Vikan - 13.06.1968, Blaðsíða 33
Hann nam staðar fyrir utan hlið-
ið og virti húsið fyrir sér, eins
og hann væri hikandi og ekki
viss um hvort hann ætti að
berja að dyrum.
Þegar það var ljóst að hann
átti eitthvert erindi til þeirra,
gekk frú White fram og opn-
aði útidyrnar. Hún ávarpaði ó-
kunna manninn. Hann gekk hik-
andi upp stíginn. Nokkrum
metrum frá dyrunum nam hann
staðar.
— Býr herra White hér?
— Já, gjörið svo vel að koma
inn.
Ókunni maðurinn var mjög
snyrtilega klæddur, hann var
með hanzka og gleraugu. Hann
brosti vandræðalega.
— Ég var sendur hingað ...
hóf hann máls, en leit svo vand-
ræðalega í kringum sig. Svo
ræskti hann sig. — Ég er send-
ur frá Maw og Meggins, sagði
hann svo.
Frú White hrökk við. Hún
tók af sér svuntuna og lagði
hana á stólbak.
— Er . . . . er eitthvað að? Er
það eitthvað sem viðkemur Her-
bert?
— Eitt í einu, mamma, sagði
herra White. — Bjóddu herr-
anum sæti! Gjörið svo vel, herra
minn! Fáið yður sæti og segið
mér svo hvað yður er á hönd-
um. Ég vona bara að þér kom-
ið ekki með slæm tíðindi . . ?
— Mér þykir ákaflega mikið
fyrir því... tók ókunni mað-
urinn til máls.
— Hefir eitthvað komið fyrir
hann? hrópaði frú White. — Er
hann mikið slasaður?
-— Já, hann slasaðist mikið, en
hann finnur ekki lengur til .
Hálftíma síðar voru hjónin
orðin það róleg, að þau gátu
hlustað á alla málavöxtu.
Herbert hafði fest sig á drif-
hjóli á vél sinni og slasazt til
bana, Það var ekkert hægt að
gera fyrir hann.
— Það er að segja, sagði ó-
kunni maðurinn og tók umslag
upp úr frakkavasa sínum. Maw
og Meggins bera auðvitað ekki
ábyrgð á þessu hörmulega slysi,
sonur yðar fór ekki eftir ör-
yggisreglunum. En vegna þess
að hann hefir unnið við fyrir-
tækið í svo mörg ár, óskaði
Maw framkvæmdastjóri eftir því
að þér veittuð viðtöku þessari
peningaupphæð. . .
Ókunni maðurinn rétti herra
White umslagið.
Herra White sleppti hönd
konu sinnar og tók við umslag-
inu. Angistin í brjósti hans var
honum sár kvöl. Svo leit hann
upp. Úr augum hans lýsti skelf-
ing. Hann sleikti þurrar varir
sínar, svo stundi hann upp:
— Hve ... hve mikið er
þetta?
H El LDSÖLU BIRGÐIR
Carmen umboðið
KLAPPARSTÍG 26 SÍMI 19800
Þér setjið hitaðar Carmen
rúllurnar í þurrt hárið og fáið
fallega og varanlega lagningu
á aðeins 10 mínútum.
Ötilhaft hár verður frískt og
veltilhaft á aðeins 10 mínútum.
Carmen rúllurnar fást í þrem
stærðum, 7, 11 og 17 stykki
í kassa.
Carmen rúllurnar leggja
hórið meðan
þér klæðið yður
Þakka ykkur kærlega fyrir mat-
inn. Ég vona að þú hafir ekkert
á móti því þótt ég taki minn Ættir þú nú ekki heldur að gæta veikur! Ekki nöldra ég yfir öllum
skammt heim með mér, Sara. sauða þinna, kunningi? bólgunum í þér!
Láttu ekki svona kona, ég er
23. tbi. viKAN 33