Vikan - 13.06.1968, Blaðsíða 28
Ástríður æskufólks og óbærilegar ástar-
sorgir hafa verið uppáhaldsefni listamanna
gegnum aldirnar, en það þurfti snilling eins
og Shakespeare til að gera unga elskendur
eins og Romeo og Júlíu, ódauðleg í heimsbók-
menntunum.
Fyrsta sagan, sem er greinilega undanfari
sögu Shakespeares, er „Historia de due nobili
Amanti", var samin árið 1530. Meginefni
þessarar ítölsku sögu er mjög líkt og í Romeo
og Júlía, eftir Shakespeare.
Shakespeare skrifaði þessa viðkvæmnislegu
ástarsögu sína, ástum og ástríðum hinna
kornungu elskenda til lofs, ljómandi af ljóð-
rænum hreinleika og töfrandi yndisþokka.
Það er því ekki undarlegt að hún hafi haft
áhrif á aðra listamenn, sérstaklega hljómlist-
armenn. Af óperum um þetta efni, er aðeins
ein, sem stöðugt er á leiksviðum, víða um
heim, — „Romeo og Julía“, eftir Gounod,
sem samin var fyrir 100 árum.
Aðrir hafa reynt að nota sér sorgarleik
Shakespeares, sem undirstöðu í söngleiki, —
(Bellini, „I Capuletti ed e Montecchi") árið
1830, og Richardo Zandonai („Guilietta e
Romeo“), árið 1921, en þessi verk hafa aldrei
orðið sérstaklega þekkt.
Árið 1935 samdi rússneska tónskáldið
Prokofieff hljómlist við ballettinn „Romeo
og Júlía“, sem er meðal þekktustu ballett-
verka í heiminum.
Þrjú önnur tónskáld hafa samið tónlist um
þetta efni. Álrið 1870 samdi Tchaikovski
„Romeo og Júlía, forleiksfantasíu", og 1939
samdi Berlioz symfóníu um sama efni.
Snilldarlega samsteypu af söng, leik og
dansi samdi Leonard Bernstein árið 1958, —
„West Side Story“, sem er nýtízkuleg túlkun
á „Romeo og Júlíu“, og hann lætur gerast í
New York.
Auðvitað hefir þessi harmleikur líka haft
áhrif á óteljandi listamenn í kvikmyndaheim-
inum. Árið 1936 léku Norma Shearer og
Leslie Howard aðalhlutverkin í kvikmynd
um Romeu og Júlíu, og árið 1953 var tekin
ný kvikmynd, og þá léku Laurence Harvey
og Susan Shentall hina ungu, óhamingju-
sömu elskendur.
Síðasta kvikmyndin sem framleidd hefir
verið eftir ástaharmleik Shakespeares er verk
ítalska leikstjórans Zefirellis. Hann hefir val-
ið unga og óreynda leikara til að fara með
aðalhlutverkin, Leonard Whiting, sem er 17
ára, og Oliviu Hussey, sem er aðeins 15 ára,
Zeffirelli hlýtur að vera sá fyrsti sem skil-
greinir þessa frægustu ástarsögu allra tíma
sem „tilviljunarkennda“. En leikflokkur hans
er honum sammála.
Framhald á bls. 50.
28 VIKAN 23-tbl-
Kvikmynd: f síðustu kvikmyndinni um
„Romeó og Júlíu leikur hin 15 ára gamla
Olivia Hussey Júlíu og Leonard Whiting
Romeó. Myndin er tekin í nágrenni Róma-
borgar og leikstjóri er Franco Zefíirelli.
<i Atriði úr kvikmyndinni.
Opera: Ein af hinum syngjandi Júlíum var
ástralska söngkonan Nellie Melba,
Leikhús: Árið 1940 léku Laurence Oliver og
Vivien Leigh titilhlutverkin í „Romeó og
Júlía“, í Chicago.
Kvikmyndir: Árið 1936 léku Norma Shearer
og Leslie Howard hina ungu elskendur.
Ballel: Hinar frægu stjörntfr konunglega
ballettsins í Bretlandi, Morgot Fonteyn og
Rudolf Nurejev, dansa titilhlutverkin í ballett
Prokol'icffs „Romeo og Júlía“.
Söngleikur: Leonard Bernstein notar „Romeó
og Júlíu“ hugmyndina í hinn fræga söngleik
„West Side Story“. Carol Lawrence og Larry
Kent léku Maríu (Júlíu) og Tony (Romeo).
23. tbi. vikáN 29