiginlega vegna
Chums, hundsins sem lét lífið voða-
nóttina frægu. Það hafa nefnilega
komið fyrir slíkir atburðir, hér (
grenndinni. Menn hafa fundið lim-
lesta fugla. Hundur Sfens fannst
líka dauður, og sýnilega hafði ver-
ið sparkað í hann þar til hann lét
Kfið. Það var engu líkara en „úlf-
urinn" væri aftur á ferðinni.
En við höfum gert allar mögu-
Framhald á bls. 37.
VIÐ FLETTUM FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI
20. tbi. ynCAN 34