Vikan - 13.06.1968, Qupperneq 3
FERÐATRYGGINGAR OKKAR ERU ÓDÝRAR OG
ViÐTÆKAR. ÞÆR TRYGGJA YÐUR FYRIR ALLS KONAR
SLYSUM, GREIÐA DAGPENINGA VERÐIÐ ÞÉR ÓVINNU-
FÆR SVO OG ÖRORKUBÆTUR OG FJOLSKYLDU YÐAR
DÁNARBÆTUR.
MIÐAÐ VIÐ 100.000,00 KRÓNA TRYGGINGU
I HÁLFAN MÁNUÐ ER IÐGJALD NÚ KR. 47.00 EN VAR
ÁÐUR KR. 81.00 .
FARIÐ EKKI ÓTRYGGÐ í SUMARLEYFIÐ.
TRYGGIÐ YÐUR HJÁ AÐALSKRIFSTOFUNNI EÐA NÆSTA
UMBOÐI.
ÁRMÚLA 3 SÍMI 38500
SAMVINNUTRYGGINGAR
Áróður
Það var skemmtilegt að svip-
ast um í borginni á H-dag-
inn. Hvarvetna ríkti óvenju-
leg stemning, bæði meðal
þeirra sem óku bílum sínum
í fyrsta skipti hægra megin
um göturnar, og hinna sem
röltu um gangstéttirnar og
skoðuðu fyrirbærið. Það var
hátíðarbragur yfir öllu; and-
rúmsloft, sem minnti einna
helzt á kosningadag eða 17.
júní.
Allt gekk eins og í sögu,
enda þótt meirihluti þjóðar-
innar væri á móti breyting-
unni. Líklega er það að mestu
leyti gífurlegum áróðri að
þakka, hversu vel tókst til.
Aldrei fyrr í sögunni hafa
öll fjölmiðiunartæki þjóðar-
innar rekið áróður fyrir einu
og sama málefni. Það var
uókstaflega ógerningur að
losna við að vita það helzta
í sambandi við þennan bless-
aða H-dag. Jafnvel þeir, sem
ekki kunna að aka bíl og hafa
ekki hugsað sér að læra það,
voru orðnir býsna vel að sér
í beygjum og blindhæðum,
biðskyldum og framúrakstri.
Og siðasta öaginn var öllum
sagt að brosa og hamrað svo
rækilega á því, að íslendingar
bi-ostu upp til hópa á H-dag-
inn. Því heíði enginn trúað
um þá að órevndu.
Máttur áróðurs er næsta
óhugnanlegur í nútíma þjóð-
félagi. Það er hægt að blinda
heila þjóð á örskömmum
tíma. Við höfum dæmi þess í
emræðisríkjum, þar sem til-
tækum ráðum er beitt til að
allir hafi eina og sömu skoð-
un á vafasömum málstað.
Lýðræði er orðið þvælt og
úljaskað hugtak. En þegar
áróðurinn birtist í öllu sínu
veldi, — þá þakkar maður
sinum sæla fyrir að búa í
þjóðfélagi, sem byggist á
s’íku skipulagi.
G. Gr.
______Á
2 VIKAN 23 tbl
r
á
K
VIKU BROS
IÞESSARIVIKU
FYRIR OFAN AKUREYRI ............... Bls. 4
PÓSTURINN ......................... Bls. 6
32 BARNA MÓÐIR .................... Bls. 10
APALOPPAN ......................... Bls. 12
EFTIR EYRANU....................... Bls. 12
TURNHERBERGIÐ ..................... Bls. 10
AÐ HALDA SÍNU EIGIN HJARTA ........ Bls. 18
TVÍBURAMERKIÐ ..................... Bls. 20
ANGELIQUE OG SJÓRÆNINGINN ......... Bls. 22
HIN UNDURSAMLEGA SAGA STEINGERVING-
^NNA .............................. Bls. 24
VIKAN OG IIEIMILIÐ................. Bls. 46
VÍSUR VIKUNNAR:
Leiðin til vinstri löngum þótti bág
og loksins var oss bent á hina réttu
er hér þó mörgum enn í nöp við þá
er ökuhraða vorum takmörk settu.
