Vikan - 13.06.1968, Qupperneq 25
r~
HÖfUNDUR JLACK POWER" EFIIRMAOUR KINGS
Stokely Charmichael hefur tækifær til að verða hinn
nýi leiðtogi, eftir Martin Luther King, ef honum auðn-
ast að lifa nógu Iengi.
Mun ofbeldi eða friðsamleg samvinna setja svip á bar-
áttu amerískra negra, eftir fráfall Martin Luther Kings?
Flestir Ameríkumenn spá því að ofbeldið verði ofan á.
Eftir morðið á Iving var hinn 42 ára gamli babtista-
prestur, Ralph Abernathy, kjörinn leiðtogi fyrir friðsam-
leg samtök blökkumanna, þ.e.a.s. ACLC. Abernathy er lítt.
kunnur, en hann var náinn vinur og samstarfsmaður Kings
i tíu ár. Hann kom fyrstur að hinum deyjandi Tving eftir
árásina í Memphis. En þessi lilédrægi og hljóðláti
blökkumaður, Abernathy, virðist ekki vera til forustu
fallinn.
Ungir amerískir blökkumenn bíða þess í ofvæni að
Stokely Charmichael, hinn 26 ára gamli negri frá Trinidad,
sem fann upp slagorðið ,Black Power“, komi fram á sjón-
arsviðið og' taki við forustu um jafnretti hvítra og þel-
dökkra. Charmichael er sameiningartákn ungu negranna.
King var hinn friðelskandi heimsspekingur, enda hafði hann
fengið friðarverðlaun Nobels, og hann hafði a 111 önnur
sjónarmið. TTngir negrar liktu honum jafnvel við „Tom
frænda“. Stokely Charmichael er dæmigerður uppreisnar-
maður, í líkingu við Che Guevara, og orð hans hafa miklu
meiri hljómgrunn í negrahverfunum, en orð hinna frið-
elskandi leiðtoga.
Charmichael er einn af framámönnum í negrasamtök-
unum SNC'C, sem eru uppreisharsamtök. Hann var for-
ingi þeirra í fyrra, en eftirmaður hans var æsingaseggur-
inn Rap Brown, sem nú situr í fangelsi fvrir óeirðir. Nú
í sumar, þegar búizt er við að kynþáttabaráttan verði efzt
á baugi, eru líkur til að Charmichael verði sameiningar-
tákn negranna í baráttunni um jafnrétti. En það eru marg-
ir sem ekki eru trúaðir á að honum takist það. Hin hæg-
fara negrasamtök, eins og t.d. NAACP, CORE og félags-
skapur Kings ACLC, hafa meira og minna hafnað of-
beldiskenningum Charmichaels. Þeir negrar sem liafa
komið sér sæmilega fvrir og hafa fasta vinnu, hafa ekki
álmga á ofbeldiskröfum SNCC, um vopnaða uppreisn.
En ]>að er þó greinilegt að fylgi Charmichaels hefur
aukist, síðan King var myrtur. TJngir blökkumenn, víðs-
vegar í Bandaríkjunum eru mjög hrifnir af honum. Spurn-
ingin er bara sú, hvort Charmiehael, sem vandlega er gætt
af fylgismönnum sínum, getur safnað áhangendum sínum
saman til átaka nú í sumar, sem á að vera „sumar átak-
anna“. Hvítir Bandaríkjamenn hata hann eins og pestina.
Hann er eiginlega fyrirfram dæmdur til samskonar dauð-
daga og Alartin Luther King og INlalcolm X ......
V
23. tbi. viKAN 25