Vikan


Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 13

Vikan - 30.01.1969, Blaðsíða 13
ánægður. Þetta gat auðvitað verið hreinasta tilviljun; en það var samt ímyndunarefni. Og Sam var að liugsa um þetta alla leiðina lieim. Sam og Mully fóru úr vagn- inum hjá Strandgötu og gengu hægt heim að gistihús- inu, þar sem þau bjuggu. JNIully þótti gaman að ganga eftir þessari götu — hún var friðsamleg, rómantísk og svo suðræn. Hún liggur meðfram bergbrún, langt fyrir ofan ströndina; þaðan er hægt að horfa yfir trégirðinguna, nið- ur á hallir kvikmyndastjam- anna og út yfir hafið. Þegar þau voru komin móts við hús Marion Davies, stað- næmdust þau og horfðu yfir grindverkið. Sam var ennþá hugsi. Hann tottaði pípuna í ákafa, horfði út á sjóinn og hugsaði. Það var á þessu augnabliki, sem hann varð altekinn af hinni furðulegu fullvissu. Ef til vill stafaði það af því, að hann stóð svo hátt uppi, eft- ir að hafa hlýtt á ræðuna og orðið fyrir hinu kynlega at- viki með strætisvagninn. Hver svo sem orsökin var, þá var hann fullkomlega sannfærður um að hann gæti flogið. Hann átti erfitt með að standa kyrr. „Mully“, sagði hann; „stundum finnst mér að mað- ur gæti hent hér liérna fram af og flogið ef maður hefði nógu mikla trú“. „Já, ef“! sagði Mully og saug upp í nefið. Það var svo sem ekki mikla uppörvun að sækja til lienn- ar. En því er svo varið með Yorksliiremann, að því meiri andstöðu, sem hann mætir, þeim mun ákveðnari verður hann. „Jæja þá“, sagði Sam við sjálfan sig, „ég er viss um að maður gœti gert það — ef trúin væri nógu sterk“. Þegar hann var háttaður um kvöldið, fór hann að liugsa um, hve gaman væri að geta flogið til þess að geta sýnt Mully fram á, að hún hafði á röngu að standa. Svo fór hann að trúa því, trúa því statt og stöðugt að liann gæti flogið. Hárin risu á liöfði hans, þegar hann varð þess var allt í einu, að hann fór að lyftast hægt og hægt upp úr rúminu. Hann átti bágt með að skilja þetta. Hann fálmaði með hendinni undir líkama sinn. Það var satt! Hann náði ekki niður í rúmið með hend- inni. Hann varð svo hissa, að hann lét sig detta ofan í rúm- ið, til þess að geta íhugað málið. Það marraði í dýnunni við fallið, og Mully hreytti út úr sér: „Sammywell, ef þú hættir ekki að hamast svona í rúminu, þá sef ég í stóln- um“. Sam ákvað að bíða, þar til Mully væri sofnuð, og gera þá aðra tilraun, en svo illa tókst til, að hann sofnaði sjálfur. Þegar hann vaknaði morg- uninn eftir, var hann fyrst að hugsa um að segja Mully allt af létta. En það var ekki svo auðvelt um liábjartan dag- inn, þegar sólin skein á morg- unverðarborðið, og Mully og Lavinia sátu þarna svona eðlilegar og rólegar. Sam sagði því aðeins: „Mig dreymdi skrítinn draum í nótt Mully; mér fannst ég vera að fljúga“. „Hmm“, sagði Mully. „Hvað sagði nú pilturinn á ferðaskrifstofunni okkur að segja, ef við vildum fá hér höggvinn sykur“? „Molasykur, mamma“, svaraði Lavinia. „Já, það var rétt. Flýttu þér nú að borða, telpa mín, og komdu þér af stað. Við áttum að hitta kvikmynda- stjórann í Coolver City klukkan tíu“. Framhald á bls. 39. 5. tbi. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.