Öruggar leiðir ýmsir þykjast sjá
sem illa greina næsta kennileitið
í sókninni miklu öllum liggur á
þó engum sé ljóst hvert ferðinni er heitið.
UR VIZKULIND VIKUNNAR:
Öskubakki: Það sem maður slær öskuna af sígarettunni í, ef
ekkert gólf er í húsinu.
Hringur: Lína með gati í miðjunni.
Vonbrigði: Tilfinning þess sem kemur að sækja passamyndina
af sér.
Sjálfsagi: Að haga sér þvert á móti löngun sinni.
Engill: Fyrrverandi svifaseinn fótgangandi.
FQRSÍÐAN:
Hún heitir Hólmfríður Gísladóttir og á heima á Akureyri. Hún
er sannkölluð blómarós, því að hún er með blóm upp í sér.
Hún minnir okkur á blessað sumarið, sem sjaldan hefur verið
kærkomnar en nú eftir langan og strangan ísavetur. (Ljósm.
Hallgrímur Tryggvason).
VIKAN — ÚTGEFANDI: IIILMIR UF.
Ritstjóri: Sigurður Hreiðar. Meðritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaða-
maður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson.
Dreifing: Óskar Karlsson. Auglýsingastjóri: Sigriður Þorvalds-
dóttir.
Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar 35330 —
35323. Pósthólf 533. Verð í iausasölu kr. 40,00. Áskriítarverð er 400 kr.
ársfjórðungslega, eða 750 kr. misserislega. Áskriftargjaldið grelðlst fyrir-
fram. Gjalddngar eru: Nóvember, febrúar, mal og ágúrt.
í næstu viku hefst ný og
spennandi framhaldssaga,
Hláturinn eftir Judson Philips.
Hún gerist í Bandaríkjunum,
Aðalpersónan, Peter Styles,
varð fyrir áfalli fyrir tveimur
árum, sem hafði það í för með
sér, að hann er ekki samur
síðan. Hann gengur við gervi-
fót og er í sífelldri leit að
tveimur hlæjandi illræðis-
mönnum. Þá les hann um
glæp, sem tveir hlæjandi
menn hafa framið. Hann fer
á stúfana og fyrr en varir er
hann kominn inn í miðja
hraða atburðarrás, þar sem
flest kemur á óvænt.
„Hvers yrði sá vís, sem sæi
í spegli örlög nýstúdentanna
17. júní. Einhver þessi ung-
menni farast af slysum, bíða
ósigur og gefast upp, villast
og týnast í hörðu óveðri. Öðr-
um veitist aftur á móti ham-
ingja kolbítsins, sem rís úr
öskustónni og vinnur kóngs-
ríkið. Þessar dularrúnir verða
ekki lesnar úr brosandi andlit-
um syngjandi æsku, en hún
mun samt hlíta duttlungum
mislyndrar forsjónar. Hver
fellur í ónáð hennar? Og hvað
er happ og hvað er tap?“
Þannig kemst Helgi Sæmunds-
son að orði í grein, sem hann
nefnir: Dýrmætasti þjóðarauff-
urinn. Hann ræðir um ný-
stúdentana, sem setja svip á
þjóðhátíðardaginn í Reykjavík
ár hvert.
Hrein torg — fögur borg: er
fyrirsögn á efni, sem vekja
mun mikla athygli. Vikan hef-
ur ekið um bæinn og tekið
myndir af sóðalegri umgengni,
sérstaklega í hinum nýju iðn-
aðarhverfum. Hin nýskipaða
fegrunarnefnd Reykjavíkur
hefur ærið verk að vinna í
þessum efnum.
23. tbl.
VIKAN 3