Vikan


Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 11

Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 11
; Matarbar FOLDEN. Notalcgur og smekklegur matstaður, ekki dýrari cn aðrir sambærilegir í Kaupmannahötn. Af reykvíkskum stöðum minnir Ask- ur einna helzt á Folden, en er þó órólegri. 4 Lcngst til vinstri: Milli matarbars- ins og gangsins er skemmtilega skreytt þil. Ilægra megin að ofan: Úr sýni- kcnnslusalnum. Þar cru sæti fyrir 64. Fyrir miðju: „Brug smör, det gör vi,“ sögðu dönslcu kokkarnir, og konurn- ar sýndust því ekki mótfallnar. Neðst hægra megin: Bragðið á réttunum — den er god — den er dansk'. Hvenær kemur hér: Það er gott — það er ís- lenzkt!? Neðst vinstra megin: Úr upp- lýsingaskrifstofu Ekkodanmark. Þar gctur hver og einn fengið þær upp- iýsingar um mat — sérílagi danskan — sem hann kýs. arinnar er að kynna, matreiða og bjóða danskar landbúnaðar- vörur eins og þær eru beztar. Eftir að ég uppgötvaði þessa ágætu matarmiðstöð, lét ég aðr- ar veitingastofur í Kaupmanna- höfn lönd og leið en saddi' hungr- ið ævinlega á Foldenbarnum. Verðið þar er eins hóflegt og á öðrum stöðum í Kaupmannahöfn, dýrt að vísu, en ódýrara gefur ekki í þeirri borg. Danir hafa sem sé orðið varir við efnahags- vanda eins og við, og hjá þeim er veruleg dýrtíð. Og maturinn á Folden er fyrsta flokks. Þar við bætist, að húsnæðið allt er fram- úrskarandi smekklegt og nota- legt. Þegar setið er innan til við barinn blasir við skifrúmið milli hans og gangsins, það er úr málmstoðum og málmhlutum með gleri og sýningarkössum á milli, hér og þar getur að líta spjöld með dönskum uppskrift- um, sumum fornum á kátlegu máli. Allar aðrar skreytingar eru eftir því látlausar og vel til fundnar. Ekki taldi ég mig hafa efni á að fara inn í veitingasalinn, en sá þó þangað. Þar er allt jafn smekklegt og annars staðar, mildir litir, falleg húsgögn og röggvarfeldir á gólfum. Glóðar- steikuibúðin er raunar eins og búðir gerast, en hún er í tengsl- um við veitingastofuna og þaðan koma tilbúnu réttirnir, sem hægt er að taka með sér heim. Og til þess að enginn þurfi að kaupa köttinn í sekknum, er réttum dagsins hverju sinni stillt út í sýningarkassa inni í anddyrinu. í E-delikatessunni fæst svo úr- val af hráefni í danskan mat, og þar er hægt að fá bragðprufu af hverju einu áður en kaupin eru gerð, síðan, ef þér líkar bragðið, getur þú keypt einhvern af hin- um margbreytilegu gjafakössum með úrvals dönskum mat, og sent vinum þínum víða um heim. Hvert sem er í heiminum, sagði raunar afgreiðslumaðurinn, sem ég talaði við. Ég bað hann þá að senda Ojukwu í Bíöfru svo sem einn kassaskjatta með skinku, beikoni, eggjum og osti, en sá danski hló við og sagðist ekki myndu taka nema hálfvirði fyr- ir hann, því það væri ekki víst að hann kæmist alla leið. Ég vildi ekkert kaupa á afsláttarprís en sagðist skyldu borga fullt verð, þegar ég fengi línu frá Ojukwu með þökk fyrir matinn. Skildum við svo báðir í góðu skapi, því fátt kunna Danir betur að spauga með en mat. Að íslenzkum garðyrkjumönn- um má svo skjóta því, að við hliðina á delíakatessunni er sýningargluggi, þar sem skraut- jurtaræktendur sýna framleiðslu sína á hinn fegursta hátt. Þá er eftir að geta um kennslu- salinn í húsi þessu. f hvert skipti, sem ég kom þarna á verzlunartíma, var salurinn þétt- setinn og staðið meðfram bekkj- unum. Verið var að kynna ýms- ar landbúnaðarvörur og sýna matreiðslu þeirra, kennararnir lýstu jafnharðan því sem þeir voru að gera og áhorfendum til hægðarauka var gríðarstór speg- ill yfir borðinu, svo allir sæju handbrögðin þótt fjölmenni skyggði á sjálft borðið. í sam- bandi við þetta var svo útbýtt uppskriftum og upplýsingabækl- ingum. Slagorðið þegar ég var þarna var Brug smör — det gör vi ■— og með því var tíðum mjmd af tveim þriflegum kokkum með girnilegar kökur og brauð. Mér var sagt, að það væru sjónvarps- kokkarnir þeirra Dananna. Maður sá, sem fyrstur leiddi mig á þennan stað, hefur vinnu- stað handan götunnar við efni alóskylt þessu, vinnur raunar Framhald á bls. 50. 5. tbl. ' VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.